Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

637. fundur
4. október 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Marinó Þorsteinsson Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2013; Beiðni um breytingu á stöðugildi upplýsingafulltrúa.
Málsnúmer 201209085
Á 636. fundi bæjarráðs þann 25. september s.l. var tekið fyrir minnisblað til bæjarráðs frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 21. september 2012, þar sem óskað er eftir heimild til þess að hækka stöðugildi upplýsingafulltrúa úr 50% í 100% frá 1. janúar 2013, í samræmi við tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun 2013.Einnig er óskað eftir viðbót við fjárhagsramma málaflokks 21 fyrir árið 2013 að upphæð kr. 3.737.000. Bæjarráð frestaði afgreiðslu til næsta fundar þar sem fundur í atvinnumálanefnd var þennan sama dag en á dagskrá atvinnumálanefndar var starf atvinnufulltrúa.Niðurstaða atvinnumálanefndar var að nefndin hefur áhuga á að nýta sér þjónustu upplýsingafulltrúa ef niðurstaðan verður sú að starfið verður stækkað í heila stöðu. Jafnframt samþykkti nefndin að ef af því verður taki starfslýsing einnig mið af þörfum atvinnumálanefndar.
Bæjarráð samþykkir að stöðugildi upplýsingafulltrúa verði hækkað úr 50% í 100% og felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra að yfirfara starfslýsingu upplýsingafulltrúi með bókun atvinnumálanefndar til hliðsjónar.
2.
Frá Sparisjóði Svarfdæla,varðar kaup og sölu á eignarhlutum í Ráðhúsi Dalvíkur.
Málsnúmer 201112006
Tekið fyrir erindi frá sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Svarfdæla, rafpóstur dagsettur þann 2. október 2012, þar sem fram kemur að á stjórnarfundi þann 26. september 2012 tók stjórn Sparisjóðs Svarfdæla fyrir kauptilboð Dalvíkurbyggðar í eignarhluta sjóðsins í sameign á 3. hæð Ráðhúss. Sparisjóðsstjóra var falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.Fyrir hönd Sparisjóðs Svarfdæla þá óskar sparisjóðsstjóri eftir að Dalvíkurbyggð kaupi geymslu í kjallara af Sparisjóðnum sem er um 16,2 m2 á sama fermetraverði og notuð hefur verið í öðrum viðskiptum um eignarhluta í Ráðhúsinu. Gangi það eftir og bæjarráð taki jákvætt í þau kaup, þá myndi núverandi kauptilboð í 3. hæð vera samþykkt eins og það liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í viðræður við Sparisjóð Svarfdæla um möguleg kaup Dalvíkurbyggðar á geymslu í kjallara.Fundi frestað kl. 12:17 til þriðjudagsins 9. október n.k.
3.
Álagning fasteignaskatts og þjónustugjalda 2013.
Málsnúmer 201208029
Fundi bæjarráðs frá 4. október sem frestað var kl. 12:17 haldið áfram þriðjudaginn 9. október 2012 kl. 8:15.Mættir; Kristján E. Hjartarson, Marinó Þorsteinsson, Björn Snorrason, Jóhann Ólafsson.Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Á 633. fundi bæjarráðs þann 30. ágúst s.l. var til umræðu álagning fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2013. Á fundinum var farið yfir ýmsar hugmyndir tengt ofangreindu og möguleg áhrif þeirra.Á 230. fundi umhverfisráðs þann 19. september s.l. var fjárhagsáætlun 2013 til umfjöllunar og eftirfarandi bókað m.a.:Umhverfisráð samþykkir að gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkur taki breytingum á byggingarvísitölu okt. 2011 til sept. 2012 sem er um 3,14%.Sorphirðugjald verði fyrir árið 2013 kr. 31.400,- en á árinu 2012 er gjaldið kr. 27.400Á fundinum var farið yfir ýmsar forsendur varðandi álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2013.Þorsteinn vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir að tillögu verði stillt upp í samræmi við ofangreinda yfirferð sem lögð verði fyrir bæjarráð.
4.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Dalbæ; Ósk um fjárveitingu til félags- og leiðbeiningarstarfs á Dalbæ.
Málsnúmer 201209038
Á 635. fundi bæjarráðs þann 13. september 2012 var tekið fyrir erindi frá stjórn Dalbæjar, dagsett þann 6. september 2012, þar sem óskað er eftir framlagi að upphæð kr. 5.000.000 til félags- og leiðbeiningarstarfs á Dalbæ, sem opið er öllum íbúum Dalvíkurbyggðar. Bæjarráð vísaði erindinu til félagsmálaráðs.Á 162. fundi félagsmálaráðs var ofangreint erindi tekið fyrir og ákveðið var að fresta afgreiðslu til næsta fundar. Samkvæmt tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 02 er gert ráð fyrir styrk að upphæð kr. 3.000.000.




Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu félagsmálaráðs.
5.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Dalbæ; Ósk um styrk vegna þjónustusamnings.
Málsnúmer 201209039
Á 635. fundi bæjarráðs þann 13. september 2012 var tekið fyrir erindi frá stjórn Dalbæjar, dagsett þann 6. september 2012, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 2.000.000 á móti þjónustusamningi milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar um bókhalds- og launavinnslu. Bæjarráð vísaði erindinu til félagsmálaráðs.Á 162. fundi félagsmálaráðs var erindið tekið fyrir og því hafnað.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu félagsmálaráðs og hafnar erindinu.
6.
Frá innanríkisráðuneytinu; Fyrirspurn um málstefnu sveitarfélaga skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
Málsnúmer 201209090
Tekið fyrir erindi frá innanríkisráðuneytinu, bréf dagsett þann 21. september 2012, þar sem fram kemur að fyrirspurn hefur borist frá Alþingi til innanríkisráðherra um málstefnu í sveitarfélögum. Samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 skulu sveitarstjórnir móta sveitarfélaginu málstefnu í samráði við Íslenska málefnd og eftir atvikum málnefnd um íslenskt táknmál. Með bréfi þessu er óskað upplýsinga um frá öllum sveitarfélögum, hvort og þá með hvaða hætti þau hafa uppfyllt lagaákvæðið.
Dalvíkurbyggð hefur ekki sett sér málstefnu enn og væntir fyrirmynd að málstefnu frá ríkinu.
7.
Frá nefndasviði Alþingis; 180. mál til umsagnar, um kosningar Alþingis - og til sveitastjórna.
Málsnúmer 201210003
Tekið fyrir rafbréf frá nefndasviði Alþingis, dagsett þann 28. september 2012, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna (aðstoð við atkvæðagreiðslu), 180. mál. Óskað er að undirrituð umsögn berist eigi síðar en föstudaginn 5. október n.k.
Lagt fram.
8.
Frá Varasjóði húsnæðismála: Úthlutun framlaga vegna sölu á: Öldugötu 17, Lokastíg 1, Skógarhólum 23c.
Málsnúmer 201210005
Tekið fyrir bréf frá Varasjóði húsnæðismála, bréf dagsett þann 27.september 2012,þar sem fram kemur að Dalvíkurbyggð hefur fengið úthlutað kr. 806.907 vegna sölu á Öldugötu 17, Lokastíg 1 og Skógarhólum 23 C.
Lagt fram.
9.
Íbúakosning um deiliskipulag að Upsum þann 20. október n.k.; undirbúningur.
Málsnúmer 201205069
Á 238. fundi bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 18. september 2012 var samþykkt tillaga vegna íbúakosningar um deiliskipulag að Upsum og samþykkt jafnframt að íbúakosninginn fari fram samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október n.k.Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi hvað varðar ofangreint og kynnti drög að kynningarefni.
Lagt fram.
10.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október n.k.; kjörskrá.
Málsnúmer 201209052
Á 238. fundi bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 18. september 2012 samþykkti bæjarstjórn fullnaðarumboð til bæjarráðs til þess að gagna frá kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu.Á fundi bæjarráðs var lögð fram kjörskrá vegna ofangreindrar atkvæðagreiðslu frá Þjóðskrá Íslands. Á kjörskrá eru 1.308.


Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við kjörskrána.
11.
Frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu:Sundskáli Svarfdæla.
Málsnúmer 1108055
Tekið fyrir svarbréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, bréf dagsett þann 25. september 2012, þar sem vísað er til erindis bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar frá 20. október 2011, þar sem óskað er eftir undanþágu frá ákvæðum um laugargæslu, sbr. 2. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, fyrir Sundskála Svarfdæla.Að fengnum umsögnum og á grundvelli 1. mgr. 7. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir fellst ráðuneytið ekki á að veita undanþágu frá ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 814/2010 þannig að hægt verði að leiga út Sundskála Svarfdæla án laugagæslu, þar sem ráðuneytið líti svo á að laugargæsla sé grundvallar öryggisatriði varðandi rekstur sundlauga sem ekki er hægt að falla frá. Ráðuneytið hvetur Dalvíkurbyggð að skoða hvort að sveitarfélagið geti nýtt sér ákvæði 3. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar eins og hún er nú eftir breytingar og hvort það veiti ekki aukið svigrúm hvað varðar rekstur Sundskála Svarfdæla.
Bæjarráð samþykkir að fela íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að kanna sem allra fyrst hvaða leiðir eru færar til þess að koma Sundskála Svarfdæla í notkun á ný.
12.
Frá Sýslumanninum á Akureyri;Fosshótel - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.
Málsnúmer 201209089
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Akureyri, bréf dagsett þann 18. september 2012, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fosshótela ehf. kt. 530396-2239, um rekstrarleyfi samkvæmt gististaðaflokki V en um er að ræða Fosshótel Dalvík Skíðabraut 18, 620. Dalvík.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.