Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

631. fundur
28. júní 2012 kl. 08:15 - 10:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Marinó Þorsteinsson Varaformaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Embættismaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201205001
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.Á 631. fundi bæjarráðs þann 21. júní s.l. kom stjórn Skíðafélags Dalvíkur á fund bæjarráðs þar sem áfram var til umræðu fjárhagsstaða félagsins og möguleg viðbrögð sveitarfélagsins.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi fundargerð stjórnar Skíðafélags Dalvíkur frá 21. júní s.l. þar sem fram kemur eftirfarandi bókun:Tilboð frá bæjarráði Dalvíkurbyggðar um að Dalvíkurbyggð ráði tilsjónarmann til Skíðafélags Dalvíkur vegna fjárhagsstöðu félagsins.Stjórn Skíðafélags Dalvíkur samþykkir tilboð bæjarráðs og er tilbúin að hefja samstarf og samvinnu við sveitarfélagið um málefni Skíðafélags Dalvíkur.Lögð fram tillaga um ráðningu starfsmanns á vegum Dalvíkurbyggðar sem yrði tímabundin ráðning í 100% starf sem framkvæmdastjóri skíðasvæðis og Skíðafélags Dalvíkur. Á fundinum var einnig lögð fram tillaga að starfslýsingu.Kostnaðaráætlun vegna ofangreind starfs vegna ársins 2012 er 3.327.000 kr.Einnig lögð fram yfirlýsing bæjarráðs um ofangreint mál.Hildur Ösp og Árni véku af fundi.

a) Bæjarráð samþykkir ofangreint starf tímabundið og ráðningu í 100% stöðugildi í  allt að 24 mánuði.

b) Bæjarrráð samþykkir tillögu að starfslýsingu með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum.

c) Bæjarráð samþykkir tillögu að auglýsingu um starfið með áorðnum breytinum sem gerðar voru á fundinum.

d) Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki  að upphæð kr. 3.327.000 við fjárhagsáætlun 2012 samkvæmt ofangreindri kostnaðaráætlun.  Vísað á deild 06-80.

e)  Bæjarráð samþykkir tillögu að yfirlýsingu um málið með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum.

2.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 37
Málsnúmer 1206002F
3.
Frá fjárlaganefnd Alþingis; breyttar áherslur.
Málsnúmer 1206059
Tekið fyrir erindi frá fjárlaganefnd Alþingis, bréf dagsett þann 18. júní 2012, þar sem fram kemur að fjárlaganefnd hyggst breyta áherslum sínum við fjárlagagerðina og tilteknir eru þeir þættir sem fjárlaganefnd vill leggja sérstaka áherslu á á væntanlegum fundum sínum með sveitarfélögum. Fjárlaganefnd óskar eftir viðbrögðum sveitarfélaga við þessum áherslum fyrir 1. ágúst n.k.

Lagt fram til kynningar.
4.
Frá Viborg; breytingar á vinabæjasamstarfi.
Málsnúmer 1206061
Tekið fyrir erindi frá vinabænum Viborg í Danmörku, dagsett þann 21. júní 2012, þar sem fram kemur að sú ákvörðun hefur verið tekin að Viborg mun ekki eftirleiðis taka þátt í þeim hluta sem fellur undir pólitíska hluta vinabæjasamstarfsins, s.s. undirbúningsfundi og vinabæjamót.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna viðbrögð vinabæja við ofangreindu erindi.
5.
Frá Fjallabyggð; Náttúruverndarmál; staða mála í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð-umsögn umhverfisráðs.
Málsnúmer 201205075
Á 627. fundi bæjarráðs þann 24. maí 2012 var ofangreint til umfjöllunar og samþykkti bæjarráð að vísa ofangreindu erindi til umhverfisráðs og óskar eftir umsögn ráðsins. Á 227. fundi umhverfisráðs þann 13. júní 2012 var eftirfarandi bókað:Á 627. fundi bæjarráðs var framangreindu erindi vísað til umhverfisráðs.Valur Þór Hilmarsson sendi til bæjarstjórna Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar minnispunkta um "Verndun annesja á Tröllaskaga". Var það gert í framhaldi af því að erindi hans var tekið fyrir á 127. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar. Nefndin óskaði eftir því við umhverfisfulltrúa að hann kannaði hug Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar til að reka saman eina náttúruverndarnefnd. Umhverfisráð fer með þennan málaflokk f.h. bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar og í gildandi aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar er Múlinn á náttúruminjaskrá og nýtur hverfisverndar og er á aðalskipulagsuppdrættir er merktur þar sem 502-Hv.e.Sé þörf á frekari umfjöllun um það landsvæði er umhverfisráð tilbúinn til að fjalla um það f.h Dalvíkurbyggðar.

Bæjarráð samþykkir að Fjallabyggð verði kynnt ofangreind umsögn umhverfisráðs.
6.
Frá Kristínu Ýr Pétursdóttur; Ósk um lausn úr umhverfisráði.
Málsnúmer 1206056
Tekið fyrir erindi frá Kristínu Ýr Pétursdóttur, dagsett þann 20. júní 2012, þar sem Kristín Ýr óskar eftir lausn úr umhverfisráði vegna búferlaflutninga.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita Kristínu lausn frá störfum úr umhverfisráði.
8.
Frá fræðslu- og menningarsviði;Fjárhagsáætlun 2012; biðlaun vegna deildar 04-22.
Málsnúmer 1206064
Tekin fyrir beiðni frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs um fjárveitingu vegna biðlauna í kjölfar uppsagna starfsmanna við Árskógarskóla og leikskólann Leikbæ vegna ákvörðunar um stofnun nýs skóla í Árskógi.Áætlaður kostnaður vegna ársins 2012 er kr. 12.621.836.
Lagt fram til upplýsingar.
9.
Frá 237. fundi bæjarstjórnar; Samþykkt um búfjárhald. Síðri umræða.
Málsnúmer 201202026
Á 237. fundi bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 19. júní s.l. var samþykkt um búfjárhald tekin til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða að vísa samþykktinni til síðari umræðu.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
10.
Frá Sýslumanninum á Akureyri; Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis-N1 skálinn.
Málsnúmer 1206073
Tekið fyrir rafbréf frá Sýslumanninum á Akureyri, dagsett þann 14. júní 2012, þar sem óskað er umsagnar um umsókn N1 hf. kt. 540206-2010 um endurnýjun rekstrarleyfis (endurnýjun) fyrir N1 skálann, Hafnarbraut 24 á Dalvík.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
11.
Frá Sýslumanninum á Akureyri; Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis-Hrísahöfði sumarhús.
Málsnúmer 1206072
Tekið fyrir rafbréf frá Sýslumanninum á Akureyri, dagsett þann 25. júní 2012, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Sigurðar Jónssonar, kt. 150941-3429, um rekstrarleyfi (nýtt leyfi) vegna sumarhúss að Hrísahöfða.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.