Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

28. fundur
3. október 2017 kl. 13:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Sölvi H Hjaltason Varaformaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Bára Höskuldsdóttir aðalmaður
Jón Steingrímur Sæmundsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnuuppbygging í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201605002
Á fund ráðsins kl. 13:00 komu Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og Þorsteinn Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, og fóru yfir þær framkvæmdir í sveitarfélaginu sem tengjast atvinnumálum. Börkur og Þorsteinn yfirgáfu fundinn kl.14:20.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Berki og Þorsteini fyrir greinargóðar upplýsingar og fagnar þeirri jákvæðu uppbyggingu í atvinnulífi og íbúðabyggingum sem á sér stað í sveitarfélaginu um þessar mundir.
2.
Erindi til sveitarstjóra frá flugklasanum Air66
Málsnúmer 201703134
Á 833. fundi byggðaráðs var meðal annars eftirfarandi bókað: ,,Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, bréf dagsett þann 29. mars 2017, þar sem óskað er eftir áframhaldandi aðkomu sveitarfélagsins með þátttöku í flugklasanum Air 66N til að fjármagna starf verkefnastjóra með framlagi sem nemur kr. 300 á hvern íbúa í árí í 2 ár, árin 2018-2019.Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2018-2021.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar atvinnumála- og kynningaráðs og óskar eftir tillögu til byggðaráðs um afgreiðslu."
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að haldið verði áfram stuðningi við flugklasa Air 66N.
3.
Stuðningur við frumkvöðla og fyrirtæki, endurskoðun á reglum
Málsnúmer 201709014
Á 26. fundi atvinnumála og kynningarráðs var meðal annars bókað: ,,Í reglum um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki kemur fram að endurskoða skuli reglurnar á fjögurra ára fresti og var það gert af atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar síðast í janúar 2012. Með fundarboði fylgdu fyrstu drög upplýsingafulltrúa að breytingum á reglum um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki. Þær hafa einnig verið sendar Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar til yfirferðar. Unnið að breytingum og upplýsingafulltrúa falið að uppfæra reglurnar miðað við þær breytingar sem voru gerðar á fundinum ásamt því að fá umsögn lögfræðings. "
Ekki liggur enn fyrir umsögn lögfræðings og upplýsingafulltrúa falið að vinna áfram í málinu miðað við umræður á fundinum.
4.
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021
Málsnúmer 201705174
Tekin fyrir starfsáætlun upplýsingafulltrúa.
Til kynningar.
Atvinnumála- og kynningarráð gerir engar athugasemdir við starfsáætlun upplýsingafulltrúa.
5.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018
Málsnúmer 201709108
Tekið fyrir erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu dagsett 11. september 2017 vegna auglýsingar umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018. Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017 er til 15.október 2017.
Til kynningar.
6.
Fyrirtækjaþing 2017
Málsnúmer 201709015
Á síðasta fundi atvinnumála- og kynningarráðs var samþykkt að næsta fyrirtækjaþing ráðsins yrði haldið í febrúar 2018. Ráðið heldur áfram að ræða um möguleg umræðuefni þingsins.
Áframhaldandi umræða.
7.
Svæðislokanir fyrir dragnót
Málsnúmer 201709110
Á 835. fundi byggðaráðs Dalvíkurbyggðar var meðal annars eftirfarandi bókað: ,,Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 15. september 2017, þar sem kynnt er að starfshópur um heildarendurskoðun á regluverki er varðar notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndarsvæði á Íslandsmiðum hefur skilað minnisblaði um reglur sem gilda um dragnótaveiðar. Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga stendur til boða að koma athugasemdum vegna málsins á framfæri við landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti eigi síðar en þriðjudaginn 26. september 2017. Þau aðildarsveitarfélög sem vilja koma athugasemdum á framfæri eru beðin um að koma þeim til Sambandsins í síðasti lagi í hádegi mánudaginn 25. september. "
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundargerðir 2017
Málsnúmer 201706024
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 31 og 32 frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.
Til kynningar.
9.
Fundargerðir 2017
Málsnúmer 201706023
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 204, 205, 206 og 208 frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar.
Til kynningar.
10.
Umsókn um gerð Hvatasamnings
Málsnúmer 201609031
Bára Höskuldsdóttir víkur af fund kl. 15:26 vegna vanhæfis. Á 25. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars eftirfarandi bókað: ,,Tekin fyrir umsókn um gerð hvatasamnings milli Agnesar Önnu Sigurðardóttur, fyrir hönd Bjórbaðanna ehf kt. 540715-1140 og Dalvíkurbyggðar, móttekin þann 5. september 2016.Atvinnumála- og kynningarráð tekur jákvætt í umsóknina en frestar afgreiðslu þar til fullnægjandi gögn liggja fyrir."
Upplýsingafulltrúa falið að vinna að málinu fram að næsta fundi.