Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

56. fundur
15. september 2020 kl. 08:15 - 10:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
3.
Heimsóknir í fyrirtæki.
Málsnúmer 201407048
Farið yfir stöðu á heimsóknum ráðsins í fyrirtæki og listi settur saman fyrir næstu mánuði.
Í ljósi þeirra aðstæðna sem ríkt hafa í landinu í tengslum við Covid-19 hefur ráðið ekki verið að fara í fyrirtækjaheimsóknir. Á meðan enn ríkir óvissuástand vegna Covid telur ráðið að meta þurfi stöðuna á hverjum fundi fyrir sig með áframhaldandi heimsóknir.

Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að yfirfara heimsóknalista og leggja hann fyrir næsta fund ráðsins.
4.
Atvinnustefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201405182
Farið yfir ýmsar hugmyndir varðandi fyrirtækjaþing 2020. Hvaða áherslur sé best að hafa í ár og hvaða tími sé hentugur. Einnig farið yfir hluta úr atvinnustefnunni sem snýr að því að fá unga fólkið okkar aftur heim.
Atvinnumála- og kynningarráð leggur til að stefnt verði á að hafa fyrirtækjaþing í byrjun næsta árs. Fyrirtækjaþingið yrði þá að þessu sinni með áherslu á nýsköpun, þróun og smáfyrirtækjarekstur í Dalvíkurbyggð. Markmiðið er að hafa hugarflæði um tækifærin í sveitarfélaginu, hópastarf og mynda jafnvel framhaldshópa út frá þinginu.

Taka þarf stöðuna á tímasetningu þingsins þegar nær dregur í ljósi aðstæðna vegna Covid.

Farið yfir leiðir til að ná unga fólkinu aftur heim. Fara í markvissa kynningu á því sem Dalvíkurbyggð hefur upp á að bjóða, mögulega með markaðssetningu.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024
Málsnúmer 202005082
Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi fór yfir stöðu á málalykli 21500, markaðs- og kynningarmál. Málin rædd í ljósi stöðu markaðsmála í kjölfar Covid-19. Farið yfir hvar sé hægt að bæta í ef tækifæri gefst útfrá fjárhagsáætlun næsta árs.Tekinn fyrir tölvupóstur frá N4 fjölmiðill og sá möguleiki ræddur að setja upp heildarpakka í ljósi 3ja ára áætlunar 2022-2024.
Nútímalegri hugmyndir að markaðssetningu fyrir sveitarfélagið ræddar og ákveðið að reyna að fá aukið fjármagn inn í fjárhagsáætlun 2021 vegna þess.

Ráðið samþykkir samhljóða með fjórum atkvæðum að sækja eftir auknu fjármagni vegna markaðssetningar á sveitarfélaginu.
6.
Skilti og merkingar í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201209077
Skilti sem þjónustu- og upplýsingafulltrúi hefur unnið og verða sett í Friðlandinu og við Tungurétt lögð fram til kynningar.Þá útbjó þjónustu- og upplýsingafulltrúi í sumar skilti á gervigrasvöllinn sem einnig er lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fundagerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands 2019-2020
Málsnúmer 201912025
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá júní og júlí lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundargerðir stjórnar SSNE 2020
Málsnúmer 202002037
Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.