Atvinnumála- og kynningarráð
7. fundur
4. febrúar 2015
kl.
13:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
Formaður
Sölvi H Hjaltason
Varaformaður
Agnes Anna Sigurðardóttir
Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
Aðalmaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir
starfsmaður
Guðmundur St. Jónsson
Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir
upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsóknir í fyrirtæki. Ferðaþjónustuaðilar koma í heimsókn inn á fundinn.
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín. Að þessu sinni hefur ferðaþjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð verið boðið á fund ráðsins. Mætt á fundinn eru:Valgerður Stefánsdóttir fyrir Húsabakka , Zophonías Antonsson fyrir Höfða , Júlíus Júlíusson Þula Bistró, Gréta Arngrímsdóttir Berg menningarhús, Kristján Hjartarson gönguferðir og leiðsagnir, Freyja Snorradóttir og Árni Júlíusson Fosshótel Dalvík, Silja Pálsdóttir Arctic Sea Tours, Laufey Eiríksdóttir bóka- og héraðsskjalasafn , Myriam Dalstein Gistiheimilið Skeið og Gísli Rúnar Gylfason, íþróttamiðstöðin og félagsheimilin.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar þeim ferðaþjónustuaðilum sem sáu sér fært að mæta á fundinn fyrir komuna.
2.
Hlutverk og starfsemi ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar.
Á 4. fundi ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar var rætt um hlutverk og starfsemi ungmennaráðsins. Þar var bókað: Ungmennaráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að óska eftir því að fá að kynna tilgang ráðsins inni hjá öðrum ráðum og nefndum Dalvíkurbyggðar. Kl. 14:30 komu á fund ráðsins Patrekur Óli Gústafsson, varamaður ungmennaráðs, Eiður Máni Júlíusson, aðalmaður ungmennaráðs, og Viktor Már Jónasson, forstöðumaður Víkurrastar og starfsmaður ráðsins, og fóru yfir hlutverk og starfsemi ungmennaráðs.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Patreki Óla, Eiði Mána og Viktori Má fyrir kynningu á starfsemi ungmennaráðsins.
3.
Ímynd Dalvíkurbyggðar, skv. starfsáætlun 2014.
Samkvæmt starfsáætlun fyrir fjármála- og stjórnsýslusvið fyrir árið 2014 hefur verið unnið að verkefni um ímynd Dalvíkurbyggðar. Unnið er út frá þremur þáttum: Dalvíkurbyggð sem vinnuveitandi/vinnustaður, Dalvíkurbyggð sem þjónustuveitandi, Dalvíkurbyggð sem samfélag. Skipaður var starfshópur sem unnið hefur í verkefninu frá upphafi.Unnið hefur verið að fyrstu tveimur þáttum verkefnisins síðastliðið árið. Vinna við þriðja hluta verkefnisins, Dalvíkurbyggð sem samfélag, hófst nú í byrjun janúar en þá hélt starfshópurinn fyrsta fund sinn.
Upplýsingafulltrúi kynnti niðurstöðu fundarins og næstu skref í verkefninu.
5.
Fyrirtækjaþing 2015
Atvinnumála- og kynningarráð hefur staðið fyrir árlegum fyrirtækjaþingum nú um nokkurt skeið. Umfjöllunarefni hefur verið fjölbreytt, svo sem ferðaþjónusta, atvinnutækifæri sem tengjast höfnum, staðan í efnahagsmálum og nú síðast húsnæðismál svo eitthvað sé nefnt.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir að næsta fyrirtækjaþing verði haldið um miðjan apríl og umfjöllunarefnið verði samvinna og samstarf fyrirtækja.
6.
Stefna Dalvíkurbyggðar hvað varðar auglýsingar í heimamiðlum
Á 250. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar staðfesti sveitarstjórn samþykkt byggðaráðs á samningi um auglýsingar í heimamiðlum fyrir árið 2014 en samningurinn komst ekki til framkvæmda.
Upplýsingafulltrúi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs er falið að safna saman gögnum fyrir næsta fund ráðsins miðað við umræður á fundinum.