Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

647. fundur
22. nóvember 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Óskar Óskarsson Varamaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 240. fundi bæjarstjórnar þann 30. október 2012; Birting reikninga á heimsíðu; tillaga Björns Snorrasonar.
Málsnúmer 201211004
Frestað.
 
2.
Frá Varasjóði húsnæðismála; Úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða.
Málsnúmer 201211041
Tekið fyrir bréf frá Varasjóði húsnæðismála, dagsett þann 14. nóvember 2012, þar sem fram kemur að úthlutun söluframlaga vegna sölu sveitarfélagsins á Klapparstíg 5, Skógarhólum 29 D og Skógarhólum 29 C er alls kr. 2.713.078.
Lagt fram.
3.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; endurskoðun í samræmi við ný sveitarstjórnarlög
Málsnúmer 201210075
Jóhann Ólafsson kom á fundinn undir þessum lið kl. 8:42.Á 642. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 1. nóvember 2012 var til umræðu endurskoðun á gildandi samþykktum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar sem þarf að endurskoða fyrir áramót skv. nýjum sveitarstjórnarlögum. Tvær umræður þarf um samþykktirnar í bæjarstjórn.Ekki lá fyrir enn fyrirmynd að nýjum samþykktum sveitarfélaga frá innanríkisráðuneytinu og var því þessum lið frestað.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi fyrirmynd innanríkisráðuneytisins að samþykktum sveitarfélaga sem og leiðbeiningar ráðuneytisins um ritun fundargerða, sem barst í gær eða 21. nóvember s.l.Á fundinum var unnið að endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins, fram að VI. kafla.
4.
Markviss-könnun; eftirfylgni og tillögur að fræðslu- og úrbótaáætlunum.
Málsnúmer 201111060
Á 646. fundi bæjarráðs þann 15. nóvember s.l. var Markvisskönnunin til umfjöllunar og samþykkti bæjarráð að óska eftir frekari upplýsingum frá skýrsluhöfundi hvað varðar eftirfylgni og framhaldið.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi endanleg útgáfa skýrslunnar frá Helga Þorbirni Svavarssyni. Hluti af skýrslunni er tillaga um úrbóta- og fræðsluáætlun ásamt kostnaðaráætlun.
Bæjarráð óskar eftir að framkvæmdastjórn taki úrbóta- og fræðsluáætlun til skoðunar ásamt kostnaðaráætlun.
5.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Stöðumat janúar - september 2012 skv. fjárhagsáætlunarferli.
Málsnúmer 201211043
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti upplýsingar og skil frá stjórnendum er varðar stöðumat á starfs- og fjárhagsáætlun janúar-september 2012.
Lagt fram.
6.
Frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga; Fundagerðir til kynningar.
Málsnúmer 201211045
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu til kynningar fundargerð Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 22. október s.l. og 7. nóvember s.l.
Lagt fram.