Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

52. fundur
7. apríl 2020 kl. 08:15 - 09:23
í fjarfundi
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
Dagskrá
1.
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra 2020-2024
Málsnúmer 201911112
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi sendi inn umsókn frá Dalvíkurbyggð um styrk í tengslum við hugmyndir um samstarfsverkefni atvinnumála- og kynningaráðs og umhverfisráðs á sviði umhverfismála. Engin úthlutun fékkst í það verkefni úr sóknaráætlun að þessu sinni.Einnig til kynningar fundargerð 6. fundar stjórnar SSNE frá 21. febrúar 2020 en á þeim fundi var úthlutað 42,3 miljónum króna í áhersluverkefni á Norðurlandi eystra 2020.
Lagt fram til kynningar.
2.
Draumabláir páskar í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003001
Farið yfir stöðu mála í tengslum við verkefnið "Draumabláir páskar í Dalvíkurbyggð" en eins og gefur að skilja verður ekkert af því verkefni í ár. Ljóst er að Covid 19 hefur mikil áhrif á ferðaþjónustufyrirtæki í Dalvíkurbyggð eins og annars staðar og skapar erfiðleika í rekstri. Nú er í gangi hugmyndavinna um hvernig hægt er að nýta hugmyndina áfram. Unnið er að því að yfirfæra hugmyndina yfir í "Draumabláir dagar í Dalvíkurbyggð", herferð sem hægt er að nýta allan ársins hring.
Lagt fram til kynningar.
3.
Nýsköpunar- og þróunarsjóður
Málsnúmer 202003002
Opnað var fyrir umsóknir í Nýsköpunar- og þróunarsjóð Dalvíkurbyggðar þann 16. mars sl. Umsóknarfrestur er til 16. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

Næsti fundur ráðsins er fyrirhugaður miðvikudaginn 6. maí og þá verður farið yfir þær umsóknir sem borist hafa.
4.
Upplýsingar vegna kórónuveirufaraldurs.
Málsnúmer 202003086
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um verkefni sem sett hefur verið af stað til að huga að atvinnulífinu í Dalvíkurbyggð á tímum kórónuveirufaraldursins en á 323. fundi sveitarstjórnar þann 31. mars 2020 var eftirfarandi samþykkt:"Starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa verði tímabundið skilgreint með aukna áherslu á stuðning við atvinnulíf sem og markaðssetningu á sveitarfélaginu upp úr öldudalnum."Farið yfir stöðu mála. Mikil umræða um möguleika á sameiginlegri markaðssetningu fyrirtækja í ferðaþjónustu og annarri þjónustu í sveitarfélaginu. Einnig um möguleikana á að nýta verkefnið "Draumabláir dagar í Dalvíkurbyggð" til sameiginlegrar viðspyrnu í sveitarfélaginu eftir Covid-19.
Atvinnumála- og kynningarráð fagnar því að starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa verði tímabundið skilgreint með aukna áherslu á stuðning við atvinnulíf og markaðssetningu á sveitarfélaginu.
5.
Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020
Málsnúmer 201910144
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um stöðu mála í tengslum við umsókn Dalvíkurbyggðar um byggðakvóta. Enn hefur ekki verið tekin afstaða í Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu til sérreglna Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Skýrsla Flugklasans Air 66N
Málsnúmer 202003174
Með fundarboðinu fylgdi skýrsla Flugklasans Air 66N frá 12. október 2019 - 31. mars 2020.
Lagt fram til kynningar.

Atvinnumála- og kynningarráð fagnar því að stjórnvöld hafa ákveðið að fjármagna uppbyggingu flugstöðvar og flughlaðs á Akureyri. Þetta mun hafa mjög mikil og góð áhrif á atvinnulíf og ferðaþjónustu á svæðinu.
7.
Fundagerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands 2019-2020
Málsnúmer 201912025
Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá Markaðsstofu Norðurlands frá 5. febrúar, 16. og 18. mars.
Lagt fram til kynningar.

Atvinnumála- og kynningarráð stefnir á að fá fulltrúa Markaðsstofunnar og Flugklasans Air 66N á fund ráðsins í vor.