Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

5. fundur
3. desember 2014 kl. 10:00 - 13:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Sölvi H Hjaltason Varaformaður
Agnes Anna Sigurðardóttir Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Aðalmaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsóknir í fyrirtæki; Promens.
Málsnúmer 201407048
Atvinnumála- og kynningarráð byrjaði fundinn á því að heimsækja fyrirtækið Promens kl. 10:00 en það er stefna ráðsins að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu.Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri Promens, tók á móti ráðinu og kynnti starfsemi fyrirtækisins. Fundi haldið áfram í Upsa kl. 11:00
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar fyrir móttökuna og fróðlegar upplýsingar.
2.
Heimsókn frá AFE
Málsnúmer 201411151
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri AFE, kom á fundinn kl. 11:00 og kynnti starfsemi AFE fyrir ráðinu.Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 11:00.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Þorvaldi Lúðvík fyrir kynninguna.
4.
Ímynd Dalvíkurbyggðar, skv. starfsáætlun 2014
Málsnúmer 201401050
Samkvæmt starfsáætlun fyrir fjármála- og stjórnsýslusvið fyrir árið 2014 hefur verið unnið að verkefni um ímynd Dalvíkurbyggðar. Unnið er út frá þremur þáttum: Dalvíkurbyggð sem vinnuveitanda/vinnustað, Dalvíkurbyggð sem þjónustuveitanda, Dalvíkurbyggð sem samfélag. Skipaður var starfshópur sem unnið hefur í verkefninu frá upphafi.Upplýsingafulltrúi fór yfir stöðu verkefnisins, hvað er búið að gera og hver verða næstu skref.
Lagt fram til kynningar. Atvinnumála- og kynningarráð lýsir yfir ánægju sinni með þetta verkefni.
5.
Fyrirtækjaþing 2014; Húsnæðismarkaðurinn í Dalvíkurbyggð.
Málsnúmer 201407034
Fimmtudaginn 20. nóvember s.l. var haldið í Bergi fyrirtækjaþing undir yfirskriftinni; Húsnæðismarkaðurinn í Dalvíkurbyggð. Markmið þingsins var að skoða og ræða stöðu á húsnæðismarkaði sveitarfélagsins með áherslu á nýbyggingar. Flutt voru erindi sem tengdust málefninu auk þess voru fyrirspurnir og umræður í sal.
Atvinnumála- og kynningarráð leggur til að fá Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóra Búseta, á næsta fund ráðsins til að fara nánar yfir hugmyndir sem komu upp á þinginu.
6.
Fundargerðir AFE
Málsnúmer 201411152
Frestað.