Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

2. fundur
3. september 2014 kl. 13:00 - 15:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Sölvi H Hjaltason Varaformaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Aðalmaður
Kristín Björk Þórsdóttir Varamaður
Guðmundur St. Jónsson Varamaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Upplýsingamiðstöð; skýrsla starfsmanns um starfssemina 2014.
Málsnúmer 201407047
Valgerður Björg Stefánsdóttir, starfsmaður upplýsingamiðstöðvar, kom á fundinn kl. 13:08 og kynnti skýrslu upplýsingamiðstöðvar fyrir sumarið 2014. Valgerður fór yfir helstu verkefni, fjöldatölur, þjóðerni þeirra sem nýttu sér upplýsingamiðstöðina og fleira.Valgerður fór út af fundi kl. 13:46.
Lagt fram.

Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að óska eftir viðræðum við menningarráð um starfsemi Upplýsingarmiðstöðvar í Bókasafni Dalvíkurbyggðar og felur formanni ráðsins og Upplýsingafulltrúa að fara á fund menningarráðs.
2.
Stöðumat starfs- og fjárhagsáætlunar janúar - júní 2014; atvinnumál og kynningarmál.
Málsnúmer 201407037
Sviðsstjóri Fjármála- og stjórnsýslusviðs og upplýsingafulltrúi fóru yfir stöðumat starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir janúar til júní 2014.
Lagt fram.
4.
Erindi frá Ferðatröllum; www.visittrollaskagi.is
Málsnúmer 201401011
Upplýsingafulltrúi fór yfir stöðu mála hvað varðar heimasíðuna www.visitrollaskagi.is, en áformað var að hún færi í loftið 13. júní s.l. samkvæmt verkáætlun.
Lagt fram.
5.
Fyrirtækjaþing 2014.
Málsnúmer 201407034
Síðustu ár hafa verið haldin fyrirtækjaþing í Dalvíkurbyggð. Efni fyrirtækjaþinganna hafa verið ýmis svo sem hafnarstarfsemi, ferðaþjónusta, efnahagsmál og fleira.Til umræðu þema þingsins, dagskrá og tímasetning. Lilja Björk vék af fundi undir þessum lið kl. 15:17.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 4 atkvæðum að fyrirtækjaþing 2014 verði haldið um húsnæðismál, nýbyggingar, í sveitarfélaginu. Þingið verði í nóvember.

Atvinnumála- og kynningarráð óskar eftir samstarfi byggðarráðs og umhverfisráðs og óskar eftir tilnefningu á einum fulltrúa í vinnuhóp frá hverju ráði til að koma að fyrirtækjaþinginu. Fyrir hönd atvinnumála- og kynningarráðs verði upplýsingarfulltrúi í vinnuhópnum og formaður. Einnig komi sveitarstjóri og viðkomandi sviðsstjórar fagsviða að undirbúningi.

Lagt er til að vinna kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum verið launuð.