Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

24. fundur
25. janúar 2017 kl. 13:00 - 15:35
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Sölvi H Hjaltason Varaformaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Bára Höskuldsdóttir aðalmaður
Jón Steingrímur Sæmundsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsókn í atvinnumála- og kynningarráð
Málsnúmer 201701087
Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri AFE, Baldvin Valdemarsson, verkefnastjóri hjá AFE og Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri hjá AFE, komu á fund ráðsins kl. 13:00 og kynntu starfsemi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE)og helstu verkefni. Þau viku af fundi kl. 14:40.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar starfsfólki AFE fyrir greinargóða kynningu og góðar umræður í kjölfarið. Stefnt er að öðrum fundi með AFE síðar á árinu.
2.
Fyrirtækjaþing 2016
Málsnúmer 201609032
Á 23. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 4. janúar 2017 var meðal annars eftirfarandi bókað:,,Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir að halda íbúaþing 11. febrúar 2017 þar sem umfjöllunarefnin verða tækifæri, bjartsýni og jákvæð uppbygging samfélagsins."
Atvinnumála - og kynningarráð felur upplýsingafulltrúa að undirbúa þingið miðað við umræður á fundinum.