Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

58. fundur
12. nóvember 2020 kl. 08:15 - 09:11
í fjarfundi
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
3.
Norðurstrandarleið - sögur
Málsnúmer 202011064
Verkefni sem liggja fyrir á Norðurstrandarleið (Arctic coast way) eru fjölmörg. Dalvíkurbyggð var meðal annarra málsaðili ásamt Markaðsstofu Norðurlands að verkefni sem kallast sögur.Unnið er að því um þessar mundir að safna sögum en stefnt er að því að setja upp 1 sögu að minnsta kosti á hvern áfangastað sem snýr að upplifun heimamanna á staðnum eða sérstökum atburðum sem orðið hafa í byggðalögunum.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um stöðu mála.
Stefnt er á verkefnið verði unnið í samstarfi við forstöðumann safna.
4.
Fyrirtækjaþing 2020
Málsnúmer 202011065
Ástandið á síðustu mánuðum hefur ekki gert ráðinu kleift að halda fyrirtækjaþing og kalla aðila sem reka fyrirtæki í Dalvíkurbyggð saman á fund.Lagt er til að halda ör-ráðstefnu í fjarfundi fyrir aðila í fyrirtækjarekstri. Hugmyndin er að halda eina slíka þann 25. nóvember nk. ef aðstæður leyfa og er undirbúningur fyrir það hafinn í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, SSNE. Á ör-ráðstefnunni yrði áhersla lögð á að fjölga og efla smáfyrirtæki í byggðalaginu með það markmiði að hækka þjónustustigið og mögulega skapa fleiri atvinnutækifæri.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fundargerðir stjórnar SSNE 2020
Málsnúmer 202002037
Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 14 og 15 lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar