Atvinnumála- og kynningarráð
10. fundur
6. maí 2015
kl.
13:00
-
15:35
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
Formaður
Sölvi H Hjaltason
Varaformaður
Agnes Anna Sigurðardóttir
Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
Aðalmaður
Jón Steingrímur Sæmundsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Margrét Víkingsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Margrét Víkingsdóttir
upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsóknir í fyrirtæki.
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín. Að þessu sinni var farið í heimsókn í fyrirtækið Dalpay kl. 13:00.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Dalpay fyrir góðar móttökur.
2.
Fyrirtækjaþing 2014
Á 8. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars eftirfarandi bókað:Á fundinn kom kl. 14:00 Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, til að skoða mögulega aðkomu AFE að greiningu á almenna húsnæðismarkaðinu í Dalvíkurbyggð.Elva víkur af fundi kl. 14:38.Atvinnumála- og kynningarráð þakkar Elvu fyrir komuna. Elva mun skoða, í samráði við annað starfsfólk Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, hvernig aðkoma AFE að þessu máli gæti verið og senda tillögur á atvinnumála- og kynningarráðUpplýsingafulltrúi upplýsti um tölvupóst, sem barst frá Elvu 30. apríl 2015. Þar kemur meðal annars fram að líklega verði myndaður starfshópur um heildar úttekt á húsnæðismarkaðnum í Eyjafirði.
Til kynningar.
3.
Atvinnustefna Dalvíkurbyggðar
Á 9. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars bókað: Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að vinna að samantekt um hver möguleg aðkoma Dalvíkurbyggðar gæti verið að atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu. Útgangspunkturinn væri hvað sveitarfélagið má og má ekki í því sambandi. Einnig að taka saman hvað sveitarfélagið er nú þegar að gera varðandi aðkomu að atvinnulífinu. Upplýsingafulltrúi fór yfir þær upplýsingar sem liggja fyrir.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að leggja fyrir ráðið nákvæmari drög að því hvernig sveitarfélagið getur komið að atvinnulífinu.
4.
Vefstefna, endurskoðun
Á 8. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var eftirfarandi bókað: Vefstefna Dalvíkurbyggðar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 8. desember 2009.Tilgangur vefstefnunnar er að tryggja vefsetri Dalvíkurbyggðar ákveðna umgjörð. Ljóst er að þróun í vefmálum hefur verið mikil á síðustu árum og því kominn tími til að endurskoða vefstefnuna.Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að endurskoða vefstefnu sveitarfélagsins og felur upplýsingafulltrúa og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að gera drög að endurskoðaðri stefnu. Upplýsingafulltrúi fer yfir vefstefnuna eins og hún lítur út núna en ýmsar breytingar voru gerðar á henni.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum tillögu að vefstefnu eins og hún liggur fyrir og vísar henni til samþykktar sveitarstjórnar.
5.
Upplýsingastefna, endurskoðun
Á 8. fundi Atvinnumála- og kynningarráðs var eftirfarandi bókað:Upplýsingastefna Dalvíkurbyggðar var samþykkt í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar 19. september 2006 og er því komin tími á endurskoðun hennar.Markmið stefnunnar er að ramma inn upplýsingagjöf frá sveitarfélaginu í samræmi við upplýsingalög nr. 50/1996. Ný upplýsingalög tóku gildi 1. janúar 2013, lög nr. 140/2012.Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að endurskoða upplýsingastefnu sveitarfélagsins og felur upplýsingafulltrúa og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að gera drög að endurskoðaðri stefnu. Upplýsingafulltrúi fer yfir stefnuna eins og hún lítur út í dag en ýmsar breytingar hafa verið gerðar á henni.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum tillögu að upplýsingastefnu eins og hún liggur fyrir og vísar henni til samþykktar sveitarstjórnar.