Atvinnumála- og kynningarráð
55. fundur
19. júní 2020
kl.
09:00
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Tryggvi Kristjánsson
varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir
aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir
þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020
Hagsmunaaðilar byggðakvóta í Dalvíkurbyggð voru boðaðir á aukafund Atvinnumála- og kynningaráðs til að ræða stöðu mála í tengslum við umsókn um byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti fundarmenn um stöðu mála og framvinduna. Í kjölfar þess sköpuðust umræður um nýtingu úthlutaðs kvóta og áhyggjur yfir því hve stutt er eftir að fiskveiðiárinu.
Atvinnumála- og kynningaráð þakkar hagsmunaaðilum byggðakvóta fyrir góðan og upplýsandi fund.