Atvinnumála- og kynningarráð
42. fundur
6. mars 2019
kl.
08:15
-
11:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Tryggvi Kristjánsson
varaformaður
Snæþór Arnþórsson
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Heiðrún Villa Ingudóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdótti / Heiðrún Villa Ingudóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs/ Þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsóknir í fyrirtæki 2019; forsvarsmenn fyrirtækja í ferðaþjónustu mæta á fundinn.
Forsvarsmenn fyrirtækja í ferðaþjónustu mættu á fund Atvinnumála- og kynningarráðs kl. 8:15. Alls mættu á fundinn 8 aðilar fyrir 9 fyrirtæki.Til umræðu hver staðan er í ferðaþjónustu í Dalvíkurbyggð og hverjar eru framtíðarhorfurnar. Einnig meðal annars hvort sé fækkun eða fjölgun ferðamanna, bókanir, starfsmannahald, markaðssetning, Upplýsingamiðstöðin, Markaðsstofa Norðurlands, Ferðatröll.Klukkan 9:40 kom á fundinn Sif Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá Símenntunarstöð Eyjafjarðar á Dalvík. Sif kynnt hvernig SÍMEY getur stutt við ferðaþjónustuna til dæmis með námskeiðum.Sif vék af fundi kl. 10:05Forsvarsmenn fyrirtækja í ferðaþjónustu í Dalvíkurbyggð viku af fundi kl.10:05
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar forsvarsmönnum fyrirtækja í ferðaþjónustu og Sif Jóhannesdóttur fyrir mætinguna á fundinn og góðar umræður. Atvinnumála- og kynningarráð felur þjónustu- og upplýsingafulltrúa að takan saman minnisblað um það helsta sem fram kom á fundinum og boða til annars fundar í tengslum við samstarf milli ferðaþjónustuaðila.
2.
Reglur Dalvíkurbyggðar um nýsköpunar- og þróunarsjóð,næstu skref.
Á 310. fundi sveitarstjórnar þann 19. febrúar 2019 voru reglur Dalvíkurbyggðar um nýsköpunar- og þróunarsjóð staðfestar.Með fundarboði fylgdu drög að vinnureglum fyrir sjóðinn um meðferð umsókna og úthlutun styrkja ásamt drögum að samningi við styrkþega.Til umræðu ofangreint.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningsformi og vinnureglum.
3.
Frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu; Áfangastaðaáætlanir
Á 895. fundi byggðaráðs þann 7. febrúar 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett þann 25. janúar 2019, þar sem fram kemur að ráðuneytið fer þess á leit að áfangastaðaáætlun Norðurlands fái viðeigandi umfjöllun í bæjarráði/sveitarstjórn og verði vísað til viðeigandi stofnunar / sviðs í sveitarfélaginu. Grunnhugsun að baki áfangastaðaáætlana fyrir landshluta er samstarf og samþætting vegna annarra áætlana á einstaka svæðum.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til atvinnumála- og kynningarráðs og umhverfisráðs til umfjöllunar."Til umræðu ofangreind áfangastaðaáætlun Norðurlands.
Lagt fram til kynningar
4.
Atvinnustefna Dalvíkurbyggðar; aðgerðaáætlun og næstu skref
Á 309. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 15. janúar 2019 var Atvinnustefna Dalvíkurbyggðar samþykkt samhljóða.Á fundinum var til umræðu ofangreind stefna og næstu skref út frá aðgerðaáætlun stefnunnar. Farið var yfir þau verkefni sem tilgreind eru í áætluninni.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að fela þjónustu- og upplýsingafulltrúa að vinna drög að upplýsingasíðu fyrir ferðamenn inn á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
5.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur bókhalds vs. áætlun; Janúar - desember 2018 og janúar 2019
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðu bókhalds í samanburði við áætlun fyrir janúar- desember 2019 sem og stöðu bókhalds í samanburði við áætlun fyrir janúar 2019.Um er að ræða eftirtaldar deildir:13010 Sameiginlegur kostnaður - Atvinnumála- og kynningarráð.13410 Atvinnuþróun13800 Styrkir / framlög til atvinnumála21500 KynningarmálTil umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar