Atvinnumála- og kynningarráð
57. fundur
7. október 2020
kl.
08:00
-
09:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Tryggvi Kristjánsson
varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir
aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir
þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
2.
Heimsóknir í fyrirtæki.
Á meðan enn ríkir óvissuástand vegna Covid telur ráðið að meta þurfi stöðuna á hverjum fundi fyrir sig með áframhaldandi heimsóknir í fyrirtæki. Þjónustu- og upplýsingafulltrúa var falið á síðasta fundi ráðsins að yfirfara heimsóknalista og leggja hann fyrir næsta fund ráðsins.Listinn lagður fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
Ráðinu þykir ekki ráðlegt að vera að leggja upp í fyrirtækjaheimsóknir á meðan samkomutakmarkanir vegna tilmæla sóttvarnarlæknis eru í gildi.
Ráðinu þykir ekki ráðlegt að vera að leggja upp í fyrirtækjaheimsóknir á meðan samkomutakmarkanir vegna tilmæla sóttvarnarlæknis eru í gildi.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024
Starfs- og fjárhagsáætlun þjónustu- og upplýsingafulltrúa fyrir árið 2021 lögð fram til kynningar fyrir ráðið.Þá var einnig yfirfarið minnisblað frá þjónustu- og upplýsingafulltrúa vegna beiðnar um aukið fjármagn í markaðs- og kynningarmál næstu ára.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir Starfsáætlun þjónustu- og upplýsingafulltrúa og ráðsins fyrir fjárhagsárið 2021 með fimm greiddum atkvæðum.
Atvinnumála- og kynningarráð gerir ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun þjónustu- og upplýsingafulltrúa og ráðsins fyrir fjárhagsárið 2021 né minnisblað þjónustu- og upplýsingafulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
Atvinnumála- og kynningarráð gerir ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun þjónustu- og upplýsingafulltrúa og ráðsins fyrir fjárhagsárið 2021 né minnisblað þjónustu- og upplýsingafulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
4.
Skýrsla Flugklasans Air 66N
Starf Flugklasans Air 66N 1. apríl - 15. sept. 2020Hér verður gerð grein fyrir því helsta í starfi Flugklasans Air 66N undanfarna mánuði.
Lagt fram til kynningar.
Ráðið lýsir yfir ánægju sinni með upplýsingaflæði frá Flugklasanum Air 66N og þá jákvæðu uppbyggingu sem er á áætlun á Akureyrarflugvelli og vonast til að áframhaldandi uppbygging gangi vel.
Ráðið lýsir yfir ánægju sinni með upplýsingaflæði frá Flugklasanum Air 66N og þá jákvæðu uppbyggingu sem er á áætlun á Akureyrarflugvelli og vonast til að áframhaldandi uppbygging gangi vel.
5.
Fundagerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands 2019-2020
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá september lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.