Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

621. fundur
15. mars 2012 kl. 14:00 - 15:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2011
Málsnúmer 201203047
Stefnt er að því að ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2012 verði lagður fram og kynntur í bæjarráði fimmtudaginn 12. apríl n.k. Að venju kæmi endurskoðandi á fundinn til þess að fara yfir ársreikninginn og skýrslu endurskoðanda. Boðaðir yrðu aukalega bæjarstjórnarfulltrúa sem ekki sitja fund bæjarráðs og sviðstjórar.
 </DIV>
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201203042
Bókað í trúnaðarmálabók.
4.
Frá Gásakaupstað ses; Aðalfundarboð
Málsnúmer 201203024
Tekið fyrir frá stjórn Gásakaupstaðar ses. aðalfundarboð en boðað er til aðalfundar miðvikudaginn 28. mars 2012 kl. 15:00 í Zonta-salnum, Aðalstræti 54, Akureyri.
Bæjarráð samþykkir að Kristján E. Hjartarson, formaður bæjarráðs, sæki fundinn og fari með umboð Dalvíkurbyggðar.</DIV>
5.
Frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra; Fundargerð frá 1. mars 2012.
Málsnúmer 201202007
Lögð fram til kynningar 142. fundur stjórnar Heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra frá 1. mars 2012.
6.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, 794. fundur stjórnar Sambandsins
Málsnúmer 201202008
Lögð fram til kynningar fundargerð 794. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. febrúar 2012.Fundi var frestað kl. 15:00 vegna sameiginlegs funda bæjarráðs Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar. Fundi áframhaldið kl. 16:50.
 </DIV>