Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
620. fundur
1. mars 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Sameiginlegur fundur bæjarráða Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.
Til umræðu ákvörðun um næsta sameiginlega fund bæjarráða Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar og fundarefni.
&&&nbsp;</DIV&gt;Í samráði við Fjallabyggð samþykkir bæjarráð að næsti fundur bæjarráðanna verði 15. mars n.k. kl. 15:00 í Ráðhúsi Dalvíkur í fundaherbergi á 3ju hæð.</DIV&gt;Rætt um tillögu að dagskrá.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;
2.
Frá Birni Snorrasyni; vinnustaðakönnun.
Á 605. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 17. nóvember 2011 var eftirfarandi bókað og samþykkt:Björn Snorrason gerði grein fyrir hugmyndum sínum hvað varðar að gerð verði vinnustaðakönnun fyrir Dalvíkurbyggð þar sem markmiðið er m.a. að mæla og greina hug starfsmanna Dalvíkurbyggðar til vinnustaðarins.Árið 2004 vann Gallup vinnustaðagreiningu fyrir Dalvíkurbyggð þar sem spurningalisti var sendur á alla starfsmenn sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að skoða hvaða möguleikar eru í boði. Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerðu grein fyrir þeirri athugun og vinnu sem hefur farið fram um ofangreint en unnið hefur verið að því að sameina Markviss verkefnið og vinnustaðakönnun í eina könnun. Markviss verkefnið er í umsjón Helga Þorbjarnar Svavarssonar sem er verkefnisstjóri SÍMEY á Dalvík. Markmið verkefnisins er að kortleggja stöðu símenntunar og starfsþróunar hjá Dalvíkurbyggð.
&Bæjarráð veitir heimild til þess að haldið sé áfram með&nbsp;vinnustaðakönnunina í samræmi við umræður á fundinum.</DIV&gt;</DIV&gt;
3.
Sala og leiga á atvinnuhúsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar.
Til umræðu sala og leiga á atvinnuhúsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar og farið yfir gildandi leigusamninga.
&&Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirbúa sölu á atvinnuhúsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar í samræmi við umræður á fundinum og að allir samningur um atvinnuhúsnæði verði teknir til endurskoðunar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;