Atvinnumála- og kynningarráð
61. fundur
3. mars 2021
kl.
08:15
-
09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Tryggvi Kristjánsson
varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir
þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fundaröð atvinnumála- og kynningarráðs
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um stöðu mála hvað varðar ör-ráðstefnu ráðsins í febrúar/mars. Í samstarfi við SSNE er stefnan sett á að halda ráðstefnuna þann 23. mars nk.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að halda áfram vinnu við undirbúninginn og auglýsa næstu ör-ráðstefnu.
2.
Markaðs- og kynningarmál
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi fór yfir stöðu markaðs- og kynningarmála í kjölfar Covid-19 og framhald. Þörf er á að skoða þá kynningarkosti sem henta sveitarfélaginu með tilliti til þess að ná til sem flestra en vera á sama tíma fjárhagslega hagstæðir valkostir.
Ráðið felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að vinna málið áfram samkvæmt þeim umræðum sem sköpuðust á fundinum. Mikilvægt er að nýta þá kosti sem er að finna hér í nágrenninu til kynningar á sveitarfélaginu sem ákjósanlegan búsetukost og í ferðaþjónustu.
3.
Fundargerðir SSNE 2021
Fundargerð 22. fundar SSNE frá 10. febrúar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.