Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

49. fundur
6. desember 2019 kl. 08:00 - 10:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson varamaður
Starfsmenn
Íris Hauksdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Íris Hauksdóttir Þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra 2020-2024
Málsnúmer 201911112
Á aðalfundi Eyþings þann 15. nóvember sl. var samþykkt ný sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra 2020-2024. Sóknaráætlun er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum leiðum að markmiðunum. Áhersluflokkarnir í sóknaráætluninni eru atvinnumál og nýsköpun, menning og umhverfismál. Áætlunin tekur mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og einstök markmið og aðgerðir tengd við tilheyrandi heimsmarkmið.Farið yfir sóknaráætlun og úttekt á framlögum til rannsókna og nýsköpunar. Ljóst er að hlutur Norðurlands eystra er mjög rýr í úthlutun úr opinberum sjóðum. Málin rædd.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að afla upplýsinga um úthlutanir síðustu ára. Ákveðið að taka málefni sóknaráætlunar upp á dagskrá ráðsins með reglubundnum hætti.
2.
Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020
Málsnúmer 201910144
Til umfjöllunar staða mála varðandi byggðakvóta fiskveiðiársins 2019-2020, vísað til ráðsins frá byggðaráði.Búið er að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019-2020 en ekki er enn komin úthlutun fyrir byggðarlögin í sveitarfélaginu.
Búið er að boða hagsmunaaðila vegna byggðakvótans á umræðufund, þriðjudaginn 10. desember á 3. hæð ráðhúss kl. 16.00.
Fundurinn var auglýstur á heimasíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðlum í vikunni.
4.
Atvinnulífskönnun 2019
Málsnúmer 201909136
Farið yfir frumniðurstöður úr Atvinnulífskönnuninni 2019.
Lagt fram til kynningar
5.
Heimsóknir í fyrirtæki 2019
Málsnúmer 201901022
Til umræðu næsti samráðsfundur við atvinnulífið skv. atvinnustefnu, bændur.
Ákveðið að boða bændur á fund ráðsins í febrúar.
6.
Fundargerðir AFE 2019
Málsnúmer 201904003
Lagðar fram til kynningar fundargerð stjórnar AFE nr. 40 og fundargerð aukaaðalfundar AFE
Lagðar fram til kynningar
7.
Fundagerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands
Málsnúmer 201912025
Fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands lögð fram til kynningar
Lagt fram til kynningar