Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
639. fundur
16. október 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Íbúakönnun þann 20. október n.k. vegna deiliskipulags í landi Upsa; ákvörðun um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að fyrirkomulagi vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna íbúakönnunar.Lagt er til að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna íbúakönnunar fram að 20. október n.k. verði á bæjarskrifstofunni, þjónustuveri, á opnunartíma bæjarskrifstofu frá kl. 10 - kl. 15 frá og með 16. október 2012.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda tillögu samhljóða með 3 atkvæðum.