Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

622. fundur
15. mars 2012 kl. 15:00 - 17:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri Fjallabyggðar
Dagskrá
1.
Samgöngumál, skýrsla Vegagerðarinnar um úrbætur í Ólafsfjarðarmúla.
Málsnúmer 201203048
Undir þessum dagskrárlið mættu fulltrúar Vegagerðarinnar, Birgir Guðmundsson, svæðisstjóri, og Gísli Eiríksson, yfirmaður jarðgangadeildar, og kynntu fyrir fundarmönnum skýrslu um úrbætur í Ólafsfjarðarmúla og svöruðu fyrirspurnum.Fram kom að áætlaður kostnaður við ný 8,8 km göng með skálum frá Upsaströnd yfir í Burstabrekku er 11 milljarðar, en breikkun og lagfæring Múlaganga, ásamt snjóflóðavörnum og lagfæringu á vegum kosta 4,6 milljarða. Talið er að með lagfæringu og breikkun fáist göng sambærileg við Héðinsfjarðargöng að gæðum.Ekki er talin þörf á loftræstingu í Múlagöng.Með breikkun milli útskota geta orðið til 8 metra breið göng með 47 m2 þversnið. Þversnið í Héðinsfjarðargöngum er 50m2.Tímalengd verks yrði 11 til 19 mánuðir eftir því hversu miklar opnanir yrðu á verktíma, með tilheyrandi töfum fyrir fólk og atvinnurekstur. Opna yrði gamla veginn fyrir Múlann.Farið var yfir áætlanir um snjóflóðavarnir á þessari leið, því snjóflóðahættan veldur ótta, endurbætur á öryggisbúnaði og lýsingu í göngunum.Minnst var á umferðarstjórnun í tengslum við viðburði og mögulega vakt á daginn yfir sumartímann, sem getur verið hagkvæm lausn.Í tengslum við gerð samgönguáætlunar er mikilvægt fyrir samvinnu sveitarfélaganna að fá vitneskju um það að eitthvað verði gert í öryggis- og vegamálum á veginum milli sveitarfélagana.Þeir fundarmenn sem tjáðu sig um valkostina, töldu breikkun Múlaganga vera nær okkur í framkvæmdatíma en ný göng.
&</DIV></DIV>
2.
Almenningssamgöngur í Eyjafirði/skólaakstur Dalvík - Ólafsfjörður
Málsnúmer 201203049
Fram kom að á vegum Eyþings er verið að skoða gögn sem unnin hafa verið af VSÓ um almenningssamgöngur á Norðaustursvæðinu og tengingu við önnur svæði og aðra ferðamöguleika.Stefnt er að því að bjóða út akstur á Eyþingssvæðinu með tengingu við akstur frá Reykjavík þannig að hægt verði að aka eftir nýju fyrirkomulagi í haust.Nánari útfærslur á leiðarkerfinu verða unnar í samráði við sveitarstjórnir á svæðinu. Unnið er að samgöngubótum þ.e. almenningssamgöngum þrisvar á dag, milli Akureyrar og Siglufjarðar, án kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin.Fundarmenn ræddu hvort skólaakstur og almenningssamgöngur gætu gengið saman og hvort sértæka aðgerð þyrfti vegna einnar ferðar á morgnanna frá Dalvík í tengslum við Menntaskólann á Tröllaskaga.
3.
Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar og samvinna á þeim vettvangi.
Málsnúmer 201203050
Sálfræðiþjónusta.Undir þessum dagskrárlið var haldið áfram með umræðu frá síðasta samráðsfundi um mögulega aðkomu sveitarfélaganna að skipulagðri sálfræðiþjónustu á svæðinu. Barnarvendarnefnd.Fram kom á fundinum að Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eru með til umfjöllunar samvinnu við Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð um sameiginlega barnaverndarnefnd Byggðasamlag um málefni fatlaðra.Rætt var um stjórnsýslulega aðkomu sveitarfélaganna að byggðasamlagi um málefni fatlaðra.
4.
Sameiginlegur fundur bæjarráða Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar-Önnur mál
Málsnúmer 201203051
Ákveðið var að halda næsta samráðsfund um miðjan maí og komið inn á möguleg fundarefni þess fundar, t.d. sameiginlegt námskeiðshald og fræðsla.