Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

40. fundur
9. janúar 2019 kl. 08:15 - 11:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Tryggvi Kristjánsson varaformaður
Hólmfríður M Sigurðardóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Heiðrún Villa Ingudóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Heiðrún Villa Ingudóttur þjónustu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Frá N4; Beiðni um samstarf Dalvíkurbyggðar og N4
Málsnúmer 201812084
Á fundinum var gert grein fyrir beiðni frá N4 um samstarf milli Dalvíkurbyggðar og N4 í formi auglýsingasamnings. Eftir skoðun málsins innanhúss var ákveðið að ekki væri hægt að verða við beiðni frá N4 um samstarf.
Atvinnumála- og kynningarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda niðurstöðu.
2.
Atvinnustefna- aðgerðaráætlun
Málsnúmer 201601026
Á 39. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 5. desember 2018 var þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að vinna að aðgerðaráætlun að teknu tilliti til niðurstaðna vinnuhópanna ásamt tillögum ráðsins að afgreiðslu.Með fundarboði atvinnumála- og kynningarráðs fylgdu uppfærð drög.Til umræðu ofangreint.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum fyrirliggjandi Atvinnustefnu Dalvíkurbyggðar og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.
Kynningarmyndband um Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201802020
Nú hefur verið lokið við gerð þriggja kynningarmyndbanda fyrir Dalvíkurbyggð og voru þau frumsýnd í afmæliskaffi sveitarfélagsins þann 16. desember sl. Markmiðið er að nota kynningarmyndböndin til markaðssetningar á Dalvíkurbyggð og stefnt er að því að deila myndböndunum s.s. á Internetinu, á samfélagsmiðlum og jafnvel í sjónvarpi. Með fundarboði fylgdi áætlun þjónustu- og upplýsingafulltrúa hvað varðar möguleika í markaðssetningu myndbandanna.Til umræðu ofangreint.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela þjónustu- og upplýsingafulltrúa að vinna eftir tillögu að markaðssetningu myndbandanna innan heimildar í starfs- og fjárhagsáætlun 2019.
4.
Heimsóknir í fyrirtæki 2019
Málsnúmer 201901022
Undanfarin ár hefur eitt af verkefnum atvinnumála- og kynningarráðs verið að heimasækja fyrirtæki í sveitarfélaginu og/eða fá ákveðnar atvinnugreinar á fund ráðsins.Markmiðið með þessum heimsóknum er að kynna sér starfsemi fyrirtækja í sveitarfélaginu og fá betri yfirsýn yfir stöðu atvinnulífsins og framtíðarhorfur.Til umræðu framhald á þessu verkefni.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela þjónustu- og upplýsingafulltrúa að koma með tillögu að heimsóknum í fyrirtæki út kjörtímabilið.
5.
Fjárhagsrammi 2019
Málsnúmer 201901021
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti gildandi fjárhagsramma 2019 fyrir þau verkefni sem eru á borði ráðsins og starfsmanna ráðsins.
Lagt fram til kynningar.