Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

632. fundur
12. júlí 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Marinó Þorsteinsson Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Heiða Hringsdóttir
Svanfríður Inga Jónasdóttir Embættismaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fundagerðir hússtjórnar Ráðhúss 2012; 2. fundur 28. júní 2012; aðalfundur.
Málsnúmer 201203081
Heiða Hringsdóttir, bæjarstjóri og Marínó Þorsteinsson tóku til máls  um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
2.
Frá Sýslumanninum á Akureyri; Beiðni um umsögn vegna umsóknar um breytingu á rekstrarleyfi; Gimli-Dalvik hostels.
Málsnúmer 201207010
Tekið fyrir rafbréf frá Sýslumanninum á Akureyri, dagsett þann 5. júlí 2012, þar sem óskað er umsagnar um umsókn um breytingu á rekstrarleyfi. Umsóknin er frá Kristínu A. Símonardóttur, kt. 190964-2729, en um er að ræða gististaðaflokk IV vegna Hafnarbrautar 4, Á vegamótum við Skíðabraut ( 3 smáhýsi og gamli bærinn) skíðaskálinn Brekkuseli undir nafninu Gimli-Dalvik hostel.





Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
3.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Nýsköpun í opinberum rekstri.
Málsnúmer 201207017
Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 6. júlí 2012, þar sem fram kemur að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum 29. júní s.l. að sambandið gerist aðili að verkefni þar sem hvatt er til nýsköpunar og þróunarverkefna í starfsemi ríkisins. Með aðkomu sambandsins þá tekur verkefnið einnig til nýsköpunar í rekstri sveitarfélaga. Ákveðið hefur verið að halda nýsköpunarráðstefnu 30. október n.k. í Reykjavík. Er það von sambandsins að sveitarfélögin muni taka þessu framtaki vel. Vefsíða verkefnisins er www.nyskopunarvefur.is
Lagt fram til kynningar. 
4.
Frá Þjóðskrá Íslands; Fasteignamat 2013.
Málsnúmer 1207002
Tekið fyrir bréf frá Þjóðskrá Íslands, bréf dagsett þann 2. júlí 2012, þar sem kynntar eru niðurstöður endurmats 2013 og veittur er frestur til 1. ágúst n.k. til athugasemda. Fasteignamatið 2013 endurspeglar markaðsverðmæti eins og það var í febrúar 2012. Hverjum fasteignaeigenda er birtur tilkynningarseðill um niðurstöður endurmats fasteigna hans á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is.Hækkun heildarfasteignamats í Dalvíkurbyggð milli áranna 2012 og 2013 er 10,9% vegna fasteignar og 11,0% vegna lóðar/lands.Af 75 sveitarfélögum í landinu þá eru 5 sveitarfélög með meiri hækkun á milli ára en Dalvíkurbyggð hvað varðar fasteignir og 8 sveitarfélög með sömu eða meiri hækkun hvað varðar lóðir/land.
Lagt fram til kynningar.
5.
Álagning fasteignaskatts á hesthús 2012; ákvörðun um endurálagningu skv. a-lið 3 mgr. 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Málsnúmer 1206063
Þann 11. júní 2012 var samþykkt á Alþingi breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum er varðar álagningu á hesthús.Samkvæmt breytingunni skulu sveitarfélög frá og með 1. janúar 2013 leggja á hesthús samkvæmt a-flokki í stað þess að leggja á samkvæmt c-flokki.Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða er sveitarstjórn heimilt að lækka álagningu fasteignaskatts á árinu 2012 á hesthús þannig að álagningarhlutfall þeirra eigna sé það sama og annarra fasteigna skv. a-lið 3 mgr. 3. gr.Samkvæmt samantekt sviðstjóra umhverfis - og tæknisviðs þá myndu tekjur sveitarfélagsins vegna fasteignaskatts lækka um rúmar kr. 900.000 ef lagt væri á hesthús í Dalvíkurbyggð fyrir árið 2012 skv. a-flokki í stað b-flokks.
Bæjarráð samþykkir að lagt verði á skv. a-flokki frá og með 1. júlí 2012.  Lækkun á álagningu fasteignaskatts vegna hesthúsa í Dalvíkurbyggðar er því um kr. 450.000.
6.
Íbúafundur 2. júlí s.l. um deiliskipulag að Upsum.
Málsnúmer 201205069
Á 629. fundi bæjarráðs þann 14. júní 2012 var samþykkt tillaga um að halda íbúafund þar sem reynt yrði að átta sig á því hvernig vilji íbúanna yrði best kallaður fram. Tillaga um íbúafund var staðfest í bæjarstjórn 19. júní s.l. og fór fundurinn fram mánudaginn 2. júlí s.l. í menningarhúsinu Bergi og hófst hann kl. 17:00.Bæjarstjóri lagði fram á fundi bæjarráðs minnisblað um íbúafundinn.
a) Bæjarráð samþykkir að kosið verði um málið og stefnt verði að kosningu þann 20. október n.k. b) Bæjarráð samþykkir að skoðað verði möguleikinn á rafrænni kosningu.
7.
Fjárhagsáætlun 2013- (2016); drög að forsendum.
Málsnúmer 201204042
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að forsendum með fjárhagsáætlun 2013 en hluti af forsendum þarfnast umfjöllunar og sérstakra ákvörðunar í bæjarráði.Jóhann Ólafsson vék af fundi undir þessum lið kl. 09.06 til annarra starfa.
Rætt á fundinum og afgreiðslu frestað.
8.
Kjarasamningsumboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Málsnúmer 201207015
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að samkomulagi um kjarasamningsumboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gera þurfti nokkrar breytingar og samkvæmt ráðleggingum frá Sambandinu er um tillögu að heildarendurnýjun á umboði að ræða.
Bæjarráð samþykkir samkomulag um kjarasamningsumboð (á tveimur eyðublöðum) eins og það liggur fyrir og felur bæjarstjóra að undirrita.
11.
Kosning aðalmanns og varamanns í umhverfisráð.
Málsnúmer 201207021
Björn Snorrason lagði fram eftirfarandi tillögu um aðalmann og varamann í umhverfisráð:Aðalmaður: Daði Njörður Jónsson, kt. 261073-5609.Varamaður: Baldur Snorrason, kt. 210273-3369.Ekki komu fram aðrar tillögur
Bæjarráð samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu.  Kristján E. Hjartarson vék af fund kl. 09:38 til annarra starfa og varamaður hans Heiða Hringsdóttir kom á fundinn í hans stað.Marinó Þorsteinsson tók við fundarstjórn.
12.
Fundargerðir Sambandsins 2012; 796., 797. og 798. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201202008
Lagðar fram til kynningar.
13.
Fundargerðir HNE 2012; 144. fundur frá 16. maí 2012 ásamt ársreikningi 2011 og kostnaðarskiptingu 2011.
Málsnúmer 201202007
Lagt fram til kynningar.
14.
Félagsmálaráð - 160
Málsnúmer 1205014F
15.
Hafnarstjórn - 34
Málsnúmer 1110008F
16.
Umhverfisráð - 228
Málsnúmer 1205007F