Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

8. fundur
8. október 2025 kl. 13:30 - 14:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson Verkefnastjóri byggingarmála
Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá
1.
Mímisvegur 1-7 - Samþykki fyrir útgangshurð
Málsnúmer 202510038
Erindi dagsett 8. október 2025 þar sem Oddný Þórunn Sæmundsdóttir sækir byggingarleyfi fyrir inngönguhurð á austurvegg bílskúrs á lóð nr. 1 við Mímisveg. Fyrir liggur samþykki allra þinglýstra eigenda í húsinu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
2.
Svarfaðarbraut 19-21 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Málsnúmer 202509170
Erindi dagsett 30. september 2025 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir hönd Tréverks ehf. fyrir parhúsi á lóð nr. 19-21 við Svarfaðarbraut. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
3.
Smáravegur 7 - Umsókn um niðurrif á bílgeymslu
Málsnúmer 202503061
Erindi dagsett 29. september 2025 þar sem Þórir Guðmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir hönd Ívars Ernis Vignissonar fyrir niðurrifi bílgeymslu á lóð nr. 7 við Smáraveg. Jafnframt er fyrirhugað að byggja aðra í sama stíl. Innkomin gögn eftir Þórir Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.
4.
Smáravegur 7 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
Málsnúmer 202509155
Erindi dagsett 29. september 2025 þar sem Þórir Guðmundsson sækir um byggingarheimild fyrir hönd Ívars Ernis Vignissonar fyrir viðbyggingu á lóð nr. 7 við Smáraveg. Innkomin gögn eftir Þórir Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.