Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

598. fundur
20. október 2011 kl. 08:15 - 12:30
í fundarherbergi á þriðju hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá umhverfisráði; Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkur 2012.
Málsnúmer 201110024
Á 597. fundi bæjarráðs þann 6. október s.l. var eftirfarandi bókað:Bæjarstjóri og sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs kynntu hugmyndir að gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar þar sem horfið verður frá því að lagt sé á samkvæmt fasteignamati heldur verði lagt á fastagjald sem og greitt verði ákveðin upphæð á hvern fermetra. Bæjarráð frestaði afgreiðslu.Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, sat fundinn undir þessum lið.Fundarboði bæjarráðs fylgdi tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar sem og 2 tillögur um eftirfarandi:a) Fastagjald á íbúðir kr. 8.000 (A) og á aðrar eignir kr. 16.000 (B og C). Gjald kr/m2 kr. 190 en kr. 95 á stórar landbúnaðareignir. Lágmark skv. gjaldskrá 0,20% og hámark skv. gjaldskrá 0,45% (má vera 0,50%) og b) Fastagjald kr. 8.000 á íbúðir (A) og kr. 16.000 á aðrar eignir (B og C). Gjald kr/m2 kr. 190 en kr. 95 á stórar landbúnaðareignir. Lágmark skv. gjaldskrá 0,25% og hámark skv. gjaldskrá 0,45% (má vera 0,50%).
Bæjarráð samþykkir tillögu a) og gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar í heild sinni með áorðnum breytingum samkvæmt tillögu a).

3.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Útsvarsprósenta 2012.
Málsnúmer 201110080
Útsvarsprósenta Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2011 er 14,48%.
Bæjarráð samþykkir að útsvarsprósenta Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2012 verði óbreytt eða 14,48%.

4.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Álagning fasteignagjalda; fjöldi gjalddaga 2012.
Málsnúmer 201110082
Fjöldi gjalddaga vegna fasteignagjalda fyrir árið 2011 voru samþykktir 10 og sá fyrsti í febrúar 2011, sbr. undanfarin ár.
Bæjarráð samþykkir að fjöldi gjalddaga fasteignagjalda fyrir árið 2012 verði 10 og fyrsti gjalddaginn verði í febrúar 2012.

5.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði;Afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega.
Málsnúmer 201110081
Fyrir árið 2011 var samþykktur af bæjarráði og bæjarstjórn eftirfarandi afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti:Elli- og örorkulífeyrisþegar fá allt að kr. 47.018 ,- afslátt fasteignaskatts af eigin íbúð sem þeir búa sjálfir í. Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega er tekjutengdur sem hér segir:a) Einstaklingur með tekjur allt að kr. 1.726.203 ,-b) Hjón og sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 2.382.385 ,-
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu.

6.
Frá Menningarfélaginu Bergi ses.; Breytingar á neðri hæð í Bergi menningarhúsi.
Málsnúmer 201110078
Tekið fyrir erindi frá Menningarfélaginu Bergi ses., bréf dagsett þann 18. október 2011, er varðar breytingar á neðri hæð í Bergi menningarhúsi. Óskað er eftir við bæjarráð að það veiti leyfi til breytinga á neðri hæð í Bergi menningarhúsi auk þess að veita til þeirra fjárframlag. Um er að ræða breytingar vegna stækkunar á eldhúsi þannig að eldhús yrði fært að hluta til yfir í þar sem nú er skrifstofa bókasafnsins og skrifstofa bókasafnsins yrði færð upp á efri hæð.Óskað er eftir fjárframlagi að upphæð kr. 1.990.000 með vsk vegna ofangreindra breytinga.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.

7.
Frá Hesthúsaeigendafélaginu í Ytra-Holti; Stórhækkaður fasteignaskattur í Hringsholti.
Málsnúmer 201110071
Tekið fyrir erindi frá Hesthúsaeigendafélaginu í Ytra-Holti, bréf dagsett þann 11. október 2011, þar sem fram kemur að mikil óánægja er varðandi stórhækkaða fasteignaskatta á hesthús félagsmanna í Hringsholti, eins og segir í erindinu. M.a. kemur fram að ef bæjaryfirvöld falla ekki frá þeirri ákvörðun sinni frá árinu 2010, að færa fasteignaskatt á hesthúsin úr flokki A í flokk C, þá drabbist staðurinn niður.
Bæjarráð samþykkir að lagt verði á hesthús á árinu 2012 samkvæmt C-flokki, eins og lög um tekjustofna sveitarfélaga kveða á um, en álagningin verði án álags þannig að prósentan fyrir hesthús verði 1,32% í stað 1,65%.

8.
Frá Dalvíkurdeild Rauðakross Íslands;Styrkur vegna björgunarklippa.
Málsnúmer 201110068
Tekið fyrir erindi frá Dalvíkurdeild RKÍ, bréf dagsett þann 10. október 2011, þar sem fram kemur að bréf fyrrverandi slökkviliðsstjóra þar sem styrkupphæð deildarinnar er sögð vera kr. 300.000 var tekið fyrir á stjórnarfundi 4. október s.l., er ekki í samræmi við ákvarðanir stjórnar Dalvíkurdeildar RKÍ og fer hún því fram á að krafa sem stofnuð hefur verið á hendur deildarinnar verði þegar afturkölluð. Stjórnin samþykkti að leggja fram kr. 50.000,- til kaupa á björgunarklippunum ef til þeirra kæmi.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til umhverfisráðs.

9.
Frá Kirkjugörðum Dalvíkurprestakalls; Vegna fjárhagsáætlunar 2012.
Málsnúmer 201110065
Tekið fyrir erindi frá stjórn Kirkjugarða Dalvíkurprestakalls, bréf dagsett þann 9. október 2011, þar sem óskað er eftir fjárveitingu vegna kaupa á girðingarefni til nýframkvæmda við kirkjugarðinn á Dalvík. Meðfylgjandi er tilboð frá Hagvís ehf. að upphæð kr. 964.432,- með vsk.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til umhverfis- og tæknisviðs til skoðunar.

10.
Frá Friðriki Vilhelmssyni; Skolplögn Böggvisbraut að Svarfaðarbraut-Fjárhagsáætlun 2012.
Málsnúmer 201110055
Tekið fyrir rafbréf frá Friðriki Vilhelmssyni, Dalbraut 14, 620. Dalvík, dagsett þann 9. október 2011, þar sem fram kemur sú tillaga að skolplögn sem liggur frá Böggvisbraut að Svarfaðarbraut, þ.e. sunnan Dalbrautar og Sunnubrautar verði endurnýjuð eða fái a.m.k. varanlega viðgerð.
Vísað til umhverfis- og tæknisviðs til skoðunar.

11.
Frá Félagi eldri borgara Dalvíkurbyggð; Ósk um niðurfellingu fasteignagjalda.
Málsnúmer 201110054
Tekið fyrir erindi frá stjórn Félags eldri borgara Dalvíkurbyggð, bréf dagsett þann 5. október 2011, þar sem fram kemur að vegna aukinna útgjalda félagsins og minnkandi leigutekna af félagsheimilinu Mímisbrunni er þess farið á leit að felld verði niður fasteignagjöld af Mímisvegi 6 á Dalvík.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og óskar eftir ársreikningum frá félaginu.

12.
Frá Náttúrusetrinu á Húsabakka;Ósk um þjónustusamning til þriggja ára.
Málsnúmer 201110053
Tekið fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, dagsett þann 6. október 2011, þar sem óskað er eftir því að gerður verði þjónustusamningur til þriggja ára á milli Dalvíkurbyggðar og Náttúruseturs á Húsabakka og að gert verði ráð fyrir honum við gerð fjárhagsáætlunar.Ofangreint erindi var tekið fyrir á fundi menningarráðs Dalvíkurbyggðar þann 13. október s.l. og óskaði menningarráð eftir því við bæjarráð að tekin verði stefnumiðuð ákvörðun um á hvern hátt sveitarfélagið ætlar að standa að setrinu og óskar eftir sameiginlegum fundi um þetta mikilvæga málefni. Afgreiðslu var því frestað.
Bæjarráð samþykkir að verða við beiðni menningarráðs um fund varðandi ofangreint mál.

13.
Frá Náttúrusetrinu á Húsabakka; Styrkbeiðni vegna sýningarinnar "Friðland fuglanna" annar áfangi.
Málsnúmer 201110052
Tekið fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, dagsett þann 6. október 2011, þar sem óskað er eftir fyrir hönd Náttúruseturs á Húsabakka eftir fjárstuðningi Dalvíkurbyggðar við annan áfanga sýningarinnar "Friðland fuglanna". Dalvíkurbyggð styrkti sýninguna um kr. 3.000.000 á árinu 2011 og óskað er eftir kr. 4.000.000 framlagi á árinu 2012.Ofangreint erindi var tekið fyrir á fundi menningarráðs þann 13. október 2011. Menningarráð frestaði afgreiðslu en óskar eftir því við bæjarráð að tekin verði stefnumiðuð ákvörðun um á hvern hátt sveitarfélagið ætlar að standa að setrinu og óskar eftir sameiginlegum fundi um þetta mikilvæga málefni.
Bæjarráð samþykkir að verða við ofangreindri beiðni menningarráðs um fund um málið.

14.
Frá Ungmennafélagi Svarfdæla; Skýrsla um tjaldsvæðagæslu á Fiskidaginn mikla.
Málsnúmer 201110050
Tekin fyrir skýrsla frá knattspyrnudeild Dalvík/Reynir vegna starfa deildarinnar samkvæmt samningi við Dalvíkurbyggð um innheimtu og gæslu á tjaldsvæðum dagana fyrir og eftir Fiskidaginn mikla 2011.Fram koma ýmsar ábendingar varðandi það sem betur mætti fara og m.a. bent á að aðstaðan á tjaldsvæðinu er orðin verulega þreytt.
Bæjarráð vísar ofangreindri skýrslu til íþrótta- og æskulýðsráðs.  Bæjarráð er þeirrar skoðunar að þróa eigi þetta fyrirkomulag áfram.

15.
Frá áhugamannahópi um klifurvegg á Dalvík; Klifurveggur.
Málsnúmer 201110039
Á fundi íþrótta-og æskulýðsráðs þann 11. október 2011 var tekið fyrir erindi, dagsett þann 4. október 2011, frá hópi sem hyggst stofna klifurfélag á Dalvík þar sem farið er yfir hugmyndir um uppbyggingu á klifuraðstöðu í Víkurröst. Óskað er eftir að fá að nota húsnæðið í Víkurröst, þ.e. áhorfendapallana til að byggja upp klifurvegg. Einnig er óskað eftir kr. 600.000 framlagi frá Dalvíkurbyggð til innkaupa á timbri, krossvið og skrúfum en sótt hefur verið um styrki í aðra sjóði og verður öll vinna við uppbyggingu klifurveggjarins unnin í sjálfaboðavinnu.Íþrótta- og æskulýðsráði líst vel á hugmyndirnar en vísar styrkbeiðninni til umfjöllunar í bæjarráði að því gefnu að mögulegt verði að nota stigauppgönguna frá Frístund og upp í félagsmiðstöð fyrir klifurvegg.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.

16.
Frá börnum í Árskógarskóla og foreldrum og aðstandendum barna í Árskógarskóla; Ósk um sparkvöll.
Málsnúmer 201110017
Tekinn fyrir undirskriftarlisti frá ofangreindum þar sem óskað er eftir sparkvelli við Árskógarskóla.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar.

17.
Frá Fiskideginum mikla; Ósk um hækkun á árlegu framlagi
Málsnúmer 1109111
Tekið fyrir erindi frá stjórn Fiskidagsins mikla, bréf dagsett þann 15. september 2011, þar sem stjórnin óskar eftir hækkun á árlegu framlagi Dalvíkurbyggðar til Fiskidagsins mikla. Óskað er eftir að árlegt framlag verði kr. 5.000.000 frá og með árinu 2012.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.

18.
Frá Velferðarráðuneytinu; Aðgerðaráætlun sveitarfélaga.
Málsnúmer 1109067
Tekið fyrir erindi frá Velferðarráðuneytinu, bréf dagsett þann 9. september 2011, þar sem fram kemur að ráðuneytið hvetur sveitarfélög til að hefjast handa við að setja sér áætlun um aðgerðir gegn ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum.
Bæjarráð vísar ofangreindu erindi til félagsmálaráðs.

19.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Hvatning vegna kvennafrídagsins 25. október n.k.
Málsnúmer 201110037
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 29. september 2011, þar sem fram kemur að að áeggjan "Skottana", regnhlífasamtaka íslensku kvennahreyfinganna, vill sambandið hvetja sveitarstjórnir landsins til að standa fyrir fundum vikuna 24. til 29. október n.k. um stöðu og aðgerðir í jafnréttismálum kynjanna í sveitarfélaginu. Tilefnið er að 24. október er íslenski kvennafrídagurinn. Aðalatriðið er að sveitarstjórnir nýti þetta tækifæri til að setja upp kynjagleraugun og skoði stöðu kvenna og karla heima í héraði.
Bæjarstjóri upplýsti um áformaðan fund innan Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.

20.
Fjárhagsáætlun 2012; Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 1106016
Umfjöllun frestað.
21.
Sameiginlegur fundur bæjarráða Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.
Málsnúmer 201110083
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hugmynd að sameiginlegum fundi bæjarráða Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar og að hann verði haldinn nú í Fjallabyggð.
Bæjarráð samþykkir að sameiginlegur fundur bæjarráðanna verði í Ólafsfirði mánudaginn 24. október n.k. kl. 15:00.

22.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir.
Málsnúmer 1105036
Til kynningar 789. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 9. september 2011.
Lagt fram.

23.
Frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra; a) Fjárhagsáætlun 2012 og b) Fundargerðir HNE.
Málsnúmer 1105012
a) Tekið fyrir bréf frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsett þann 11. október 2011, þar sem kynnt er fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2012 og þarf hvert sveitarféalg fyrir sig að taka fjárhagsáætlunina til afgreiðslu. Framlög Dalvíkurbyggðar samkvæmt íbúafjölda eru áætluð kr. 1.459.763 og framlög samkvæmt fyrirtækjaskrá eru áætluð kr. 2.671.600 eða alls kr. 4.131.363.b) Til kynningar fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, 136. fundur, 137. fundur, 138. fundur.
a)  Bæjarráð samþykkir tillögu að fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra fyrir árið 2012.
b)  Lagt fram.