Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
602. fundur
3. nóvember 2011
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá umhverfis- og tæknisviði;Sjómokstur; fyrirkomulag á útboði.
Sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði grein fyrir umfjöllun umhverfisráðs um fyrirhugað útboð á snjómokstri en ráðið frestaði ákvörðun um útboð á fundi sínum þann 2. nóvember s.l.Ofangreint til umræðu.
2.
Frá Umhverfisráði; Björgunarsveitin á Dalvík; Ósk um breytingu á styrktarsamningi.
Á fundi umverfisráðs þann 19. október s.l. var eftirfarandi bókað:3.Björgunarsveitin Dalvík erindi frá 214. Fundi umhverfisráðs 3. tl.. Málsnr. 1109052. Á fundinn voru mættir Friðjón Sigurvinsson og Reimar Viðarsson en 214. fundi var bókað: Með bréfi, dagsettu 26. ágúst 2011, óskar Friðjón Árni Sigurvinsson fyrir hönd Björgunarsveitar Dalvíkur eftir því að losna undan vinnu við fjallgirðingu frá Fagraskógi að Hálsi. Girðingin mun vera í slæmu ásigkomulagi og tímafrekt að halda henni við. Vinna við girðinguna er ein af skyldum Björgunarsveitarinnar samkvæmt styrktarsamningi við Dalvíkurbyggð. Fram kom í máli þeirra skýringar á hvers vegna umrædd beiðni er fram kominn en verði þessi verkþáttur feldur út úr samningi mun framlag til sveitarinnar lækka um kr. 200.000,-.Umhverfisráð beinir því til bæjarráðs að framlag til Björgunarsveitar Dalvíkur verði hækkað um kr. 200.000,-.
Bæjarráð getur samþykkt að vinna við fjallgirðingu falli út úr samningi en í staðinn komi inn í samninginn annað / önnur&nbsp;samfélagsverkefni&nbsp;til þess að hægt sé að samþykkja óbreytta samningsfjárhæð. &nbsp;Bæjarráð óskar eftir tillögum frá Björgunarsveitinni á Dalvík um önnur samfélagsverkefni.</DIV&gt;
3.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Staða framkvæmda ársins 2011.
Sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði bæjarráði grein fyrir stöðu framkvæmda vegna ársins 2011.Umfjöllun frestað til næsta reglulegs fundar bæjarráðs.Þorsteinn vék af fundi.
5.
Frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu; Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012.Björn Snorrason vék af fundi kl. 12:37.
Tekið fyrir erindi frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, bréf dagsett þann 26. október 2011, þar sem fram kemur að með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012 er til 9. nóvember 2011. Með fundarboði bæjarráðs fylgdi einnig drög að bréfi bæjarstjóra þar sem sótt er um byggðakvóta fyrir Dalvíkurbyggð fyrir ofangreind fiskveiðiár fyrir byggðarlögin Dalvík, Árskógsströnd og Hauganes.
Bæjarráð samþykkir umsóknarbréf bæjarstjóra eins og það liggur fyrir.</DIV&gt;