Atvinnumála- og kynningarráð
6. fundur
7. janúar 2015
kl.
13:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
Formaður
Sölvi H Hjaltason
Varaformaður
Agnes Anna Sigurðardóttir
Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
Aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson
Varamaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir
starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir
upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fyrirtækjaþing 2014; Húsnæðismarkaðurinn í Dalvíkurbyggð og staða hans.
Á 5. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 3. desember s.l. lagði ráðið til að fá Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóra Búseta á Norðurlandi, á næsta fund ráðsins til að fara nánar yfir þær hugmyndir sem upp komu á ofangreindu þingi sem haldið var þann 20. nóvember 2014.Benedikt Sigurðarson kom inn á fundinn kl. 13:00.Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, kom á fundinn undir þessum lið kl. 13:00.Til umræðu ofangreint.Benedikt vék af fundi kl.14:15.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Benedikt fyrir komuna og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum.
Ráðið felur upplýsingafulltrúa að ræða við Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar um greiningu á almenna húsnæðismarkaðinum í Dalvíkurbyggð.
Ráðið leggur einnig til að byggðaráð skoði hagkvæmni þess að selja íbúðir í eigu Dalvíkurbyggðar inn í sjálfseignastofnun eða leigufélag.
Ráðið beinir því til byggðaráðs að verkefni húsnæðisnefndar samkv. lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, 13. og 14. grein, verði fundinn staður innan stjórnkerfis Dalvíkurbyggðar.
Ráðið felur upplýsingafulltrúa að ræða við Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar um greiningu á almenna húsnæðismarkaðinum í Dalvíkurbyggð.
Ráðið leggur einnig til að byggðaráð skoði hagkvæmni þess að selja íbúðir í eigu Dalvíkurbyggðar inn í sjálfseignastofnun eða leigufélag.
Ráðið beinir því til byggðaráðs að verkefni húsnæðisnefndar samkv. lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, 13. og 14. grein, verði fundinn staður innan stjórnkerfis Dalvíkurbyggðar.
3.
Heimsóknir í fyrirtæki.
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimasækja fyrirtæki í sveitarfélaginu. Haustið 2014 heimsótti ráðið fyrirtækin Tréverk og Promens. Upplýsingafulltrúi hefur gert samantekt yfir þau fyrirtæki eða hópa atvinnurekenda sem ráðið mun heimsækja á árinu 2015.Á fundinum var farið yfir yfirlitið og rætt markmið með heimsóknunum.
Lagt fram.
4.
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils.
Með fundarboði ráðsins fylgdu siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í Dalvíkurbyggð en samkvæmt sveitarstjórnarlögum á ný sveitarstjórn að taka til endurskoðunar gildandi siðareglur og ræða í sveitarstjórn við tvær umræður. Siðareglunar þurfa að fá staðfestingu innanríkisráðuneytsins og þær auglýstar í Stjórnartíðindum. Innanríkisráðuneytið hefur staðfest siðareglurnar en engar efnislegar breytingar voru gerðar frá fyrri gildandi reglum. Í 9. lið kemur fram að siðareglurnar skulu kynntar kjörnum fulltrúum í nefndum og ráðum.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti ofangreindar siðareglur.
Lagt fram til kynningar.
6.
Atvinnustefna Dalvíkurbyggðar
Á 1. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 10. júlí 2014 var eftirfarandi bókað:Atvinnumála- og kynningarráð tekur jákvætt í gerð atvinnustefnu og felur upplýsingafulltrúa að undirbúa jarðveginn. Upplýsingafulltrúi leggur fyrir ráðið drög að áætlun um hvernig hægt væri að nálgast verkefnið.Á fundinum kynnti upplýsingafulltrúi vinnuskjal er inniheldur vegavísir að því hvernig nálgast má þetta verkefni.
Atvinnumála- og kynningarráð mun halda áfram að vinna að þessu verkefni.
7.
Fundargerðir AFE
Teknar fyrir fundargerðir Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar nr. 173, 174 og 175.
Lagt fram til kynningar.