Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
636. fundur
25. september 2012
kl.
08:15
-
10:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Guðmundur St. Jónsson
Varamaður
Óskar Óskarsson
Varamaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2012.
Tekið fyrir erindi frá EBÍ, bréf dagsett þann 13. september 2012, þar sem fram kemur að hlutdeild Dalvíkurbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,684% og greiðsla ársins þann 15. október n.k. verður þá hlutfall af kr. 100 milljónum eða kr. 1.684.000.Í fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2012 er ekki gert ráð fyrir ágóðahlutagreiðslu EBÍ þar sem ekkert var greitt út árið 2011.
Lagt fram.
2.
Frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands: Styrktarsjóður EBÍ 2012, afgreiðsla umsóknar.
Tekið fyrir erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dagsett þann 17. september 2012, þar sem fram kemur að ekki reyndist unnt að þessu sinni að veita styrk til Dalvíkurbyggðar vegna verkefnsins " Útivist og samfélag". Fram kemur að á fundi stjórnar EBÍ þann 7. september s.l. voru samþykktar styrkveitingar til 12 aðila, samtals að upphæð 4,0 milljónir króna.
Lagt fram.
3.
Frá Enor ehf.; Endurskoðun og tengd þjónusta.
Tekið fyrir bréf frá Enor ehf, bréf dagsett þann 12. september 2012, þar sem vakin er athygli bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar á félaginu og þeirri þjónustu sem Enor hefur upp á að bjóða. Fram kemur m.a. að Enor var sett á laggirnar á Akureyri í byrjun júní 2012 og er fyrirtæki á sviði endurskoðunar og tengdrar sérfræðiþjónustu.
Lagt fram.
4.
Frá Svavari Kjarrval Lútherssyni; Erindi um málefni OpenStreetMap.
Tekið fyrir erindi frá Svavari Kjarrval Lútherssyni, bréf dagsett þann 6. september 2012, sem er einn af sjálfboðaliðum alþjóðlega verkefnisins OpenStreetMap sem heldur úti vefnum openstreetmap.org. Verkefnið snýst einfaldlega um það að kortleggja allan heiminn og veita frjálsan aðgang að kortagögnum án endurgjalds. Fram kemur m.a. að ástæða þessa erindis er að sveitarfélagið býr yfir miklu magni upplýsinga sem hægt er að nota til að bæta kortið.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og tæknisviðs til skoðunar.
5.
Frá sjálfboðaliðum í Kenýja; Hjúkrun í Kenýja.
Tekið fyrir erindi frá 8 sjálfboðaliðum, rafpóstur dagsettur þann 14. september 2012, sem er átta kvennahópur blandaður af hjúkrunarfræði- og sjúkraliðanemum sem óska eftir styrk til þess að fara til Kenya í maí 2013 í 2 vikur til þess að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi á vegum samtakanna Kenya Project.kenya-project.org.
Bæjarráð hafnar erindinu.
6.
Viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar, endurskoðun fyrri ákvörðunar.
Á 627. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 24. maí 2012 var viðskipabanki sveitarfélagsins til umfjöllunar þar sem fyrir lá að Landsbankinn hafði fest kaup á Sparisjóðnum og fyrirhugað var að Landsbankinn yrði með starfsemi á Dalvík. Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að Landsbankinn á Dalvík yrði viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar þegar breytingarnar hafa átt sér stað.Ofangreind afgreiðsla bæjarráðs var staðfest á fundi bæjarstjórnar þann 19. júní 2012.Nú liggur fyrir samkvæmt upplýsingum úr fjölmiðlum að Landsbankinn hefur fallið frá kaupum á Sparisjóði Svarfdæla og mun sjóðurinn því starfa sjálfsætt áfram.
Bæjarráð leggur til að Sparisjóður Svarfdæla verði áfram viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar þar til annað verður ákveðið.
7.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá umhverfis- og tæknisviði; Beiðni um aukafjárveitingu við fjárhagsramma 2013 deildar 06-27.
Tekið fyrir erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs og garðyrkjustjóra, bréf dagsett þann 18. september 2012, þar sem óskað er eftir hækkun við fjárhagsramma vinnuskóla 2013 að upphæð kr. 2.533.000 þar sem a) ekki hafi verið gengið út frá réttum forsendum þegar málaflokki 06 var skipt niður á deildir og b) svo að hægt sé að hækka laun í Vinnuskólanum.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
8.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá umhverfis- og tæknisviði; Beiðni um aukafjárveitingu við fjárhagsramma 2013 vegna málaflokks 11.
Tekið fyrir erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs og garðyrkjustjóra, bréf dagsett þann 18. september 2012, þar sem óskað er eftir hækkun á fjárhagsramma málaflokks 11; umhverfismál, um kr. 150.000 vegna þátttöku Dalvíkurbyggðar í eyðingu minka á Eyjafjarðarsvæðinu undir stjórn AFE.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
9.
Frá sóknarnefnd Upsasóknar; Beiðni um styrk til niðurgreiðslu á fasteignagjöldum.
Á 635. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 13. september 2012 var tekið fyrir erindi frá sóknarnefnd Upsasóknar, bréf dagsett þann 7. september 2012, þar sem óskað er eftir styrk vegna fasteignagjalda af Dalvíkurkirkju á árinu 2013.Bæjarráð samþykkti að leitað yrði upplýsinga um hver álagning fasteignagjalda er annars vegar á Dalvíkurkirkju og hins vegar á safnaðarheimili.Með fundarboði bæjarráðs fylgdu upplýsingar varðandi álagningu fasteignagjalda 2012 á Dalvíkurkirkju og Safnaðarheimili og Kirkjugarðshús.Álagt vatnsgjald á Dalvíkurkirkju er kr. 151.498 miðað við 65,7% hlutfall ef Kirkjuhvoll er tekið með.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu menningarráðs að starfs- og fjárhagsáætlun 2013 þar sem lagt er til styrk á móti fasteignagjöldum til Dalvikurkirkju að upphæð kr. 200.000.
10.
Trúnaðarmál
Tekið fyrir minnisblað til bæjarráðs frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 21. september 2012, þar sem óskað er eftir heimild til þess að hækka stöðugildi upplýsingafulltrúa úr 50% í 100% frá 1. janúar 2013, í samræmi við tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun 2013.Einnig er óskað eftir viðbót við fjárhagsramma málaflokks 21 fyrir árið 2013 að upphæð kr. 3.737.000.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar þar sem fundur atvinnumálanefndar er í dag.
11.
Trúnaðarmál
Tekið fyrir minnisblað til bæjarráðs frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 21. september 2012, þar sem óskað er eftir heimild til þess að kaupa og innleiða OneContract samningakerfi en svigrúm er fyrir því innan fjárhagsramma bæjarskrifstofu 2012, lykill 21-40-2850.
Bæjarráð veitir heimild fyrir ofangreindu.
12.
Frá 238. fundi bæjarstjórnar: Tillaga forseta bæjarstjórnar er varðar gjaldskrár.
Á 238. fundi bæjarstjórnar þann 18. september 2012 var eftirfarandi bókað:5. 1207002F - Íþrótta- og æskulýðsráð - 38, frá 11.09.2012. 5.1. 201208036 - Gjaldskár fræðslu- og menningarsviðs 2013 Til máls tóku:Guðmundur St. Jónsson, sem óskar eftir að fært verði til bókar að hann óskar eftir að tekið verði til umræðu í bæjarráði hvort ekki sé eðlilegt að gera ráð fyrir almennt í gjaldskrám sveitarfélagsins að þær taki hækkunum á milli ára samkvæmt breytingu á vísitölu. Ef gjaldskrár standi í stað á milli ára sé um raunlækkun að ræða..
Bæjarráð tekur undir ofangreint og leggur til að gjaldskrár sveitarfélagsins taki framvegis breytingum samkvæmt vísitölu, nema að annað sé sérstaklega ákveðið.