Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

69. fundur
2. mars 2022 kl. 08:15 - 09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Nýsköpunar- og þróunarsjóður 2022
Málsnúmer 202201130
Farið yfir stöðu mála vegna umsóknarferlis sem brátt fer í gang í tengslum við Nýsköpunar- og þróunarsjóð.
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að auglýsa opnun fyrir umsóknir í Nýsköpunar- og þróunarsjóð sveitarfélagsins í síðasta lagi föstudaginn 4. mars. Umsóknarfrestur í sjóðinn skal vera til og með 4. apríl.
2.
Samstarf 11 sveitarfélaga á Nl.eystra og N4 2022
Málsnúmer 202112090
Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi, fór yfir stöðu mála í kjölfar samnings sveitarfélagsins við N4.
Lagt fram til kynningar
3.
Draumabláir páskar 2022
Málsnúmer 202202121
Áður en Covid-19 skall nokkuð harkalega á árið 2020 vann vinnuhópur að viðburðardagskránni Draumabláir páskar sem ekki tókst að halda hátíðlega. Nú eru uppi áætlanir um að halda áfram þar sem frá var horfið.Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi, fór yfir málin.

Atvinnumála- og kynningaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að farið verði í verkefnið Draumabláa páska 2022 í samstarfi við ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu og felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að hefja samtal við þá sem áhuga hafa á að taka þátt.
4.
Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2021
Málsnúmer 202105068
Lögð fyrir fundinn fundargerð 64. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 13. desember 2021.
Lagt fram til kynningar
5.
Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2022
Málsnúmer 202202045
Lögð fyrir fundinn fundargerð 65. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 28. janúar sl.
Lagt fram til kynningar
6.
Fréttabréf SSNE 2022
Málsnúmer 202202049
Til kynningar fréttabréf SSNE í janúar 2022.
Lagt fram til kynningar
7.
Mánaðarlegar skýrslur bókhalds 2022 vs. áætlun fyrir fagráð
Málsnúmer 202202105
Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi, fór yfir mánaðarlega skýrslu stöðu bókahalds vs. áætlun 2022.
Lagt fram til kynningar
8.
Fréttaskot Markaðsstofu Norðurlands
Málsnúmer 202105137
Fréttaskot Markaðsstofu Norðurlands frá 17. febrúar sl. lagt fyrir fundinn til kynningar
Lagt fram til kynningar