Atvinnumála- og kynningarráð
60. fundur
3. febrúar 2021
kl.
08:15
-
09:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Tryggvi Kristjánsson
varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir
aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fyrirtækjaþing 2020
Rætt um fyrirhugaða ör-ráðstefna Atvinnumála- og kynningaráðs sem lagt var til að yrði beint til ungs fólks um mánaðarmótin febrúar/mars.
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að hafa samband við SSNE varðandi samvinnu við að halda ör-ráðstefnu eins og haldin var 25. nóvember 2020.
3.
Norðurstrandarleið - sögur
Til umræðu skiltamál tengd Norðurstrandarleið.
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að setja sig í samband við vinnuhóp Arctic Coast Way hjá Markaðsstofu Norðurlands varðandi skilti sem búið er að hanna og framleiða hjá Markaðstofunni.
4.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 22. janúar 2021, þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja), 419. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. febrúar 2021.
5.
Til umsagnar frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja), 419. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Atvinnuveganefnd Alþingis sem sendur var 22. janúar 2021. Nú er til umsagnar frumvarp tillaga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja), 419. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. febrúar2021
Lagt fram til kynningar.
6.
Fundargerðir stjórnar SSNE 2020
Fundargerð 19. fundar SSNE lögð fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
7.
Fréttatilkynningar Markaðsstofu Norðurlands
Fréttaskot Markaðsstofu Norðurlands lagt fram til kynningar
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að hafa samband við Markaðsstofu Norðurlands og óska eftir að starfsmaður frá þeim komi á næsta fund ráðsins.