Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

68. fundur
2. febrúar 2022 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Dalvíkurbyggð - Árskógssandur - Dalvík - Hauganes - Úthlutun byggðakvóta 20212022
Málsnúmer 202112093
Atvinnumála- og kynningaráði falið að vinna rökstuðning vegna umsóknar um óbreyttar sérreglur fyrir fiskveiðiárið 2021-2022.
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa, að vinna rökstuðning fyrir óbreyttum sérreglum byggðakvóta fiskveiðiárið 2021/2022, á eyðublað frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu í samræmi við þær umræður sem sköpuðust á fundinum.
2.
Atvinnulífskönnun 2021
Málsnúmer 202111002
Á 1014. fundi byggðaráðs þann 27. janúar sl. var eftirfarandi bókað:Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samanntekt þjónustu- og upplýsingafulltrúa yfir þau atriði sem snúa sérstaklega að sveitarfélaginu og komu fram í ofangreindri atvinnulífskönnun.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri samantekt til fagráða Dalvíkurbyggðar til umfjöllunar og afgreiðslu, eftir því sem við á.Tekið fyrir minnisblað frá þjónustu- og upplýsingafulltrúa varðandi þau atriði í Atvinnulífskönnuninni sem snúa að málefnum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar
3.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Undanfarið hefur verið til kynningar fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand. Íbúafundur var haldinn þann 19. janúar sl. á Zoom.Þjónustu- og upplýsingafulltrúi kynnti stöðu málsins fyrir ráðinu.
Lagt fram til kynningar
4.
Samningur um kynningarefni
Málsnúmer 202201131
Farið yfir stöðu mála í tengslum við samning við N4 um kynningarefni fyrir Dalvíkurbyggð
Lagt fram til kynningar
5.
Fundargerðir SSNE 2021
Málsnúmer 202101060
Lögð fyrir ráðið fundargerð 33. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, sem haldinn var þann 12. janúar sl.
Lagt fram til kynningar
6.
Heimsóknir í fyrirtæki 2019-2022
Málsnúmer 201901022
Til umræðu mögulegar heimsóknir í fyrirtæki á næstunni í ljósi þess að enn eru að greinast Covid-19 tilfelli í Dalvíkurbyggð.Á 1013. fundi Byggðaráðs sem haldinn var 20. janúar sl. var eftirfarandi bókað: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela þjónustu- og upplýsingafulltrúa og verkefnastjóra SSNE að kanna þörf og áhuga hjá einyrkjum að leigja vinnuaðstöðu/skrifstofur í sveitarfélaginu.Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um kaffifund sem áætlað er að halda miðvikudaginn 8. febrúar nk. í Bergi þar sem einyrkjum og einstaklingum í störfum án staðsetningar verður boðið til fundar til almennra umræðna. Þar verður meðal annars könnuð þörf og áhugi hjá þeim á að leigja vinnuaðstöðu/skrifstofur í sveitarfélaginu.
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að skipuleggja fyrirtækjaheimsóknir á næsta fundi ráðsins.

Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um kaffifund sem áætlað er að halda miðvikudaginn 8. febrúar nk. í Bergi þar sem einyrkjum og einstaklingum í störfum án staðsetningar verður boðið til fundar til almennra umræðna. Þar verður meðal annars könnuð þörf og áhugi hjá þeim á að leigja vinnuaðstöðu/skrifstofur í sveitarfélaginu.