Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

51. fundur
4. mars 2020 kl. 08:15 - 09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir Þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnulífskönnun 2019
Málsnúmer 201909136
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi kynnir stöðu á vinnslu skýrslu út frá niðurstöðum atvinnulífskönnunar sem lögð var fyrir í nóvemberlok 2019.
Lagt fram til kynningar
2.
Draumabláir páskar í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003001
Uppi eru hugmyndir meðal ferðaþjónustuaðila í Dalvíkurbyggð að búa til skemmtidagskrá um páska undir nafninu Draumabláir páskar í Dalvíkurbyggð. Farið yfir hlutverk þjónustu- og upplýsingafulltrúa í tengslum við það verkefni.
Lagt fram til kynningar
3.
Nýsköpunar- og þróunarsjóður
Málsnúmer 202003002
Farið yfir stöðu mála vegna umsóknarferlis sem brátt fer í gang í tengslum við nýsköpunar- og þróunarsjóð.
Atvinnumála- og kynningarráð ákveður að auglýsa opið fyrir umsóknir í sjóðinn frá 16. mars nk. Umsóknarfrestur verður líkt og reglurnar segja 1 mánuður frá auglýsingu.

Samþykkt með fjórum atkvæðum
4.
Áhersluverkefni Eyþings 2020
Málsnúmer 202001004
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi sendi inn umsókn um styrk í tengslum við hugmyndir um samstarfsverkefni atvinnumála- og kynningaráðsráðs og umhverfisráðs á sviði umhverfismála. Farið yfir stöðu mála.
Starfsmaður atvinnumála- og kynningaráðs sendi inn umsókn um styrk í sóknaráætlun Norðurlands-eystra í samráði við umhverfisráð. Umsókninni var hafnað.
5.
Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020
Málsnúmer 201910144
Þjónustu- og upplýsingafulltrúi fer yfir stöðu mála.
Enn hefur ekki borist svar vegna tillagna Dalvíkurbyggðar að sérreglum varðandi byggðakvóta.
6.
Ísland 2020, atvinnuhættir og menning
Málsnúmer 201908064
Skila þarf upplýsingum um Dalvíkurbyggð skv. beiðni sem fyrst. Farið yfir þær upplýsingar sem þarf að veita
Lagt fram til kynningar
7.
Áfangastaðaáætlanir
Málsnúmer 201901086
Árið 2018 var gerð áfangastaðaáætlun fyrir Norðurland, þar sem gert var stöðumat á ferðaþjónustu á Norðurlandi og forgangsröðun verkefna til næstu þriggja ára. Nú er hinsvegar kominn tími á að uppfæra viðkomandi lista. Því leitum við eftir að fá nýjan lista frá ykkur sem er topp fimm listi yfir mikilvægustu uppbyggingarverkefni á ykkar svæði til næstu 2 ára. Notast verður við sömu aðferðafræði og gert var síðast sem byggir á ákvörðun stýrihóps DMP sem skipti Norðurlandi í 4 mismunandi svæði:1.Austur- og Vestur Húnavatnssýsla2.Skagafjörður, Fjallabyggð, Eyjafjörður 3.Mývatn, Húsavík, Þingeyjarsveit 4.Norðurhjarasvæði1.Sveitarfélög og ferðamálafélög á viðkomandi svæði senda topp 5 lista. (Topp 5 listinn þarf að vera verkefni sem sveitarfélagið metur sem mikilvæg fyrir uppbyggingu á ferðaþjónustu á viðkomandi svæði)Skila þarf inn verkefnum á eyðublaði sem er í viðhengi.SKILAFRESTUR er 31. mars. Stefnt er á að halda svæðisfund fyrir Eyjafjörð á Dalvík þann 15. apríl nk.
Atvinnumála- og kynningarráð felur þjónustu-og upplýsingafulltrúa að vinna málið áfram miðað við hugmyndir sem komu fram á fundinum og skila efni innan gefins frests.
8.
Endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda
Málsnúmer 202003003
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið bendir á að starfshópur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um atvinnu- og byggðakvóta hefur skilað skýrslu sinni um endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda.
Lagt fram til kynningar
9.
Fundagerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands 2019-2020
Málsnúmer 201912025
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar