Fara í efni

Atvinnumála- og kynningarráð

17. fundur
2. mars 2016 kl. 13:00 - 15:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Sölvi H Hjaltason Varaformaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Bára Höskuldsdóttir aðalmaður
Jón Steingrímur Sæmundsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Heimsóknir í fyrirtæki; heimsókn fyrirtækja í landbúnaði.
Málsnúmer 201407048
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín.Að þessu sinni var fyrirtækjum starfandi í landbúnaði boðið í heimsókn ráðsins. Gestir fundarins voru:Gunnhildur Gylfadóttir, Guðmundur Jónsson, Karl Ingi Atlason og Kristján Hjartarson.Til umræðu m.a. sýn sveitarstjórnar, búvörusamningur, tollamál, bændur í ferðaþjónustu, Beint frá býli, sérstaða landbúnaðar í Dalvíkurbyggð, ný reglugerð um aðbúnað, gagnrýni á landbúnað.Ofangreindir gestir viku af fundi kl. 14:24.
Atvinnumála- og kynningaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að bæta við landbúnaðar/matvælaklasa í fundaröð sína;
"Hey, ég er með frábæra hugmynd, eigum við að vinna saman"
3.
Upplýsingar til nýrra íbúa frá Dalvíkurbyggð.
Málsnúmer 201602005
Samkvæmt starfsáætlun upplýsingafulltrúa fyrir árið 2016, og sbr. undanfarin ár, þá hefur kynningarbréf verið sent út til nýrra íbúa í sveitarfélaginu þar sem helsta þjónusta sveitarfélagsins er kynnt ásamt íþrótta- og æskulýðsstarfi og fleiru.Farið yfir möguleika á að koma upplýsingum til nýrra íbúa í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
5.
Staða húsnæðismarkaðar; sbr. fyrirtækjaþing 2014.
Málsnúmer 201407034
Á 10. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var eftirfarandi bókað: "Á 8. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars eftirfarandi bókað:Á fundinn kom kl. 14:00 Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, til að skoða mögulega aðkomu AFE að greiningu á almenna húsnæðismarkaðinu í Dalvíkurbyggð.Elva víkur af fundi kl. 14:38.Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Elvu fyrir komuna. Elva mun skoða, í samráði við annað starfsfólk Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, hvernig aðkoma AFE að þessu máli gæti verið og senda tillögur á atvinnumála- og kynningarráð.Upplýsingafulltrúi upplýsti um tölvupóst, sem barst frá Elvu 30. apríl 2015. Þar kemur meðal annars fram að líklega verði myndaður starfshópur um heildar úttekt á húsnæðismarkaðnum í Eyjafirði."Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti á fundinum að samkvæmt rafpósti dagsettum þann 8. febrúar 2016 frá framkvæmdastjóra AFE þá hefur Valtýr Sigurbjarnarson verið ráðinn í það verkefni hjá AFE að taka saman upplýsingar um stöðu á fasteignamarkaði í Eyjafirði og horfur á næstu misserum. Niðurstaðan á geta gagnast sveitarstjórnarmönnum við að meta stöðuna á fasteignamarkaði gagnvart íbúum og atvinnulífi, bæði á sínum nærsvæðum og í Eyjafirði öllum. Reiknað er með að verkefnið taki mánuð í vinnslu.
Lagt fram til kynningar.