Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
634. fundur
6. september 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Marinó Þorsteinsson
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Embættismaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Ríkiskaupum; Rammasamningskerfi ríkisins - staðan 2012.
Tekið fyrir bréf frá Ríkiskaupum, dagsett í júlí 2012, þar sem fram kemur að Ríkiskaup hafa ákveðið að fella niður svokallað árgjald til stofnana í þeirri trú að það verði þeim til áframhaldandi hvatningar að nota rammasamninga við sín innkaup. Í bréfinu er farið yfir stöðuna á rammasamningakerfi ríksins og hvernig það hefur breyst á síðustu árum.
Lagt fram.
2.
Frá Greiðri leið; Áskriftarréttur að hlutafé.
Tekið fyrir erindi frá Greiðri leið ehf., bréf dagsett þann 31. ágúst 2012, þar sem fram kemur að á aðalfundi í einkahlutafélaginu Greið leið ehf. þann 30. júní 2011 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að hækka hlutafé félagsins um kr. 100.000.000 að nafnverði með innborgun á nýju hlutafé. Heimildin var veitt til 1. júní 2012 og henni ætlað að gera félaginu mögulegt að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Vaðlaheiðargöngum hf. Stjórn félagsins ákvað á stjórnarfundi 31. ágúst 2012 að fullnýta ofangreinda heimild um hækkun að hlutafé. Sölugengið er 1 til hluthafa. Þar sem Dalvíkurbyggð er skráð fyrir hlutafé í félaginu þá á sveitarfélagið rétt á að skrá sig fyrir hlutum í hlutfalli við núverandi hlutafjáreign sem er 0,03% eða kr. 27.834, fyrir 25. september n.k.
Bæjarráð samþykkir að nýta sér áskriftarréttinn í hlutfalli við núverandi hlutafjáreign.
3.
Siðareglur kjörinna fulltrúa Dalvíkurbyggðar; samþykktar reglur.
Tekið fyrir erindi frá innanríkisráðuneytinu, bréf dagsett þann 29. ágúst 2012, þar sem fram kemur að ráðuneytið staðfestir siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í Dalvíkurbyggð, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Lagt fram.
4.
Lýðræðisstefna Dalvíkurbyggðar; drög
Tekin fyrir drög að Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar sem er stefna Dalvíkurbyggðar um upplýsingagjöf og samráð við íbúa sbr. X. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.Á fundinum voru ofangreind drög tekin til umræðu og nokkrar breytingar gerðar á fundinum.
Bæjarráð samþykkir að vísa drögunum til umsagnar stjórnsýslunefndar eins og þau liggja nú fyrir.
5.
Deiliskipulag að Upsum; Íbúakosning.
Á 633. fundi bæjarráðs þann 30. ágúst 2012 gerði bæjarstjóri grein fyrir athugun sinni hvað varðar möguleikann á rafrænni kosningu og að leitað hafi verið m.a. upplýsinga hjá LEX ehf. lögmannastofu um álitaefni er varðar fyrirhugaða íbúakosningu um hvort breyta eigi og/eða falla frá deiliskipulagi í landi Upsa. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi minnisblað bæjarstjóra, dagsett þannn 4. september 2012, þar sem velt er upp þeim ákvörðunum sem þarf að taka varðandi íbúakosningu um deiliskipulagið að Upsum.Ofangreint minnisblað til umræðu á fundinum.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2012; Stöðumat janúar - júní 2012.
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir stöðumat janúar - júní 2012 á starfs- og fjárhagsáætlun frá stjórnendum.Kynnt samantekt umsjónarmanns fasteigna, dagsett þann 30. ágúst 2012, varðandi kostnað við framkvæmdir Árskógarskóla í samanburði við áætlun.
a) Bæjarráð samþykkir beiðni frá leikskólastjóra Krílakost um kaup á uppþvottavél, þar sem núverandi vél er ónýt. Heimildin væri allt að 1,1 m.kr.
8.
Frá Heilbrigðiseftirliti Eyjafjarðar; Fundargerð frá 20. júní 2012.
Lagt fram til kynningar.