Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
601. fundur
2. nóvember 2011
kl.
14:00
-
16:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012:a) Starfs-og fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 02; félagsþjónusta.b) Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 41 & 42; Hafnasjóður.
a) Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 02; félagsþjónusta.Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs.Eyrún gerði grein fyrir starfs- og fjárhagsáætlun félagsþjónustu fyrir árið 2012.Fjárhagsrammi fyrir málaflokk 02 vegna ársins 2012 er kr. 86.583.000,-og er tillaga að fjárhagsáætlun kr. 86.588.000.Eyrún vék af fundi.b) Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 41 & 42.Bæjarstjóri gerði grein fyrir starfs- og fjárhagsáætlun fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar.Fjárhagsrammi fyrir árið 2012 er kr. -6.642.000 og er tillaga að fjárhagsáætlun kr. - 11.667.000 miðað við sömu vexti og afskriftir og árið 2011.Lagt er til að fjárfestingar / framkvæmdir málaflokks 42 verði kr. 15.000.000.
2.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega.
Afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega og tekjutenging fyrir árið 2011 var samþykkt eftirfarandi:4. gr. Elli- og örorkulifeyrisþegar fá allt að kr. 47.018 ,- afslátt fasteignaskatts af eigin íbúð sem þeir búa sjálfir í. Afsláttur til elli- og örorkulifeyrisþega er tekjutengdur sem hér segir:a)Einstaklingur með tekjur allt að kr. 1.726.203 ,- b)Hjón og sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 2.382.385 ,-
Bæjarráð samþykkir 6% hækkun&nbsp; þannig að afsláttur 2012&nbsp;verði allt að kr. 49.839.</DIV&gt;Tekjutenging verði sem hér segir miðað við 6% hækkun:</DIV&gt;a)&nbsp; Einstaklingur með tekjur allt að kr.&nbsp; 1.829.775.</DIV&gt;b)&nbsp; Hjón og sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 2.525.328.</DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;Fundi frestað kl. 15:55 til næsta dags.</DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;
3.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Reglur um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.Fundi haldið áfram 3. nóvember 2011 kl. 12:37.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu reglur um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. Smávægilegar breytingar eru lagðar til en ekki efnislegar.
&nbsp;Bæjarráð samþykkir reglurnar eins og þær liggja fyrir með þeim breytingum sem koma fram í 2. lið hér að ofan er varðar fjárhæðir fyrir árið 2012.</DIV&gt;
4.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Reglur um styrki á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka.
Með fundarboði fylgdu reglur um styrki á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka sem hafa verið í gildi hjá Dalvíkurbyggð undanfarin ár. Gerðar eru smávægilegar breytingar á reglunum sem eru ekki efnislegar.
Bæjarráð samþykkir að reglurnar verði í gildi fyrir árið 2012 eins og þær liggja fyrir.</DIV&gt;
5.
Frá Dalvíkurkirkju; Styrkbeiðni vegna fasteignagjalda.
Tekið fyrir erindi frá sóknarnefnd Upsasóknar, bréf dagsett þann 21. október 2011, þar sem þess er farið á leit við bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar að hún við gerð fjárhagsáætlunar sjái sér fært að fella niður eða að veita verulegan styrk upp í þau fasteignagjöld sem koma til með að verða lögð á Dalvíkurkirkju 2012. Í tillögu að fjárhagsáætlun 2012 fyrir málaflokk 05, menningarmál, er gert ráð fyrir kr. 200.000 styrk til Dalvíkurkirkju á móti fasteignagjöldum, sbr. undanfarin ár. Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga þá greiða kirkjur ekki fasteignaskatt til sveitarfélaga.
<P&gt;Bæjarráð samþykkir styrk á móti fasteignagjöldum að upphæð kr. 200.000, sbr. tillaga menningarráðs að fjárhagsáætlun 2012.</P&gt;
6.
Frá Ungmennafélagi Svarfdæla; Umsókn um kaup á mörkum.
Tekið fyrir erindi frá Ungmennafélagi Svarfdæla, Barna- og unglingaráði fótbolta UMFS, dagsett þann 21. október 2011, þar sem óskað er eftir kr. 1.000.000 styrk til að kaupa þrjú sett af mörkum sem nauðsynlegt sé að endurnýja á æfingarvelli á íþróttasvæðinu á Dalvík. Heildarkostnaður er rúmlega kr. 1.500.000.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.</DIV&gt;