Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

627. fundur
24. maí 2012 kl. 08:15 - 12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Húsnæði Leikbæjar vegna breytinga í skólastarfi í Árskógi.
Málsnúmer 201205078
Til umræðu framtíðarnýting húsnæðis Leikbæjar þar sem fyrir liggur að frá og með 1. ágúst n.k. verður starfsemi leikskólans komin í endurbætt húsnæði Árskógarskóla.
Bæjarráð leggur til að húsnæðið Leikbær verði leigt út sem íbúðarhúsnæði frá og með 1. ágúst 2012.</DIV>
2.
Viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 201205081
Viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar er Sparisjóður Svarfdæla. Fyrir liggur að Landsbankinn hefur fest kaup á Sparisjóðnum og mun Landsbankinn verða með starfsemi á Dalvík.
& Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Landsbankinn á Dalvík verði viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar þegar breytingarnar hafa átt sér stað.</DIV></DIV>