Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

642. fundur
1. nóvember 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Landskerfi bókasafna hf; Aukaaðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2012.
Málsnúmer 201205055
Tekið fyrir bréf frá Landskerfi bókasafna hf., dagsett þann 23. október 2012, þar sem boðað er til aukaaðalfundar 8. nóvember n.k. kl. 14:00.
Lagt fram.
2.
Frá Ferðafélagi Svarfdæla; Heljuskáli, ósk um styrkveitingu 2012.
Málsnúmer 201209096
Kristján E. Hjartarson, formaður, vék af fundi vegna vanhæfis undir þessum lið og Valdís Guðbrandsdóttir tók við fundarstjórn.Á 231. fundi umhverfisráðs þann 17. október s.l. var tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla, dagsett í september 2012, er varðar ósk um styrkveitingu vegna byggingu skála á Heljardalsheiði árið 2013.Umhverfisráð vísaði ofangreindu erindi til bæjarráðs.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
3.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; endurskoðun í samræmi við ný sveitarstjórnarlög; undirbúningur.
Málsnúmer 201210075
Til umræðu endurskoðun á gildandi samþykktum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar sem þarf að endurskoða fyrir áramót skv. nýjum sveitarstjórnarlögum. Tvær umræður þarf um samþykktirnar í bæjarstjórn.
Ekki liggur fyrir enn fyrirmynd að nýjum samþykktum sveitarfélaga frá innanríkisráðuneytinu og er því þessum lið frestað
5.
Lækjarstígur 5; kauptilboð.
Málsnúmer 201210077
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri gerðu bæjarráði grein fyrir kauptilboði og gagntilboðum vegna húseignar sveitarfélagsins við Lækjarstíg 5 á Dalvík.
Bæjarráð veitir sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra heimild til þess að ganga frá málum í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Lokastígur 1, íbúð 303; kauptilboð.
Málsnúmer 201210079
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri gerðu bæjarráði grein fyrir kauptilboði og gagntilboði í húseign Dalvíkurbyggðar við Lokastíg 1, íbúð 0303.
Bæjarráð veitir sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra að ganga frá málum í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Fjárhagsáætlun 2013-2016; vinnuhópar.
Málsnúmer 201210074
Á 241. fundi bæjarstjórnar þann 30. október 2012 var fyrri umræða í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2013-2016 og samþykkti bæjarstjórn að vísa áætluninni til bæjarráðs á milli umræðna í bæjarstjórn.Á 641. fundi bæjarráðs þann 25. október s.l. samþykkti bæjarráð að farið verði yfir rekstur sveitarfélagsins í vinnuhópum á milli umræðna í bæjarstjórn.Á fundinum var rætt um fyrirkomulag og samsetningu vinnuhópa.
Bæjarráð samþykkir að þann 8. nóvember n.k. verði unnið að fjárhagsáætlun 2013-2016 með vinnuhópum.
8.
Markviss könnun; kynning á skýrslu og niðurstöðum; kl. 09:00.
Málsnúmer 201111060
Jóhann Ólafsson vék af fundi til annarra starfa undir þessum lið kl. 9:20.Á 620. fundi bæjarráðs þann 1. mars s.l. gerðu bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs grein fyrir þeirri athugun og vinnu sem hefur farið fram um vinnustaðakönnun en unnið hefur verið að því að sameina Markviss verkefnið og vinnustaðakönnun í eina könnun. Markviss verkefnið er í umsjón Helga Þorbjarnar Svavarssonar sem er verkefnisstjóri SÍMEY á Dalvík. Markmið verkefnisins er að kortleggja stöðu símenntunar og starfsþróunar hjá Dalvíkurbyggð.Bæjarráð veitti heimild til þess að halda áfram með vinnustaðakönnunina í samræmi við umræður á fundinumUndir þessum lið kom á fund bæjarráðs Helgi Þorbjörn Svavarsson frá Símey í gegnum símafund frá Akureyri sem kynnti Markvisskönnun sem hann vann fyrir Dalvíkurbyggð vegna ráðgjafaþjálfunar í Markviss og er þetta verkefni hluti af henni. Einnig komu á fund bæjarráðs undir þessum lið sviðstjórar félagsmálasviðs, fræðslu- og menningarsviðs og umhverfis- og tæknisviðs.Markmið verkefnisins er þarfagreining alls starfsfólks Dalvíkurbyggðar með það að markmiði að fá yfirsýn yfir heildar starfsþróunarþörf sveitarfélagsins. Sértök áhersla var lögð á samskipti, starfsánægju og fræðsluþörf starfsmanna Dalvíkurbyggðar.9 manna stýrihópur úr starfsmannahópi Dalvíkurbyggðar var skipaður og hófst vinnan 26. nóvember 2011. Könnunin var lögð fyrir starfsmenn Dalvíkurbyggðar í mars og apríl 2012 og svöruðu 123 starfsmenn.Helstu niðurstöður eru að við skoðun gagnanna kemur í ljós að Dalvíkurbyggð er vel á vegi stödd hvað varðar þá þrjá þætti sem teknir voru sérstaklega til athugunnar,samskipti, starfsánægju og starfsþróun. Helgi, Eyrún, Hildur Ösp og Þorsteinn viku af fundi.