Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
641. fundur
25. október 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagur og starfsemi Skíðafélags Dalvíkur; staða mála.
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu-og menningarsviðs, Sigurgeir Birgisson, framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur, Birkir Bragason, formaður Skíðafélags Dalvíkur, og Gerður Olafsson, gjaldkeri Skíðafélags Dalvíkur.Á 633. fundi bæjarráðs þann 31. ágúst 2012 gerðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs bæjarráði grein fyrir þróun og stöðu mála hvað varðar fjárhagsstöðu Skíðafélags Dalvíkur og tímabundin inngrip Dalvíkurbyggðar í rekstur félagsins.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi gögn er sýna áætlaðan rekstarkostnað félagsins fram til áramóta; áætlaður kostnaður er kr. 8.081.507. Einnig er Dalvíkurbyggð búið að greiða styrk umfram samning við félagið að upphæð kr. 1.565.000 til þess að greiða vanskilaskuldir.Einnig fylgdu með drög að samstarfssamningi á milli íþrótta- og æskulýðsráðs fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og Skíðafélags Dalvíkur, sbr. 39. fundur íþrótta- og æskulýðsráðs þann 11. október 2012.Til umræðu ofangreint og kynnt fjárhagsáætlun fyrir rekstur Skíðafélags Dalvíkur fram að áramótum 2012/2013 sem og fyrir árið 2013.Fram kom á fundinum að hægt er að lækka viðbótarstyrk samkvæmt tillögu að viðauka til Skíðafélagsins á árinu 2012 um kr. 1.350.000.Árni, Hildur Ösp, Sigurgeir, Birkir og Gerður viku af fundi.
2.
Kaup og sala á eignarhlutum á 2. og 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur; staða mála.
Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerðu bæjarráði grein fyrir þeirri stöðu sem upp er komin hvað varðar kaup Dalvíkurbyggðar á eignarhlutum meðeiganda í sameign á 3ju hæð.Fyrir liggur að Eining-Iðja hefur samþykkt kauptilboðið fyrir sitt leiti sem og Dalvíkurbyggð hefur samþykkt sölu á eignarhluta sínum í gangi á 2. hæð til Einingar-Iðju.Á 637. fundi bæjarráðs þann 4. október s.l. kom fram að stjórn Sparisjóðs Svarfdæla samþykkir kauptilboðið í eignarhluta sjóðsins í sameign á 3ju hæð gegn því að Dalvíkurbyggð kaupi geymslu í kjallara Ráðhúss. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 4. október s.l. að fara í viðræður við Sparisjóð Svarfdæla um möguleg kaup á geymslunni.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi svar Sölku-Fiskmiðlunar, rafbréf dagsett þann 18. október s.l., þar sem fram kemur að stjórn Sölku- Fiskmiðlunar hafnaði umræddu kauptilboði. Með fundarboði bæjarráðs fylgdi einnig drög að kaupsamningi frá fasteignasölunni Byggð, sbr. rafpóstur dagsettur þann 12. október 2012, á grundvelli þeirra kauptilboða sem lögð hafa verið fram og samþykkt af hálfu Dalvíkurbyggðar, en verðmat á eignarhlutunum var unnið af Byggð samkvæmt beiðni frá meðeigendum Dalvíkurbyggðar.Á fundinum var kynnt erindi frá Sölku-Fiskmiðlun sem barst í gær, 24.október, þar sem Dalvíkurbyggð er gert gagntilboð í sameignarhluta fyrirtækisins á 3ju hæð.Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerðu bæjarráði grein fyrir þeirri hugmynd sem fram er komin varðandi það að leysa eftirspurn eftir aukafundaherbergi fyrir Dalvíkurbyggð. Á fundinum var kynnt kostnaðaráætlun í tengslum við þær breytingar.
Þar sem tilboði Dalvíkurbyggðar í sameignarhluta á 3ju hæð hefur verið hafnað þá lítur bæjarráð svo á að það tilboð standi ekki lengur og að frekari fasteignaviðskipti fari í gegnum þann fasteignasala sem er með málið.
3.
Fjárhagsáætlun 2012; fjárhagsáætlunarlíkan; tillaga að viðauka.
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri kynntu helstu niðurstöður og forsendur tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2012.Rekstrarniðurstaða fyrir árið 2012 er áætluð kr. 49.650.000 fyrir A-og B-hluta.
Bæjarráð samþykkir tillögu að viðauka eins og hann liggur fyrir og vísar honum til afgreiðslu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
4.
Stjórnendaskóli Dalvíkurbyggðar; tillaga.
Með fundarboði fylgdi tillaga að Stjórnendaskóla Dalvíkurbyggðar og námsáætlun 2012-2014 frá Háskólanum á Bifröst, en hugmyndin hefur verið rædd og kynnt í framkvæmdastjórn og á samráðs- og upplýsingafundi stjórnenda.Um er að ræða 6 námskeið og vinnulotur og er heildarkostnaður áætlaður kr. 3.375.000 miðað vð 15 þátttakendur. Á fjárhagsáætlun 2012 er gert ráð fyrir kr. 500.000 vegna stjórnendafræðslu og sama upphæð er í tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun 2013.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda tillögu og samþykkir að bætt verði við kr. 1.150.000 við stjórnendafræðslu árið 2013.
5.
Fjárhagsáætlun 2013- (2016); fjárhagsáætlunarlíkan; tillaga.
Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynntu helstu forsendur og niðurstöður tillögu að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2013-2016.
a) Bæjarráð samþykkir að gerð verið 1% hagræðingarkrafa vegna fjárhagsársins 2013 og felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að gera breytingar á fjárhagsáætlun 2013-2016 í samræmi við það, þar sem verðbólguspá er lægri en gert var ráð fyrir þegar fjárhagsrammar voru settir í vor.b) Bæjarráð samþykkir að farið verði í vinnu á milli umræðna í bæjarstjórn þar sem farið verði yfir rekstur og starfsemi sveitarfélagsins með vinnuhópum.c) Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Dalvíkubyggðar 2013-2016 til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
7.
Frá Fjölís; Framlenging samnings milli Dalvíkurbyggðar og Fjölíss.
Tekið fyrir erindi frá Fjölís, bréf dagsett þann 9. október 2012, er varðar famlengingu milli Dalvíkurbyggðar og Fjölís.Fram kemur í erindinu að Fjölís vill bjóða Dalvíkurbyggð endurnýjun óbreytts samnings til árs eða þar til fyrir liggur rammasamningur sem gerður verður í samvinnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á komandi mánuðum eða um leið og niðurstöður samningaviðræðna við mennta- og fjármálaráðuneyti liggja fyrir. Fram kemur að samningurinn á milli Fjölís og Dalvíkurbyggðar er útrunninn og er öll ljósritun og hliðstæð eftirgerð á höfundarréttarvörðu efni í stjórnsýslu sveitarfélagsins því ólögmæt.
Afgreiðslu frestað.Bæjarráð felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um málið.
8.
Frá Vegamótum gistiþjónustu; Ósk um að eignast skúr á tjaldsvæði.
Tekið fyrir rafbréf frá Vegamótum Ferðaþjónustu, dagsett þann 17. október 2012, þar sem fram kemur að fyrirtækið hefur áhuga að eignast "nyðri skúrinn" á tjaldstæðinu á Dalvík.
Bæjarráð samþykkir að skúrar á tjaldsvæðinu verði auglýstir til sölu.
9.
Frá Ferðafélagi Svarfdæla; Ósk um afnot af gömlu skúrunum við tjaldsvæðið.
Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla, bréf dagsett þann 16. október 2012, þar sem fram kemur að félagið óskar eftir að fá til afnota gömlu skúrana sen nú eru nýttir sem salernisaðstaða þegar nýtt þjónustuhús við tjaldstæðið á Dalvik verður tekið í notkun.
Bæjarráð samþykkir að skúrar á tjaldsvæðinu verði auglýstir til sölu.
10.
Vegna landareignarinnar Lækjarbakki 1; vegur að Upsakirkjugarði og kapellu.
Á 633. fundi bæjarráðs þann 30. ágúst 2012 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Sigurði Haraldssyni, kt.190841-4489, og Þórir Haraldssyni, kt. 121047-4979, dagsett þann 13. ágúst 2012, þar sem fram kemur að með aukinni umferð vegna hundahalds og hugsanlegrar sumarhúsabyggðar er trjárækt eigenda á áreyrunum stefnt í hættu í auknu mæli. Þar sem bæjaryfirvöld Dalvíkurbyggðar hafi engan áhuga sýnt á að finna lausn á þessu neyðast bréfritarar að loka þessum vegaslóða á áreyrunum norðan Brimnesár. Ef Dalvíkurbyggð hefur eitthvað við þá niðurstöðu bréfritara að athuga þá er óskað eftir athugasemdum innan mánaðar frá dagsetningu þessa bréfs. Bæjarráð samþykkir að fela LEX ehf. lögmannastofu að svara erindinu fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela bæjarstjóra að senda Vegagerðinni afrit af ofangreindu erindi til upplýsingar.Upplýst var á fundinum að 3 bréf hafa borist sveitarfélaginu frá Sigurði og Þóri Haraldssonum og LEX lögmannastofa hefur sent 3 svarbréf fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og nú síðast dagsett 18. október.Með fundarboði bæjarráð fylgdi bréf frá LEX lögmannastofu fyrir hönd Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 18. október 2012, til Sigurðar Haraldssonar og Þóris Haraldssonar, er varðar veginn að Upsakirkjugarði og kapellu. Fram kemur m.a. að Dalvíkurbyggð ítrekar að sveitarfélagið hafnar því alfarið að Sigurður og Haraldur hafi heimild til að loka umferð um umræddan veg. Komi til slíkra aðgerða af þeirra hálfu mun Dalvíkurbyggð bregðast við því með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í 2. mgr. 47. grein vegalaga nr. 80/2007, þ.e. með því að fjarlægja óviðkomandi hluti eða muni af vegi á kostnað þeirra. Einnig er upplýst í bréfinu að lögreglunni á Dalvík hafa verið send afrit af bréfaskiptum aðila og hefur lögreglunni jafnframt verið gert kunnugt að óskað er liðsinnis hennar við að fjarlægja hindranir af veginum ef þörf krefur.
Lagt fram.
11.
Íbúakönnun vegna deiliskipulags í landi Upsa; niðurstaða.
Á 239. fundi bæjarstjórnar Dalvíkurbygðgar þann 11. október 2012 var eftirfarandi bókað og samþykkt:1. Bæjarráð samþykkir að könnun á viðhorfi íbúa Dalvíkurbyggðar til deiliskipulags/frístundabyggðar í landi Upsa, fari fram 20. október 2012.2. Niðurstaðan verður bindandi ef 66% kosningabærra íbúa taka þátt.3. Ein spurning verður á kjörseðli: Spurningin er: Vilt þú hafa frístundabyggð í landi Upsa samkvæmt samþykktu deiliskipulagi? Gefinn er kostur á að svara JÁ eða NEI. 4. Rétt til þátttöku í íbúakönnuninni hafa allir íbúar Dalvíkurbyggðar 18 ára og eldri á kjördag. skv. íbúaskrá þann dag.Niðurstaða íbúakönnunar 20. okt. sl. um frístundabyggð á deiliskipulagi í landi Upsa var eftirfarandi: 1368 voru á kjörskrá og greiddu 675 atkvæði eða um 49% íbúa 18 ára og eldri.Já sögðu 207, nei sögðu 450. Auðir seðlar voru 17 og 1 ógildur.Bæjarstjórn hafði sett þau mörk að kosningin yrði bindandi ef 66% íbúanna tæki þátt. Í kynningarbæklingi til íbúa fyrir atkvæðagreiðsluna kom einnig fram að annars yrði það mat bæjaryfirvalda hvað gert yrði með niðurstöðuna.
<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " IS? mso-fareast-language: Roman?; New ?Times mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; Times>Bæjarráð samþykkir að beina því til bæjarstjórnar að sú niðurstaða að um 33% íbúanna höfnuðu frístundabyggð samkvæmt samþykktu deiliskipulagi verði virt og skipulaginu breytt í samræmi við það. Jafnframt verði því beint til umhverfisráðs að fara yfir það hvort þessi breyting kalli á það að gerðar verði frekari breytingar á deiliskipulaginu. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></SPAN></P>
12.
Frá bæjarstjóra; 40 ára afmæli Friðlands Svarfdæla.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að það liggur fyrir að mánudaginn 5. nóvember n.k. verður afmælisfundur í Friðlandsnefndinni í tilefni af 40 ára afmæli Friðlands Svarfdæla.