Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

630. fundur
21. júní 2012 kl. 09:00 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Marinó Þorsteinsson Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Embættismaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Menntaskólanum á Tröllaskaga; Akstur næsta vetur.
Málsnúmer 1206045
Tekið fyrir erindi frá Láru Stefánsdóttur, skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga, rafpóstur dagsettur þann 18. júní 2012, þar sem fram koma hvaða mögulegar leiðir er hægt að fara vegna akstursstyrks til nemenda sem sækja MT frá Dalvík.Fram kemur að sá möguleiki er fyrir hendi að nemendur sæki um akstursstyrk til LÍN. Það sem uppá vanti fyrir rútukostnaði greiði sveitarfélögin.Bæjarstjóri gerði grein fyrir ofangreindu.




Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til þess að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
2.
Frá fræðslu- og menningarsviði;umsóknir um starf skólastjóra Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 201205107
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Á 237. fundi bæjarstjórnar þann 19. júní 2012 var samþykkt sú tillaga fræðsluráðs að bæjarráð fjalli um umsóknir sem berast um starf skólastjóra Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar ásamt sviðstjóra.Umsóknarfrestur um starfið var til og með 17. júní 2012. Ein umsókn barst um starfið. Umsækjandi er Ármann Einarsson.Hildur Ösp gerði grein fyrir ofangreindu.
Bæjarráð samþykkir að Ármann Einarsson verði ráðinn í starf skólastjóra Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201205001
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs f.h. Skíðafélags Dalvíkur: Birkir Bragason, formaður, Gerður Olafsson, gjaldkeri, Heiða Hilmarsdóttir, ritari, Friðrik Arnarsson, meðstjórnandi, og Einar Hjörleifsson, meðstjórnandi.Einnig sátu fundinn undir þessum lið Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.Á 629. fundi bæjarráðs þann 14. júní 2012 var fjárhagsstaða Skíðafélags Dalvíkur áfram til umfjöllunar og m.a. bókað að bæjarráð fól bæjarstjóra að undirbúa næstu skref í samræmi við umræður á fundinum.Til umræðu fjárhagsstaða Skiðafélags Dalvíkur og möguleg viðbrögð sveitarfélagsins.Birkir, Gerður, Heiða, Friðik og Einar viku af fundi.Hildur Ösp og Árni viku af fundi.