Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

646. fundur
15. nóvember 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Óskar Óskarsson Varamaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Kristjáni Ólafssyni; Geymslupláss í skála að Böggvisstöðum.
Málsnúmer 201211013
Tekið fyrir erindi frá Kristjáni Ólafssyni, Bjarkarbraut 11 á Dalvík, bréf dagsett þann 8. nóvember 2012, þar sem fram kemur að hann hefur nú um langt árabil haft geymslupláss í skála að Böggvisstöðum án gjalds samkvæmt munnlegu samkomulagi við þáverandi bæjaryfirvöld. Um er að ræða um 100 fm2 þar sem Kristján geymir búvélar og önnur landbúnaðartæki. Auk þess er gamli Bedfordinn (slökkviliðsbílinn) í geymslurýminu. Kristján óskar eftir því að gerður verði við hann skriflegur samningur um framangreint geymslupláss á óbreyttum kjörum.

Bæjarráð hafnar því að gerður verði samningur um leigu án  endurgjalds þar sem allir eiga að greiða leigu til sveitarfélagsins.
Bæjarráð bendir bréfritara á þann möguleika að sækja um styrk til menningarráðs.
2.
Frá Landsbyggðin lifir; Umsókn um styrk.
Málsnúmer 201211010
Tekið fyrir erindi frá Landsbyggðin lifir, bréf dagsett þann 2. nóvember 2012, þar sem sótt er um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifir að upphæð kr. 50.000.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
3.
Frá Snorraverkefninu; Stuðningur við Snorraverkefnið sumarið 2013.
Málsnúmer 201211014
Tekið fyrir erindi frá Snorraverkefninu, bréf dagsett þann 8. nóvember 2012, þar sem óskað er eftir að Dalvíkurbyggð styrki verkefnið sumarið 2013. Verkefnið, sem rekið er af Þjóðræknifélagi Íslendinga og Norræna félaginu á Íslandi, lýtur að því að veita ungu fólki af íslenskum ættum í Norður-Ameríku tækifæri til að kynnast rótum sínum á Íslandi í 6 vikna sumarverkefni.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
4.
Frá Varasjóði húsnæðismála; Ráðstefna um húsnæðismál sveitarfélaga.
Málsnúmer 201211011
Tekið fyrir bréf frá Varasjóði húsnæðismála, ódagsett, þar sem fram kemur að Varasjóður húsnæðismála í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íbúðalánasjóð og Velferðarráðuneytið boðar til fundar um húsnæðismál. Ráðstefnan verður haldin á Hótel KEA Akureyri 16. nóvember 2012 kl. 13-15:30.Fram kom á fundinum að sviðstjóri félagsmálasviðs og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið áforma að sækja ráðstefnuna.
Lagt fram.
5.
Lokastígur 1, íbúð 303; kauptilboð.
Málsnúmer 201210079
Á 642. fundi bæjarráðs þann 1. nóvember s.l. gerðu sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri bæjarráði grein fyrir kauptilboði og gagntilboði í húseign Dalvíkurbyggðar við Lokastíg 1, íbúð 0303.Bæjarráð veitti sviðstjóra og bæjarstjóra heimild til þess að ganga frá málum í samræmi við umræður á fundinum.Á fundinum var upplýst í hvaða farvegi kauptilboðið er.
6.
Skíðabraut 15, 0202; kauptilboð.
Málsnúmer 201203071
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri gerðu grein fyrir kauptilboði sem borist hefur í ofangreinda húseign sveitarfélagsins og gagntilboði frá Dalvíkurbyggð.
7.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201211033
Bókað í trúnaðarmálabók.


8.
Markviss-starfsmannakönnun, næstu skref.
Málsnúmer 201111060
Á 642. fundi bæjarráðs þann 1. nóvember s.l. kynnti Helgi Þorbjörn Svavarsson frá Símey niðurstöður úr Markvisskönnun sem hann vann fyrir Dalvíkurbyggð vegna ráðgjafaþjálfunar í Markviss og var þetta verkefni hluti af henni. Helstu niðurstöður eru að við skoðun gagnanna kemur í ljós að Dalvíkurbyggð er vel á vegi stödd hvað varðar þá þrjá þætti sem teknir voru sérstaklega til athugunnar, samskipti, starfsánægju og starfsþróun.Með skýrslunni fylgdu tillögur (drög) að fræðslu- og úrbótaáætlun.Á fundinum var ofangreint til umræðu og rætt sérstaklega um eftirfylgni.


Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir frekari upplýsingum frá skýrsluhöfundi hvað varðar eftirfylgni og framhaldið.
9.
Frá bæjarstjórn Dalvíkurbyggð; Fjárhagsáætlun 2013- (2016).
Málsnúmer 201204042
Á 645. fundi bæjarráðs þann 13. nóvember s.l. voru til umræðu ýmsar tillögur og hugmyndir, bæði nýjar og eldri, hvað varðar rekstur og starfsemi Dalvíkurbyggðar í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2013-2016.Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti þær tillögur sem fram hafa komið á milli umræðna:a) Tillögur frá sviðstjórum um 1% hagræðingu í málaflokkum Aðalsjóðs.b) Tillögur um breytingar á fjárhagsáætlun málaflokks 57; félagslegar íbúðir.c) Tillögur um breytingar á áætlun staðgreiðslu; málaflokkur 00.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögur frá sviðstjórum fjármála- og stjórnsýslusviðs og umhverfis- og tæknisviðs hvað varðar 1% hagræðingu.
Bæjarráð felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga frá fjárhagsáætlun 2013-2016  til síðari umræðu í samræmi við þær ákvarðanir sem teknar hafa verið í bæjarráði.