Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
635. fundur
13. september 2012
kl.
12:30
-
14:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Marinó Þorsteinsson
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012.
Tekið fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett þann 3. september 2012, þar sem fram kemur að ársfundur sjóðsins 2012 verður haldinn miðvikudaginn 26. september n.k. á Hilton Hótel Nordica og hefst hann kl. 16:00.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri sitji fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
2.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignatekna 2012.
Tekið fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett þann 30. ágúst 2012, þar sem fram kemur uppgör á framlagi til Dalvíkurbyggðar vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2012.Upplýsingar úr Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts hjá viðkomandi sveitarfélögum eru lagðar til grundvallar að útreikningi framlagsins og tillögu ráðgjafanefndar. Að teknu tilliti til þess fjármagns sem nú liggur fyrir til ráðstöfnunar er úthlutað framlag til Dalvíkurbyggðar 2012 kr. 54.809.062. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2012 er gert ráð fyrir kr. 56.103.000.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá fjárlaganefnd Alþingis; Fundir með fjárlaganefnd haustið 2012.
Tekið fyrir bréf frá fjárlaganefnd Alþingis, dagsett þann 3. september 2012, þar sem fram kemur að nefndin býður fulltrúum sveitarfélaga og/eða landshlutasamtaka þeirra til viðtals í október um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarpa 2013.
Lagt fram til kynningar.
4.
Frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu;Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013.
Tekið fyrir erindi frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, bréf dagsett þann 10. september 2012, er varðar auglýsingu umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013. Bæjar- og sveitarstjórnum er gefinn kostur á að sækja um byggðakvóta til og með 28. september 2012.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um byggðakvóta samkvæmt ofangreindu og felur bæjarstjóra að senda inn umsókn.
5.
Frá EBÍ; Styrktarsjóður EBÍ 2012; umsókn Dalvíkurbyggðar.
Á 628. fundi bæjarráðs þann 7. júní 2012 var tekið fyrir erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dagsett þann 22. maí 2012, þar sem fram kemur að nú getur hvert sveitarfélag aðeins sent inn eina umsókn um styrk úr Styrktarsjóði EBÍ.Umsóknir skulu vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna og skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði fyrir ágústlok n.k.Bæjarráð vísaði erindinu til umfjöllunar í framkvæmdastjórn.Framkvæmdastjórn fól uppýsingafulltrúa, garðyrkjustjóra og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að senda inn umsókn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og er hún meðfylgjandi fundarboði bæjarráðs.Um er að ræða umsókn vegna verkefnis um átak til að bæta aðgengi íbúa og ferðamanna að útivistarmöguleikum í Dalvíkurbyggð. Unnið er út frá því að kortleggja, merkja og búa til upplýsingar um gönguleiðir, hjólreiðarmöguleika, skokkleiðir og reiðleiðir. Gert er ráð fyrir að verkefnið nái yfir árin 2012-2014.
Lagt fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Dalbæ; Ósk um styrk vegna þjónustusamnings.
Tekið fyrir erindi frá stjórn Dalbæjar, dagsett þann 6. september 2012, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 2.000.000 á móti þjónustusamningi á milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar um bókhalds- og launavinnslu.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálaráðs.
7.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Dalbæ; Ósk um fjárveitingu til félags- og leiðbeiningarstarfs á Dalbæ.
Tekið fyrir erindi frá stjórn Dalbæjar, dagsett þann 6. september 2012, þar sem óskað er eftir framlagi að upphæð kr. 5.000.000 til félags- og leiðbeiningarstarfs á Dalbæ, sem opið er öllum íbúum Dalvíkurbyggðar.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálaráðs.
8.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Dalvíkurkirkju; Beiðni um styrk til niðurgreiðslu á fasteignagjöldum.
Tekið fyrir erindi frá sóknarnefnd Upsasóknar, bréf dagsett þann 7. september 2012, þar sem óskað er eftir styrk vegna fasteignagjalda af Dalvíkurkirkju á árinu 2013.Samkvæmt upplýsingum frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs er gert ráð fyrir styrk að upphæð kr. 200.000, sbr. fyrri ár, í tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 05.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði upplýsinga um hver álagning fasteignagjalda er annars vegnar á Dalvíkurkirkju og hins vegar á safnaðarheimili.
9.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Golfklúbbnum Hamar; beiðni um styrk vegna golfævintýris.
Jóhann Ólafsson kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 12:45.Tekið fyrir erindi frá barna- og unglingaráði GHD, bréf dagsett þann 10. september 2012, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 100.000 vegna Golfævintýris 2013 sem gert er ráð fyrir að halda í Svarfaðardal frá 13. - 16. júní 2013.Á 38. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 11. september s.l. var ofangreint erindi tekið fyrir og samþykkt að vísa umsókninni til afgreiðslu afreks- og styrkarsjóðs 2012 sem úthlutað verður úr í desember n.k.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs.
10.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá þrýstihóp um gervigrasvöll; Gervigrasvöll á Dalvík sumarið 2013.
Tekið fyrir erindi frá þrýstihópi um gervigrasvöll á Dalvík sumarið 2013, bréf dagsett þann 9. september 2012, þar sem fram kemur að stofnaður hefur verið hópur fólks til að knýja á um úrbætur í vallarmálum fyrir fótboltaiðkendur í Dalvíkurbyggð. Markmið hópsins er að vinna að því öllum árum að settur verði gervigrasvöllur á æfingarsvæðið á Dalvík og að hann verði kominn í gagnið sumarið 2013. Fer þrýstihópurinn fram á að Dalvíkurbyggð setji gervigrasvöll á fjárhags- og framkvæmdaráætlun ársins 2013.Ofangreind erindi var tekið fyrir á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 11. september s.l. og eftirfarandi var bókað:"Íþrótta- og æskulýðsráð er jákvætt fyrir uppbyggingu gervigrasvallar enda komi slík framkvæmd ekki einungis knattspyrnuiðkendum til góða heldur öllum íbúum sveitarfélagsins þar sem tækifæri gefst að stunda á upphituðum velli. Hins vegar minnir ráðið á að U.M.F.S. er eigandi svæðisins og horfir ráðið því til að koma með styrk til félagsins sem hlutfall af kostnaði og beri félagið ábyrgð á að fjármagna verkefnið að fullu og rekstrarkostnaði í framhaldinu.Íþrótta- og æskulýðsráð óskar jafnframt eftir að bæjarráð boði ráðið og þrýstihópinn á fund sinn þar sem þessi hugmynd sem og aðrar verða ræddar. Fyrir þann fund óskar ráðið eftir að þrýstihópurinn vinni grófa kostnaðaráætlun og skoði möguleikann á styrkjum í samráði við íþrótta- og æskulýðsfulltrúa."
Bæjarráð samþykkir ofangreinda beiðni íþrótta- og æskulýðsráðs um fund með bæjarráði.
11.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá sóknarnefnd Upsasóknar; beiðni um gerð göngustígs frá Dalbæ að Dalvíkurkirkju.
Tekið fyrir erindi frá sóknarnefnd Upsasóknar, bréf dagsett þann 30. ágúst 2012, þar sem nefndin óskar eftir því að gerður verði göngustígur frá Böggvisbraut á móts við kirkju og niður að Dalbæ.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til umhverfisráðs.
12.
Fjárhagsáætlun 2013; Beiðni um hjólabrettaaðstöðu.
Tekið fyrir erindi frá Viktori Huga Júlíussyni og Helga Halldórssyni, þar sem þeir óska eftir að kannaður verði möguleiki á að útbúa hjólabrettaaðstöðu fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa til skoðunar og að hann taki saman upplýsingar um forsögu þessa mál og það sem áður hefur verið gert.
13.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá UMSE; Ósk um rekstrarstyrk vegna 2013.
Tekið fyrir erindi frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar, dagsett þann 5. september 2012, þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk frá sveitarfélaginu vegna ársins 2013 og jafnframt að styrkurinn verði hækkaður frá fyrra ári vegna aukins reksrarskostnaðar UMSE.Ofangreint erindi var tekið fyrir á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 11. september s.l. Bókað var að á síðasta fundi ráðsins var tekin fyrir beiðni frá UMSE um rekstrarsamning við félagið og var íþrótta- og æskulýðsráð jákvætt gagnvart slíkum samningi. Síðan hefur lítið gerst en gert er ráð fyrir að styrkja félagið áfram á næsta ári og gera á næstu mánuðum samning til tveggja ára.Samkvæmt tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun 2013 fyrir málaflokk 06 þá er gert ráð fyrir styrk að upphæð kr. 1.100.000 til UMSE.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda tillögu.
14.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá fimleikadeild UMFS; Beiðni um styrk til áhaldakaupa.
Tekið fyrir erindi frá fimleikaráði UMFS, dagsett þann 10. september 2012, þar sem óskað er eftir styrkjum til áhaldakaupa fyrir ört stækkandi fimleikafélag.
Bæjarráð vísar erindinu til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og felur honum að afla nánari upplýsinga um erindið.
15.
Fjárhagsáætlun 2013; Frá Húsabakka ehf.; viðhald á Húsabakka.
Tekið fyrir erindi frá Húsabakka ehf., dagsett þann 27. ágúst 2012, þar sem minnt er á nauðsynlegar framkvæmdir og viðhald á Húsabakka.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til Eignasjóðs til skoðunar
16.
Gjafareglur samkvæmt starfsmannastefnu/starfsmannahandbók-tillaga frá stjórnendum.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi tillaga frá upplýsinga- og samráðsfundi stjórnenda, frá 3. september s.l., að breytingu á gjafareglum sem er hluti af starfsmannastefnu og starfsmannahandbók. Breytingin undir liðnum starfslokagjafir, sbr. umfjöllun um forsendur vegna fjárhagsáætlunar 2013.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu eins og hún liggur fyrir.
17.
Deiliskipulag við Upsa; Íbúakosning-tillaga.
Á 634. fundi bæjarráðs var til umfjöllunar minnisblað bæjarstjóra, dagsett þann 4. september 2012, þar sem velt var upp þeim ákvörðunum sem þarf að taka varðandi íbúakosningu um deiliskipulagið að Upsum og var afgreiðslu frestað til næsta fundar.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi eftirfarandi tillaga:1. Bæjarráð samþykkir að íbúakosning, skv. 108. gr.sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, vegnadeiliskipulags að Upsum, verði 20. október 2012.2. Kosningarnar verða bindandi ef 66% kosningabærraíbúa taka þátt.3. Ein spurning verður á kjörseðli og val um já eða nei við henni.Spurningin er: Vilt þú að frístundabyggðin verði felldút af deiliskipulagi að Upsum.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar.
18.
Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga-drög.
Tekið fyrir erindi frá bæjarstjórum í Dalvíkurbyggð, Snæfellsbæ, Vestmannaeyjum, Grindavík og Fjallabyggð þar sem fram kemur að undanfarna mánuði hafa undirrituð verið að skoða möguleika þess að til yrðu samtök sjávarútvegssveitarfélaga. Fyrirmyndin eru Samtök orkusveitarfélaga og tilefnið þær breytingar sem verið er að gera á umgjörð sjávarútvegsins.Fram kemur að meðfylgjandi eru drög að samþykktum fyrir svona samtök og drög að gjaldskrá en í því skjali kemur einnig fram hvaða sveitarfélög fá þetta bréf.Framhaldið yrði stofnfundur samtakanna 26. september n.k. í framhaldi af aðalfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á Hótel Nordica. Þegar nær dregur verður sent út fundarboð vegna stofnfundar en þangað til væri gott að heyra hvort áhugi er fyrir hendi og um þau gögn sem fylgja þessu bréfi.
Bæjarráð samþykkir að Dalvíkurbyggð gerðist stofnaðili að ofangreindum samtökum og felur bæjarstjóra að fara með umboð sveitarfélagsins á stofnfundi.
19.
Kaup og sala á eignarhlutum á 2. og 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur.
Á 634. fundi bæjarráðs Dalvikurbyggðar þann 30. ágúst 2012 samþykkti bæjarráð að veita bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs heimild til þess að vinna áfram að ofangreindu máli um kaup og sölu á eignarhlutum á 2. og 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur og á þeim forsendum sem liggja fyrir, með fyrirvara um samþykki bæjarráðs/bæjarstjórnar.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi frá fasteignasölunni Byggð:a) Kauptilboð frá Einingu-Iðju, dagsett þann 12.09.2012, í eignarhluta Dalvíkurbyggðar á 2. hæð að upphæð kr. 805.620.b) Drög að kauptilboði, dagsett þann 12.09.2012, frá Dalvíkurbyggð til Sparisjóðs Svarfdæla, Einingar-Iðju og Sölku-Fiskmiðlun um kaup Dalvíkurbyggðar á eignarhluta meðeiganda í sameign á 3ju hæð, kr. 2.766.419.
a) Bæjarráð samþykkir kauptilboð frá Einingu-Iðju eins og það liggur fyrir með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.b) Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild að undirrita kauptilboð Dalvikurbyggðar til meðeigenda eins og það liggur fyrir með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.