Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
607. fundur
8. desember 2011
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Heimsókn frá Motus.
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Anna María Ingþórsdóttir, viðskiptastjóri hjá Motus, og Grétar Eggertsson, ráðgjafi hjá Motus, og Ingvar Páll Jóhannsson, gjaldkeri/innheimtufulltrúi Dalvíkurbyggðar.Grétar og Anna María kynntu samantekt um stöðu innheimtumála hjá Dalvíkurbyggð og ferli innheimtunnar en Motus sér um innheimtu samkvæmt samningi á öllum kröfum Dalvíkurbyggðar sem ekki eru greiddar á réttum tíma.Anna María, Grétar og Ingvar Páll viku af fundi.
2.
Fjárhagsáætlun 2012; Frá Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi; Stuðningur við Air 66N.
Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi, rafbréf dagsett þann 5. desember 2011, er varðar beiðni um stuðning vegna kostnaðar við verkefni Flugklasans Air 66N, samstarfsverkefni um beint millilandaflug til Norðurlands í gegnum Akureyrarvöll. Sótt er um stuðning vegna verkefna Air 66N sem felast m.a. í niðurgreiðslum á farþega- og lendingargjöldum, þróunarverkefnum, markaðssetningu og markaðsstuðning, sjá meðfylgjandi erindi og viðskiptaáætlun.Óskað er eftir aðkomu sveitarfélaga að þessu verkefni með framlagi sem nemur kr. 300 á hvern íbúa í 3 ár en að loknum þeim tíma er gert ráð fyrir að komið sé á reglulegt millilandaflug um Akureyrarvöll, flugið standi undir sér og áætlanir Air 66N hafi náð fram að ganga.
&Bæjarráð samþykkir framlag kr. 300 framlag á hvern íbúa sveitarfélagsins í 3 ár sem eru tæpar kr. 600.000 fyrir hvert ár.&nbsp; Vísað til gerðar fjárhagsáætluanr 2012 og þriggja ára áætlunar 2013-2015.</DIV&gt;</DIV&gt;
3.
Fjárhagsáætlun 2012; Frá Fjallabyggð; Menntaskólinn á Tröllaskaga; kostnaðarskipting sveitarfélaga 2012.
Tekið fyrir rafbréf frá Fjallabyggð, dagsett þann 5. desember 2012, er varðar hlutdeild sveitarfélaga í kostnaði vegna stækkunar Menntaskólans á Tröllaskaga fyrir árið 2012.Um er að ræða áfanga númer 2 í samræmi við byggingaráform skólans. Hlutur Dalvíkurbyggðar er kr. 121.763.
Bæjarráð samþykkir ofangreint framlag.&nbsp; Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2012 og á deild 32.</DIV&gt;
4.
Fjárhagsáætlun 2012; Deild 31-35; Ráðhús sameign.
Samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir kr. 1.200.000 vegna viðhalds fyrir Ráðhús og hlutdeild Dalvíkurbyggðar af því er 50,29% í samræmi við eignarhluta í húsinu.Kr. 500.000 vegna 50% hlutdeildar í sameiginlegri sorpaðstöðu fyrir Menningarhúsið Berg og Ráðhúsið.Kr. 400.000 vegna viðhalds á lóð.Kr. 300.000 vegna frágangs á loftræstikerfi í kjallara.Einnig er gert ráð fyrir bruna- og öryggiskerfi í sameign en eftir endurskoðun á kostnaðaráætlun er áætlað að kerfin muni kosta kr. 1.300.000 í heild sinni.Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og tæknisviði þá er vigtað sorp frá Menningarhúsi og Ráðhúsi í hlutföllunum 60/40 miðað við janúar - nóvember 2011.
&Bæjarráð samþykkir að lækka hlutdeild Ráðhúss í sameiginlegri sorpaðstöðu um 10%.</DIV&gt;Bæjarráð samþykkir að lækka pott vegna bruna- og öryggiskerfa sveitarfélagsins um 1,0 m.kr í ljósri nýrra upplýsinga.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;
6.
Beiðni um tilfærslu í fjárhagsáætlun 2011 vegna bilunar hjá Hitaveitu Dalvíkur.
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Þorsteinn gerði bæjarráði grein fyrir bilun sem kom upp hjá Hitaveitu Dalvíkur. Áætlaður kostnaður vegna þessa er um kr. 2.000.0000 og óskar sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs eftir heimild til þess að færa á milli kr. 2.000.000 af málaflokki 48 sem áætlað var vegna kaupa á mælum.Þorsteinn vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda beiðni.</DIV&gt;
7.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 791. fundur stjórnar. Til kynningar.
Lagt fram til kynningar.</DIV&gt;