Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
624. fundur
26. apríl 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 235. fundi bæjarstjórnar. 17. apríl 2012; Klapparstígur 5; gagntilboð.
Á 234. fundi bæjarstjórnar þann 17. apríl s.l. var bókað að fyrir liggur undirritað gagntilboð að upphæð kr. 11.700.000, dagsett þann 13. apríl 2012. Bæjarstjórn samþykkti að veita bæjarráði fullnaðarumboð til þess að afgreiða málið.Á fundi bæjarráðs var ofangreint gagntilboð lagt fram og kynnt.
Bæjarráð samþykkir sölu á Klapparstíg 5 og ofangreint gagntilboð að upphæð kr. 11.700.000.&nbsp; Kaupandi eru Baldur Viðar Jónsson, kt. 010574-3669, og Hanna B. Valgarðsdóttir, kt. 181160-4899.</DIV&gt;
2.
Sala og leiga á atvinnuhúsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar; upplýsingar um tekjur og gjöld.
Á 620. fundi bæjarráðs þann 01.03.2012 var til umræðu sala og leiga á atvinnuhúsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar og farið var yfir gildandi leigusamninga.Bæjarráð fól bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirbúa sölu á atvinnuhúsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar í samræmi við umræður á fundinum og að allir samningur um atvinnuhúsnæði verði teknir til endurskoðunar. Á fundi bæjarráðs var kynnt samantekt sem sýnir tekjur og gjöld vegna ofangreindra leigusamninga.
Bæjarráð samþykkir að leiga húsnæðis vegna félagastarfsemi og atvinnureksturs verði endurskoðuð&nbsp; þannig að leigutekjur standi alls staðar undir kostnaði sveitarfélagsins við húsnæðið.</DIV&gt;