Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

640. fundur
18. október 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2013-2016; framkvæmdir og fjárfestingar.
Málsnúmer 201210045
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit yfir framkvæmdir og fjárfestingar samkvæmt gildandi þriggja ára áætlun 2013-2015.Einnig fylgdi með fundarboði bæjarráðs upplýsingar frá umsjónarmanni fasteigna varðandi kostnað vegna endurbyggingar Ungó utanhúss sem og rafbréf frá slökkviliðsstjóra varðandi ósk um kaup á slöngulagnabíl árið 2014.Sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs kynnti tillögur landbúnaðarráðs og umhverfisráðs frá fundum þann 17. október s.l.Til umræðu framkvæmdir og fjárfestingar áranna 2013-2016.Á fundinum var unnið að framkvæmda- og fjárfestingaáætlun fyrir málaflokka 32, 42, 44, 48, 74 og gengið frá tillögu.Þorsteinn vék af fundi.
2.
Fjárhagsáætlun 2013; viðhald Eignasjóðs.
Málsnúmer 201210051
Á 639. fundi bæjarráðs þann 16. október s.l. var kynnt tillaga umhverfis- og tæknisviðs að viðhaldi Eignasjóðs 2013; alls kr. 41.250.000.Á fundi bæjarráðs var farið yfir ofangreinda tillögu.
Bæjarráð samþykkir að lækka viðhald við Kátakot um kr. 700.000 vegna girðingar.
3.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Forsendur fjárhagsáætlunar.
Málsnúmer 1210048
Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 16. október 2012, er varðar samantekt um forsendur fjárhagsáætlana 2013.
Bæjarráð samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar 2013-2016 verði notað í fjárhagsáætlunarlíkani spá um  3,9 % verðbólgu 2013.Bæjarráð telur að ofangreind samantekt Sambandsins sé spor í rétta átt.
4.
Afsláttur fasteignaskatts 2013 til tekjulágra elli - og örorkulífeyrisþega; tillaga að reglum.
Málsnúmer 201210043
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu gildandi reglur fyrir árið 2012 um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi breytingar á reglunum fyrir árið 2013:

3,90%

Var:

Verður:

Afsláttur:

49.839

51.783

Tekjutenging:

Einstaklingur

1.829.775

1.901.136

Hjón og sambýlisfólk

2.525.328

2.623.816

5.
Reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka 2013; tillaga að reglum.
Málsnúmer 201210044
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu gildandi reglur fyrir árið 2012 um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og skv. 7. gr. reglugerðar um fasteignaskatt nr. 1160/2005.Samkvæmt 8. gr. endurskoðar bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar þessar reglur eigi síðar en í desember ár hvert.
Bæjarráð samþykkir að reglurnar gildi áfram óbreyttar.
6.
Frá sóknarnefnd Upsakirkju, beiðni um gerð göngustígs frá Dalbæ að Dalvíkurkirkju 2013.
Málsnúmer 201209001
Á 635. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 13. september 2012 var tekið fyrir erindi frá sóknarnefnd Upsasóknar, bréf dagsett þann 30. ágúst 2012, þar sem nefndin óskar eftir því að gerður verði göngustígur frá Böggvisbraut á móts við kirkju og niður að Dalbæ. Bæjarráð vísaði ofangreindu erindi til umhverfisráðs.Samkvæmt tillögu umhverfisráðs að gatnagerðaframkvæmdum 2013, sbr. 1. liður hér að ofan, er ekki gert ráð fyrir ofangreindum stíg.
Bæjarráð samþykkir að ofangreindum stíg verði bætt við framkvæmdaáætlun 2013 og áætlaður kostnaður er um 2,8 m.kr.
7.
Frá Viktori Huga Júlíussyni og Helga Halldórssyni; Hjólabrettaaðstaða.
Málsnúmer 201209012
Jóhann Ólafsson vék af fundir undir þessum lið kl. 11:10.Á 635. fundi bæjarráðs þann 13. september 2012 var tekið fyrir erindi frá Viktori Huga Júlíussyni og Helga Halldórssyni, þar sem þeir óska eftir að kannaður verði möguleiki á að útbúa hjólabrettaaðstöðu fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar. Bæjarráð vísaði ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa til skoðunar og að hann taki saman upplýsingar um forsögu þessa mál og það sem áður hefur verið gert. Á fundinum var kynntur rafpóstur frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsettur þann 16. október 2012, þar sem fram kemur að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur aflað sér upplýsinga um verðhugmyndir og fleira. Hugmynd er um að koma upp brettaaðstöðu á milli Víkurrastar og Tónskólans en ekki liggur fyrir kostnaðaráætlun. Fram kemur einnig að eldri pöllum sem voru til á svæðinu var fargað þar sem þeir voru orðnir lélegir.
Lagt fram til kynningar.
8.
Frá fimleikadeild UMFS; Beiðni um styrk til áhaldakaupa 2013.
Málsnúmer 201209047
Á 635. fundi bæjarráðs var tekið fyrir erindi frá fimleikaráði UMFS, dagsett þann 10. september 2012, þar sem óskað er eftir styrkjum til áhaldakaupa fyrir ört stækkandi fimleikafélag. Bæjarráð vísaði erindinu til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og fól honum að afla nánari upplýsinga um erindiðMeð fundarboði bæjarráðs fylgdi bréf frá fimleikadeild UMFS, ódagsett og óundirritað, þar sem fram kemur eftirfarandi listi yfir þau áhöld sem þarf að fjárfesta í og er þeim raðað í forgangsröð. Fram kemur einnig áætlaður kostnaður:1. Hliðar og endakubbar á lendingardýnu fyrir trampólin, kr. 800.000 - kr. 900.000.2. Hestur fyrir trampólin, kr. 720.000.3. Barnastökkbretti, kr. 70.000-kr. 150.000.4. Trampólin, kr. 500.000.
Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 2.000.000, vísað á deild 06-80 árið 2013.
9.
Frá Húsabakka ehf; Fjárhagsáætlun 2013; viðhald á Húsabakka.
Málsnúmer 1208039
Á 635. fundi bæjarráðs þann 13. september 2012 var tekið fyrir erindi frá Húsabakka ehf., dagsett þann 27. ágúst 2012, þar sem minnt er á nauðsynlegar framkvæmdir og viðhald á Húsabakka. Bæjarráð vísaði ofangreindu erindi til Eignasjóðs til skoðunar.Samkvæmt tillögu Eignasjóðs að viðhaldi árið 2013, sbr. 2. liður hér að ofan, þá er gert ráð fyrir kr. 3.250.000 til að mála húsin að utan og til að mála þök.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda tillögu.
10.
Fjárhagsáætlun 2013; beiðnir um búnaðarkaup/nýkaup.
Málsnúmer 201210047
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi samantekt sviðstjóra fjármála -og stjórnsýslusviðs hvað varðar beiðnir frá stjórnendum um búnaðarkaup/ nýkaup á árinu 2013 sem færu í gegnum rekstur, alls kr. 13.020.000.
Bæjarráð samþykkir listann eins og hann liggur fyrir, enda rúmast hann innan fjárhagsramma,  með þeim breytingum að bætt er við búnaðarkaup í Árskógi um kr. 300.000 þannig að heimildin verður kr. 500.000.Einnig er veitt heimild fyrir íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að kaupa skrifborðsstól fyrir deild 06-02 en fundið verður kostnaður á móti til að skera niður.
11.
Fjárhagsáætlun 2013-2016; breytingar í rekstri 2014-2016.
Málsnúmer 201210046
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi samantekt sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs yfir mögulegar breytingar í rekstri og fjárfestingum árin 2014-2016 samkvæmt starfsáætlunum og upplýsingum frá stjórnendum.
Bæjarráð samþykkir að engar breytingar verði gerðar á rekstraráætlun  2014-2016 miðað við fyrirliggjandi gögn og upplýsingar.
12.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Beiðni um aukafjárveitingu við fjárhagsramma 2013 deildar 06-27.
Málsnúmer 201209083
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, og Jóni Arnari Sverrissyni, bréf dagsett þann 17. október 2012, þar sem óskað er eftir viðbót við fjárhagsramma vinnuskóla, deild 06-27, að upphæð kr. 1.784.000 til þess að svigrúm sé m.a. til hækkunar á launum nemenda Vinnuskólans. Fjárhagsrammi Vinnuskóla yrði því kr. 18.548.000.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda beiðni um aukningu við fjárhagsramma Vinnuskólans.
13.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Beiðni um aukafjárveitingu við fjárhagsramma 2013 vegna málaflokks 11.
Málsnúmer 201209084
Tekið fyrir erindi frá Þorsteini K. Björnssyni, sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, og Jóni Arnari Sverrissyni, garðyrkjustjóra, bréf dagsett þann 17. október 2012, þar sem óskað er eftir viðbót við fjárhagsramma málaflokks 11 að upphæð kr. 306.000 sem er m.a. vegna þátttöku Dalvíkurbyggðar í eyðingu minka á Eyfjarðarsvæðinu undir stjórn AFE.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda beiðni um aukningu við fjárhagsramma málaflokks 11.
14.
Fjárhagsáætlun 2013; beiðni um viðbót við fjárhagsramma Dalvíkurskóla vegna búnaðarkaupa.
Málsnúmer 201210050
Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, bréf dagsett þan 14. september 2012, þar sem óskað er eftir viðbót við fjárhagsramma að upphæð kr. 2.600.000 vegna endurnýjunar á kennsluhúsgögnum í yngri deild skólans fyrir eina kennslustofu. Fram kemur að nauðsynlegt sé að hefja endurnýjunarferli nú og kaupa húsgögn í eina kennslustofu á ári næstu þrjú til fjögur árin.
Bæjarráð hafnar ofangreindu erindi með 2 atkvæðum, Valdís Guðbrandsdóttir situr hjá vegna vanhæfis.
15.
Frá Flokkun Eyjafjörður ehf.; Gjald Flokkunar 2013.
Málsnúmer 201210021
Tekið fyrir erindi frá Flokkun Eyjafjörður ehf., bréf dagsett þann 5. október 2012, þar sem fram kemur að stjórn Flokkunar ákvað á fundi sínum þann 4. október 2012 að upphæð þjónustugjalds vegna reksturs Flokkun Eyjafjörður ehf. fyrir árið 2013. Fyrirhuguð upphæð gjaldsins verður 450,- kr. á íbúa sveitarfélagsins.Í tillögu umhverfis- og tæknisviðs að fjárhagsáætluln 2013 er gert ráð fyrir kr. 840.000 vegna þessa í málaflokki 08.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda tillögu.
16.
Fjárhagsáætlun 2013- (2016).
Málsnúmer 201204042
a) Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynntu tillögu að áætlun málaflokks 00; skatttekjur og þær forsendur sem liggja þar að baki.
a)  Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda tillögu og þær forsendur sem liggja að baki.b)  Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að útsvarsprósenta verið óbreytt eða 14,48%.c)  Bæjarráð samþykkir styrk til Skíðafélags Dalvíkur að upphæð kr. 2.000.000 vegna ársins 2013 vegna öryggismála, vísað á deild 06-80.