Atvinnumála- og kynningarráð
63. fundur
2. júní 2021
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Tryggvi Kristjánsson
varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir
aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir
þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fundargerðir Markaðsstonfu Norðurlands 2021
Atvinnumála- og kynningaráð tekur undir áhyggjur á skorti af samráði ráðuneytisins við áfangastaðastofur og aðra hlutaðeigandi aðila við vinnslu verkefnisins Vörður. Ráðið telur afar mikilvægt að verkefni eins og Vörður fari fram í öllum landshlutum.
2.
Fréttabréf SSNE
Til kynningar fréttabréf SSNE frá janúar-apríl 2021.
Lagt fram til kynningar
3.
Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2021
Fundargerðir 62. og 63. fundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lagðar fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
4.
Nýsköpunar- og þróunarsjóður 2021
Fyrir fundinum liggja 6 umsóknir í nýsköpunar- og þróunarsjóð. Allar umsóknir bárust innan tímabils um auglýstan frest sem var 17. maí sl. Umsóknir teknar fyrir til umræðu og ákvörðunar en úthlutað verður skv. gildandi reglum.Sigríður Jódís Gunnarsdóttir fór af fundi undir þessum lið kl. 09:48, sökum vanhæfis. Hún kom aftur inn á fundinn kl. 10:24.
Heimild Nýsköpunar- og þróunarsjóðs Dalvíkurbyggðar til úthlutunar samkvæmt fjárhagsáætlun 2021 er kr. 1.000.000. Í reglum sjóðsins kemur fram að hámarksstyrkur hvers verkefnis getur aldrei orðið hærri en kr. 500.000 og skulu ekki fleiri en 6 verkefni styrkt ár hvert. Alls bárust 6 umsóknir í sjóðinn. Tveimur umsóknum var hafnað þar sem þær uppfylltu ekki skilyrði samkvæmt reglum sjóðsins. Fjórar umsóknir eru gildar sem Atvinnumála- og kynningarráð metur allar álitlegar á grundvelli 7. gr. um Mat á umsóknum og samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að veita kr. 250.000 styrk í hvert verkefni.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að senda svör.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að senda svör.
5.
Fundargerðir SSNE 2021
Fundargerð 22. fundar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
6.
Fréttaskot Markaðsstofu Norðurlands
Með rafpósti dags. 28.5.2021 barst þjónustu- og upplýsingafulltrúa Fréttaskot frá Markaðsstofu Norðurlands. Lagt fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram til kynningar.