Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
604. fundur
10. nóvember 2011
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012; viðhald Eignasjóðs 2012.
Til umfjöllunar tillaga Eignasjóðs vegna viðhalds stofnana og húseigna Eignasjóðs 2012, samtals kr. 31.115.000.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda tillögu samkvæmt framlögðum lista.</DIV&gt;
2.
Fjárhagsáætlun 2012; lóðarleiga; hugmyndir um breytingar.
Til umræðu hugmyndir að breytingu á álagningarprósentu lóðarleigu.
Bæjarráð samþykkir að álagningarprósenta vegna lóðarleigu A-flokks verði 1,7% í stað 1,9%.</DIV&gt;
3.
Frá Félagi eldri borgara í Dalvíkurbyggð og Hrísey; Ósk um niðurfellingu fasteignagjalda.
Á 598. fundi bæjarráðs þann 20. október 2011 var tekið fyrir erindi frá stjórn Félags eldri borgara Dalvíkurbyggð, bréf dagsett þann 5. október 2011, þar sem fram kemur að vegna aukinna útgjalda félagsins og minnkandi leigutekna af félagsheimilinu Mímisbrunni er þess farið á leit að felld verði niður fasteignagjöld af Mímisvegi 6 á Dalvík. Bæjarráð frestaði afgreiðslu og óskað eftir ársreikningum frá félaginu.
Ekki er heimild fyrir því að fella niður fasteignagjöld.</DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;Með fundarboði bæjarráðs fylgdi ársreikningur félagsins fyrir árið 2010.&nbsp; Á grundvelli þeirra upplýsinga sem þar koma fram þá getur bæjarráð ekki orðið við beiðni um styrk á móti fasteignagjöldum.</DIV&gt;
4.
Frá Ungmennafélagi Svarfdæla; Umsókn um kaup á mörkum.
Á 601. fundi bæjarráðs þann 7. nóvember s.l. var tekið fyrir erindi frá Ungmennafélagið Svarfdæla, Barna- og unglingaráði fótbolta UMFS, dagsett þann 21. október 2011, þar sem óskað er eftir kr. 1.000.000 styrk til að kaupa þrjú sett af mörkum sem nauðsynlegt sé að endurnýja á æfingarvelli á íþróttasvæðinu á Dalvík. Heildarkostnaður er rúmlega kr. 1.500.000. Bæjarráð vísaði erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.
Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 1.000.000.</DIV&gt;Vísað á deild 06-80 í fjárhagsáætlun 2012.</DIV&gt;
5.
Fjárhagsáætlun 2012; samantekt stjórnsýslunefndar.
Á 597. fundi bæjarráðs þann 6. október s.l. var til umfjöllunar samantekt hugmynda af fundi stjórnsýslunefndar. Bæjarráð samþykkti að vera með samantektina áfram til skoðunar og til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar 2012.
Á fundinum var farið yfir samantektina og er ýmislegt í &nbsp;henni þegar komið til framkvæmda og/eða skoðunar í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2012.</DIV&gt;
6.
Fjárhagsáætlun 2012; Búnaðarkaup.
Samkvæmt lista sem sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs tók saman þá eru tillögur stjórnenda vegna búnaðarkaupa, bundir liðir, alls kr. 9.963.000 sem rúmast innan fjárhagsramma.
Bæjarráð samþykkir listann eins og hann liggur fyrir.</DIV&gt;
7.
Fjárhagsáætlun 2012; beiðni um aukafjárveitingu vegna tölvukaupa fyrir Frístund.
Á 600. fundi bæjarráðs þann 27. október s.l. var tekin fyrir beiðni skólastjóra Grunnskóla er varðar kaup á Multisheet með fimm stöðum, kr. 500.000, fyrir Frístund, deild 04-28, sem er ekki í fjárhagsramma.
Bæjarráð hafnar beiðni um ofangreind nýkaup.</DIV&gt;Bæjarráð beinir því til tölvuumsjónarmanns og tölvunefndar að skoða við endurnýjun tölva á árinu 2012 hvort tölvur losni sem henta fyrir þessa starfsemi.</DIV&gt;
8.
Fjárhagsáætlun 2012; hækkun á fjárhagsramma 04 vegna niðurgreiðslu dagvistunargjalda.
Deild 04-16;gert var ráð fyrir kr. 300.000 í tillögu að fjárhagsáætlun en á að vera kr. 1.281.000. Munurinn er kr. 981.000.Deild 04-12; gert var ráð fyrir kr. 182.000 vegna niðurgreiðslu á daggjöldum og kr. 65.000 vegna niðurgreiðslu á fæði en við nánari athugun eiga þessar tölur að vera kr. 353.000 og kr. 27.000. Munurinn er kr. 133.000.Ofangreint hefur áhrif á fjárhagsramma málaflokks 04; samtals kr. 1.114.000.
Bæjarráð samþykkir viðbót við fjárhagsramma 04 að upphæð kr. 1.114.000,-.</DIV&gt;
9.
Fjárhagsáætlun 2012; beiðni um viðbót við fjárhagsramma 06.
Samþykktur fjárhagsrammi fyrir málaflokk 06 er kr. 221.493.000. Tillaga að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 06 er kr. 225.942.000. Mismunurinn er kr. 4.449.000, þar af er kr. 974.000 vegna vinnuskóla, sjá lið 21 hér á eftir. Beiðni fræðslu- og menningarsviðs er því kr. 3.475.000.Á fundinum lagði bæjarstjóri fram tillögu er varðar innri leigu og rekstur á húsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar þegar Dalvíkurbyggð felur öðrum aðila rekstur fasteignar.
Bæjarráð veitir heimild til þess að vinna áætlun 06 i samræmi við tillögu um innri leigu.&nbsp; Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu við fjárhagsramma 06 þegar tekið hefur verið tillit til breytinga á innri leigu.</DIV&gt;Tillaga um breytingar á innri leigu mun einnig hafa áhrif á málaflokk 13 til lækkunar.</DIV&gt;
10.
Fjárhagsáætlun 2012; beiðni um hækkun á stöðuhlutfalli aðstoðarslökkviliðsstjóra.
Á 602. fundi bæjarráðs þann 03.11.2011 kom fram beiðni um aukið stöðuhlutfall aðstoðarslökkviliðsstjóra en skv. kjarasamningum á milli LSS og SNS þá skal greiða varaslökkviliðsstjóra 50% af launum slökkviliðsstjóra. Hækka þarf því stöðuhlutfallið úr 30% í 50% og er áætlaður kostnaður vegna þessa áætlaður kr. 1.200.000 sem færi á deild 07-21.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda beiðni.</DIV&gt;
11.
Fjárhagsáætlun 2012; Beiðni um hækkun á stöðuhlutfalli garðyrkjustjóra
Á 602. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 03.11.2011 kom fram beiðni frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs um að stöðuhlutfall garðyrkjustjóra verði hækkað úr 83% í 100%. Launakostnaður vegna starfs garðyrkjustjóra hefur allur fallið undir málaflokk 11 en sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs leggur til að hluti af launum garðyrkjustjóra fari á vinnuskóla, deild 06-27, og að laun garðyrkjustjóra skiptist þannig: 60% á umhverfismál, 20% á vinnuskóla og 20% á vatnsveitu.
Bæjarráð samþykkir hækkun á ofangreindu stöðuhlutfalli.&nbsp; Varðandi skiptingu á stöðuhlutfalli þá felur bæjarráð sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að endurskoða skiptihlutfall á milli málaflokka og deilda.</DIV&gt;
12.
Frá Hjörleifi Hjartarsyni; Fjárhagsáætlun 2012; skiltamál í Friðlandi Svarfdæla.
Kristján E. Hjartarson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis og Valdís Guðbrandsdóttir tók við fundarstjórn.Með tölvupósti barst erindi þann 8. nóvember 2011 frá Hjörleifi Hjartarsyni er varðar skilti við gönguleiðir í Friðlandi Svarfdæla og óskað er að gert sé ráð fyrir þessu við gerð fjárhagsáætlunar 2012. Áætlaður kostnaður er kr. 833.500.
Bæjarráð&nbsp;getur ekki orðið við ofangreindu erindi &nbsp;og&nbsp;vísar því til umsjónarnefndar með Friðlandi Svarfdæla.</DIV&gt;
13.
Fjárhagsáætlun 2012.
Önnur mál er varða fjárhagsáætlun 2012.
a) Bæjarráð leggur til að arður frá Hitaveitu Dalvíkur verði 15 m.kr.</DIV&gt;
14.
Frá Önnu Dóru Hermannsdóttur; Styrkbeiðni vegna Gönguviku.
Kristján E. Hjartarson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis og Valdís Guðbrandsdóttir tók við fundarstjórn.Tekið fyrir erindi frá Önnu Dóru Hermannsdóttur, f.h. gönguviku Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 12. október 2011, þar sem óskað er eftir að Dalvíkurbyggð komi eitthvað á móts við Ferðatröll vegna halla, sem var kr. 116.000,- af Gönguvikunni 2011.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.</DIV&gt;
15.
Frá Hagstofu Íslands; Undirbúningur töku manntals í árslok 2011.
Tekið fyrir erindi frá Hagstofu Íslands, bréf dagsett þann 2. nóvember 2011, þar sem fram kemur að Hagstofan undirbýr nú töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011 en manntalið mun fylgja evrópskum reglum.Þar sem nokkuð vantar upp á að hægt sé að ákvarða búsetu allra einstaklinga með hjálp íbúaskrár Þjóðskrár Íslands mun Hagstofan fara þess á leit við sveitarfélögin að þau veiti henni nokkrar upplýsingar til viðbótar. Listi verður sendur út til athugunar og leiðréttingar í lok nóvember n.k. Þar sem Hagstofan gerir ráð fyrir að töluverð vinna geti legið að baki því að senda leiðréttan lista til baka mun hún koma til móts við þann kostnað með föstu framlagi eftir umfangi. Það er von Hagstofunnar að Dalvíkurbyggð muni taka vel í þessa beiðni.
Lagt fram.</DIV&gt;
16.
Heildarendurmat á fasteignum í sveitarfélaginu; beiðni til Fasteignaskrár.
Til umræðu sú hugmynd að óska eftir heildarendurmati á fasteignum í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir heildarendurmati á fasteignum í sveitarfélaginu en óskar eftir að lagt verði fyrir bæjarráð hvernig framkvæmd yrði háttað og möguleg útgjöld vegna þessa verkefnis.</DIV&gt;