Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

633. fundur
30. ágúst 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Marinó Þorsteinsson Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Embættismaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Málefni Skíðafélags Dalvíkur; staða mála.
Málsnúmer 201205001
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, og Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Á 631. fundi bæjarráðs þann 28. júní 2012 voru málefni og fjárhagsstaða Skíðafélags Dalvíkur til umfjöllunar og ákvarðanir teknar er varða tímabundin inngrip Dalvíkurbyggðar í rekstur félagsins.Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerðu bæjarráði grein fyrir þróun og stöðu mála.Árni vék af fundi.







3.
Frá Menntaskólanum á Tröllaskaga; Akstur næsta vetur.
Málsnúmer 1206045
Á 630. fundi bæjarráðs þann 21. júní 2012 var tekið fyrir erindi frá Láru Stefánsdóttur, skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga, rafpóstur dagsettur þann 18. júní 2012, þar sem fram koma hvaða mögulegar leiðir er hægt að fara vegna akstursstyrks til nemenda sem sækja MT frá Dalvík. Fram kom að sá möguleiki er fyrir hendi að nemendur sæki akstursstyrk til LÍN. Það sem uppá vanti fyrir rútukostnaði greiði sveitarfélögin.Bæjarstjóri gerði grein fyrir ofangreindu og bæjarráð gaf bæjarstjóra heimild til þess að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.Bæjarstjóri gerði bæjarráði grein fyrir þróun og stöðu mála frá fundi bæjarráðs þann 21. júní s.l.Nemendur frá Dalvíkurbyggð sem sækja MT eiga kost á að nýta sér rútuferðir fram og til baka.
4.
Frá Gásakaupstað ehf.; Endurnýjun á styrktarsamningi.
Málsnúmer 201208031
Tekið fyrir erindi frá Gásakaupstað ehf., bréf dagsett þann 14. ágúst 2012, þar sem fram kemur að gildandi styrktarsamningur Dalvíkurbyggðar við Gásakaupstað ses. rennur út um næstkomandi áramót og er óskað eftir því að hann verði endurnýjaður / framlengdur t.d til næstu 3ja ára.
Bæjarráð samþykkir að vísa ofangreindu erindi til menningarráðs.
5.
Frá Eyðibýli-áhugamannafélagi; Beiðni um styrk vegna rannsóknar
Málsnúmer 1206060
Tekið fyrir erindi frá Eyðibýli-áhugamannafélag, dagsett þann 20. júní 2012, þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við verkefnið Eyðibýli á Íslandi að upphæð kr. 100.000 til að koma til móts við hluta ferða- og uppihaldskostnaðs rannsakenda í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að vísa ofangreindu erindi til menningarráðs. Hildur Ösp vék af fundi.
6.
Frá Akureyrarkaupstað; 150 ára afmæli Akureyrar 2012
Málsnúmer 201208026
Tekið fyrir erindi frá Akureyrarkaupstað, bréf dagsett þann 15. ágúst 2012, þar sem fram kemur að í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar er fulltrúa sveitarfélagsins boðið til hádegisverðar á Hótel Kea laugardaginn 1. september kl. 11:00 til kl. 13:00. Boðið gildir fyrir tvo.
Bæjarráð  þakkar gott boð og óskar Akureyrarkaupstað til hamingju með afmælið.Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri ásamt maka verði fulltrúi Dalvíkurbyggðar.
7.
Frá velferðarráðuneytinu; Frá Velferðarvaktinni í upphafi skólaárs.
Málsnúmer 201208032
Tekið fyrir bréf frá Velferðarvaktinni, dagsett þann 22. ágúst 2012, þar sem fram kemur að Velferðarvaktin hvetur sveitarstjórnir og skólanefndir til að huga sérstaklega að líðan barna í upphafi skólaárs. Mikilvægt sé að kostnaði við kaup á skólavörum og þátttöku í frístundastarfi sé haldið í lágmarki og tryggt að kostnaður heimilanna vegna skólastarfs hindri í engu þátttöku barna í leik og starfi.Einnig kemur fram að mikilvægt er að kostnaði vegna skólamáltíða verði áfram haldið í lágmarki og tryggt með öllum tiltækum ráðum að börn í leik- og grunnskólum fái hádegisverð alla skóladaga.
Lagt fram.
8.
Frá fjármálaráðuneytinu; Tilnefning til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu - og stjórnsýslu.
Málsnúmer 201208030
Tekið fyrir erindi frá fjármálaráðuneytinu, bréf dagsett þann 16. ágúst 2012, þar sem óskað er eftir tilnefningu til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu. Með nýsköpunarverkefnum er átt við nýjar lausnir eða þýðingarmiklar endurbætur á eldri lausnum sem opinber aðili hefur innleitt að eigin frumkvæði og beinast að því að bæta stjórnsýslu og/eða þjónustu við notendur með nýjum vinnubrögðum, tækni eða skipulagi. Skilafrestur tilnefninga ásamt rökstuðningi er til 21. september 2012.

Bæjarráð vísar ofangreindu til sviðstjóra til skoðunar. 
 
9.
Frá Lyfjastofnun; Umsagnar leitað vegna nýrrar lyfjabúðar
Málsnúmer 201208038
Tekið fyrir erindi frá Lyfjastofnun, bréf dagsett þann 24. ágúst 2012, þar sem fram kemur að Lyfjastofnun hefur borist umsókn frá lyfjafræðingi, dagsett þann 22. ágúst 2012, um lyfsöluleyfi fyrir nýja lyfjabúð, Dalvíkur Apótek að Hafnarbraut 7, 620. Dalvík. Óskað er eftir umsögn bæjarráðs Dalvíkurbyggðar um umsóknina eigi síðar en 14. september n.k.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
10.
Deiliskipulag að Upsum; Íbúakosning.
Málsnúmer 201205069
Á 632. fundi bæjarráðs þann 12. júlí 2012 lagði bæjarstjóri fram minnisblað um íbúafund sem haldinn var 2. júlí 2012 um deiliskipulag að Upsum. Bæjarráð samþykkti að kosið verði um málið og stefnt verði að kosningu þann 20. október n.k. Bæjarráð samþykkti að skoðaður verði möguleikinn á rafrænni kosningu.Bæjarstjóri gerði grein fyrir athugun sinni á málinu hvað varðar rafrænar kosningar og að leitað hafi verið m.a. upplýsinga hjá LEX ehf. lögmannastofu um álitaefni er varðar fyrirhugaða íbúakosningu um hvort breyta eigi og/eða falla frá deiliskipulagi í landi Upsa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
11.
Frá Sigurði Haraldssyni og Þórir Haraldssyni; Vegna landareignarinnar Lækjarbakki 1.
Málsnúmer 201208024
Tekið fyrir erindi frá Sigurði Haraldssyni, kt.190841-4489, og Þórir Haraldssyni, kt. 121047-4979, dagsett þann 13. ágúst 2012, þar sem fram kemur að með aukinni umferð vegna hundahalds og hugsanlegrar sumarhúsabyggðar er trjárækt eigenda á áreyrunum stefnt í hættu í auknu mæli. Þar sem bæjaryfirvöld Dalvíkurbyggðar hafi engan áhuga sýnt á að finna lausn á þessu neyðast bréfritarar að loka þessum vegaslóða á áreyrunum norðan Brimnesár. Ef Dalvíkurbyggð hefur eitthvað við þá niðurstöðu bréfritara að athuga þá er óskað eftir athugasemdum innan mánaðar frá dagsetningu þessa bréfs.
Bæjarráð samþykkir að fela LEX ehf. lögmannastofu að svara erindinu fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela bæjarstjóra að senda Vegagerðinni afrit af ofangreindu erindi til upplýsingar.
12.
Kaup Einingar-Iðju á hluta Dalvíkurbyggðar á 2. hæð Ráðhúss Dalvíkur og möguleg kaup Dalvíkurbyggðar á hluta af sameign á 3. hæð.
Málsnúmer 201112006
Á 623. fundi bæjarráðs þann 13. apríl 2012 samþykkti bæjarráð að fela bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara í viðræður við meðeigendur í Ráðhúsi Dalvíkur um möguleg kaup Dalvíkurbyggðar á 3ju hæð sameignar.Fyrir liggur verðmat frá fasteignasölunni Byggð á 3ju hæð og útreikningar frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs á mögulegu kaupverði á grundvelli verðmats.Fyrir liggur einnig að Eining-Iðja er tilbúið að kaupa hlut Dalvíkurbyggðar í gangi á 2. hæð, þar sem Dalvíkurbyggð er með enga starfsemi þar.Fyrir liggur verðmat og tillaga að kaupsamningi á milli Einingar-Iðju og Dalvíkurbyggðar í gegnum fasteignasöluna Byggð.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs heimild til þess að vinna áfram að málinu á  þeim forsendum sem liggja fyrir; bæði hvað varðar kaup Einingar-Iðju á eignarhluta Dalvíkurbyggðar í  2.hæð sem og  a ð gera meðeigendum í 3ju hæð kauptilboð í eignarhluta þeirra á 3ju hæð með fyrirvara um samþykki bæjarráðs/ bæjarstjórnar.
13.
Stjórnsýslunefnd, undirbúningur fyrir næsta fund.
Málsnúmer 201208041
Til umræðu næsti fundur stjórnsýslunefndar og drög að dagskrá.
Bæjarráð samþykkir að fundur í stjórnsýslunefnd verði 13. september n.k.   kl.  14:00 - kl. 16:00 og að bæjarráðsfundur verði þá á undan.
14.
Álagning fasteignaskatts og þjónustugjalda 2013; undirbúningur.
Málsnúmer 201208029
Vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2013 var tekið til umræðu álagning fasteignaskatts og fasteignagjalda 2013.Á fundinum var farið yfir ýmsar hugmyndir tengt ofangreindu og möguleg áhrif þeirra.
 
15.
Fjárhagsáætlun 2013- (2016); undirbúningur.
Málsnúmer 201204042
Vinna við gerð fjárhagsáætlunar 2013 - 2016 er formlega hafin. a) Forsendur Á 632. fundi bæjarráðs þann 12. júlí 2012 voru drög að forsendum með fjárhagsáætlun 2013 rædd og afgreiðslu frestað.Með fundarboði bæjarráð fylgdi tillaga að forsendum með fjárhagsáætlun 2013.b) GjafareglurÁ fundinum var farið yfir gildandi gjafareglur sem eru hluti af starfsmannastefnu og handbók sveitarfélagsins. Til umræðu sérstaklega gjafir við starfslok vegna vinnu við forsendur.c) Farið yfir tímaramma vegna fjárhagsáætlunar sem bæjarráð samþykki þann 2. maí 2012.d) Farið yfir og rætt fjárhagsáætlunarferlið.e) Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs lagði fram erindi frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs, rafpóstur dagsettur þann 29. ágúst 2012, um að flytja kr. 4.500.000 af ramma 04 og yfir á ramma 06 vegna ársins 2013 vegna starfa baðvarða sem ráðgert er að flytja á milli stofnana í viðkomandi málaflokkum.
a)  Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að forsendum með fjárhagsáætlun 2013 en samþykkir jafnframt að forsendur verði endurskoðaðar þegar að t.d. upplýsingar liggja fyrir af fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.b)  Bæjarráð samþykkir að gjafareglur verði bornar undir stjórnendur til umsagnar.e)  Bæjarráð samþykkir beiðni sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs.<FONT color=#3366ff></FONT>
16.
Landbúnaðarráð - 75
Málsnúmer 1207001F
17.
Umhverfisráð - 229
Málsnúmer 1208003F