Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

19. fundur
4. maí 2016 kl. 13:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Sölvi H Hjaltason Varaformaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Bára Höskuldsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsóknir í fyrirtæki.
Málsnúmer 201407048
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín.
Frestað.
2.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Málsnúmer 201604102
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnir mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir þær deildir sem tilheyra atvinnumála- og kynningarráði.
Lagt fram til kynningar.
3.
Atvinnuuppbygging í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201605002
Atvinnumála- og kynningarráð lýsir ánægju sinni með alla þá atvinnuuppbyggingu sem á sér stað í sveitarfélaginu sem sýnir glöggt að almennur vöxtur á sér stað á svæðinu. Atvinnuhúsnæði hefur verið að rísa á Hauganesi, Árskógssandi, Árskógsströnd, Svarfaðardal og á Dalvík. Einnig er ánægjulegt að fyrir liggja umsóknir um atvinnulóðir.
4.
Hvatasamningur, umsókn.
Málsnúmer 201602102
Á síðsta fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 6. apríl 2016 var eftirfarandi bókað: "Tekin fyrir umsókn um gerð hvatasamnings milli Þorsteins Más Aðalsteinssonar, fyrir hönd fyrirtækisins Erlent ehf kt. 711008-1950, og Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 17.02.2016. Atvinnumála- og kynningarráð lýsir yfir ánægju sinni með umsóknina og felur upplýsingafulltrúa að vinna áfram að málinu á milli funda, miðað við umræður á fundinum. "Upplýsingafulltrúi leggur fram umbeðin gögn frá Erlent ehf. auk þess að leggja fyrir tillögu að hvatasamningi milli Dalvíkurbyggðar og Erlent ehf.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að ráðið muni leggja til við byggðaráð að gerður verði hvatasamningur við Erlent ehf. Atvinnumála- og kynningarráði er ljóst að fjárhæðir vegna hvatasamnings eru ekki á fjárhagsáætlun þessa árs.

Áður en að gengið verður frá samningsdrögum þarf Erlent ehf að leggja fram nánari útlistun á gjöldum til Dalvíkurbyggðar sem til falla á næstu þremur árum.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
5.
Atvinnu- og auðlindastefna
Málsnúmer 201601026
Á síðasta fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 6. apríl var eftirfarandi bókað:"Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að SVOT greiningin verði hluti af atvinnu- og auðlindastefnu sveitarfélagsins og að unnið verði áfram með hana á milli funda ráðsins."Upplýsingafulltrúi leggur fram tillögu að SVOT greiningu fyrir Dalvíkurbyggð.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum SVOT greininguna eins og hún liggur fyrir með breytingum sem hafa verið gerðar á milli funda.