Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
644. fundur
8. nóvember 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Endurnýjun á samstarfssamningi.
Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, bréf dagsett þann 30. október 2012, þar sem óskað er eftir endurnýjun á samstarfssamningi Dalvíkurbyggðar við Markaðsstofuna til ársloka 2015.
Bæjarráð tekur jákvætt í endurnýjun á samstarfssamningi og óskar eftir að fá ný samningsdrög til skoðunar.
2.
Vinabæjasamstarf; erindi frá Hamar.
Á 631. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar var tekið fyrir erindi frá vinabænum Viborg í Danmörku, dagsett þann 21. júní 2012, þar sem fram kemur að sú ákvörðun hefur verið tekin að Viborg mun ekki eftirleiðis taka þátt í þeim hluta sem fellur undir pólitíska hluta vinabæjasamstarfsins, s.s. undirbúningsfundi og vinabæjamót. Bæjarráð fól bæjarstjóra að kanna viðbrögð vinabæja við ofangreindu erindi.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi rafbréf frá Hamar, dagsett þann 1. nóvember 2012, þar sem fram kemur að Hamar ætlar að reyna að fá Viborg til þess að endurskoða ákvörðun sína.
Lagt fram.
3.
Frá Línudans ehf., Raforkuflutningskerfi - þróun og uppbygging.
Tekið fyrir bréf frá Línudans ehf., dagsett þann 9. október 2012, þar sem fram kemur að efni bréfsins er að kynna þjónustu á vegum fyrirtækisins sem snýr að þróun og enduruppbyggingu raforkuflutningskerfa.
Lagt fram.
4.
Frá Einingu-Iðju; Ráðhús Dalvíkur; sala á gangi Einingar-Iðju á 2. hæð og kaup á sameignarhluta á 3. hæð.
Björn Snorrason kom á fundinn undir þessum lið kl. 8:35.Tekið fyrir erindi frá Einingu-Iðju, bréf dagsett þann 5. nóvember 2012, þar sem fram kemur að Eining-Iðja óskar eftir svari um það hvort Dalvíkurbyggð sé tilbúin að kaupa hlut Einingar-Iðju í 3. hæð Ráðhússins á Dalvík á því verði sem félagið var búið að samþykkja. Einnig hvort Dalvíkurbyggð sé tilbúið að selja Einingu-Iðju hlut sveitarfélagsins í annarri hæð (gangur, geymsla, snyrting) fyrir framan séreign Einingar-Iðju á því verði sem búið var að ganga út frá.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að Dalvíkurbyggð kaupi eignarhluta Einingar-Iðju í sameign á 3ju hæð og að Dalvíkurbyggð selji eignarhluta sinn í gangi á 2. hæð á þeim forsendum sem um hefur verið rætt.Bæjarráð vísar ofangreindu til fasteignasala til úrvinnslu.
5.
Lækjarstígur 5; kauptilboð.
Á 642. fundi bæjarráðs þann 1. nóvember s.l. gerðu sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri bæjarráði grein fyrir kauptilboði og gagntilboðum vegna húseignar sveitarfélagsins við Lækjarstíg 5 á Dalvík.Bæjarráð veitti sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra heimild til þess að ganga frá málum í samræmi við umræður á fundinum. Á fundinum var kynnt undirritað gagntilboð frá Jóni Steingrími Sæmundssyni og Elíngunn Rut Sævarsdóttir, dagsett þann 2. nóvember 2012, að upphæð kr. 13.200.000. Kauptilboðið er undirritað af bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir ofangreint kauptilboð og söluna á eigninni.
6.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Forsendur fjárhagsáætlunar-ný Þjóðhagsspá.
Valdís Guðbrandsdóttir vék af fundi undir þessum lið kl. 8:45.Tekið fyrir minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. nóvember 2012, vegna Þjóðhagsspár Hagstofu Íslands frá 2. nóvember 2012.Fram kemur m.a. að áætlun verðbólga árið 2013 er 4,1% nú í stað 3,9%.
Bæjarráð samþykkir að við vinnu við fjárhagsáætlun 2013-2016 verði notuð áætlun um 4,1% verðbólgu árið 2013 og áfram fyrir árin 2014-2016 þar sem þriggja ára áætlun er á föstu verðlagi. Valdís Guðbrandsdóttir kom inn á fundinn kl. 9:00 undir þessum lið.