Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

53. fundur
6. maí 2020 kl. 08:15 - 09:40
í fjarfundi
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir Þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnulífskönnun í kjölfar Covid19
Málsnúmer 202004142
Atvinnulífskönnun hefur verið send út til fyrirtækja í byggðalaginu til könnunar á stöðu þeirra í kjölfar Covid19 faraldursins.Lagt fram til kynningar.
Atvinnumála- og kynningaráð lýsir yfir áhyggjum sínum af stöðu atvinnulífs í Dalvíkurbyggð í kjölfar Covid-19. Ráðið vonast til að sem flestir svari könnuninni svo hægt verði að fá sem raunhæfasta mynd af stöðunni í sveitarfélaginu.
2.
Átak í merkingu gönguleiða
Málsnúmer 202004070
Byggðaráð samþykkti á fundi sínum þann 30. apríl sl. að taka þátt í átaki á merkingum gönguleiða á vegum Markaðsstofu Norðurlands
Atvinnumála- og kynningaráð fagnar því að taka eigi þátt í þessu átaki á vegum Markaðsstofu Norðurlands.
3.
Atvinnulífskönnun 2019
Málsnúmer 201909136
Lagðar fram til kynningar fyrir ráðið niðurstöður atvinnulífskönnunar sem framkvæmd var í nóvember 2019. Niðurstöður könnunarinnar eru með mjög svipuðu sniði og niðurstöður fyrri ára sem er gleðiefni.
Lagt fram til kynningar
4.
Draumabláir páskar í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003001
Lagðar fram hugmyndir þess efnis að nýta auglýsingar sem gerðar voru fyrir herferðina draumabláir páskar í herferð sem hægt er að nýta allan ársins hring undir hugtakinu Draumabláir dagar í Dalvíkurbyggð. Búið er að taka á móti fyrstu hugmyndum frá Blek hönnun á hugtakinu og er þessa dagana verið að vinna með mögulegar myndir í auglýsingarnar. Lagt upp með að geta sent frá sér auglýsingar á helstu miðla í síðasta lagi um miðjan maí.
Atvinnumála- og kynningaráð fagnar því fara eigi í herferðina Draumabláa daga og felur Þjónustu- og upplýsingafulltrúa að koma á framfæri þeim hugmyndum sem fram komu á fundinum.
5.
Fréttatilkynningar Markaðsstofu Norðurlands
Málsnúmer 202004158
Lagðar fram til kynningar fréttatilkynningar frá Markaðsstofu Norðurlands og tillögur að frekara samstarfi vegna Covid19
Atvinnumála- og kynningaráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að finna út hvernig best sé að útfæra samstarf af þessu tagi við Forstöðumann safna og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
6.
Fundargerðir SSNE 2020
Málsnúmer 202002037
Lagðar fram til kynningar síðustu fundargerðir SSNE
Lagt fram til kynningar
7.
Fundagerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands 2019-2020
Málsnúmer 201912025
Lagðar fram til kynningar fundargerðir Markaðsstofu Norðurlands.
Lagt fram til kynningar
8.
Nýsköpunar- og þróunarsjóður 2020
Málsnúmer 202004156
Fyrir fundinum liggja 4 umsóknir í nýsköpunar- og þróunarsjóð. Allar umsóknir bárust innan tímabils um auglýstan frest. Úthlutað verður skv. gildandi reglum.Sigríður Jódís Gunnarsdóttir og Júlíus Magnússon fóru af fundi undir þessum lið kl. 09:23, sökum vanhæfis og Rúna Kristín Sigurðardóttir,varamaður, mætti í þeirra stað.Undir þessum lið mætti einnig á fundinn kl. 09:23, Katrín Dóra Þorsteinsdóttir, staðgengill sviðsstjóra Fjármála- og stjórnsýslusviðs sökum vanhæfis Írisar Hauksdóttur, þjónustu- og upplýsingafulltrúa.
Atvinnumála- og kynningaráð samþykkir að veita styrk uppá kr. 500 þús. á hverja þeirra þriggja umsókna sem metnar voru gildar.
Einni umsókn var hafnað þar sem hún uppfyllti ekki skilyrði.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að senda svör.